Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986. i Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Ólyginn sagði... Steven Spielberg (ékk ekki Óskar i ár vegna ö(- undar gamalla leikstjóra i Hollivúdd. Þeir sitja i verðlauna- netndinni og þola engan veginn velgengni þessa unga snillings. Þetta er samdóma álit leikara í kvikmyndaborginni á orsökum tyrir því að gengið var (ramhjá Spielberg að þessu sinni og tyrstu viðbrögð voru mikil undr- un ylir óskammteilni dómnetnd- arinnar. Jean Paul Getty var alveg óður i konur. Hann sainaöi kveniólki ai engu minni ákata en aurum og tyllti heimili sitt að Sutton Place af hinum ýmsu eintökum beggja tegunda. Aurarnir voru yfírleitt ekkert að bögglast fyrir Getty en kvens- urnar voru ósjaldan til vand- ræða, enda litið hrifnar af þvi að hittast við óliklegustu að- stæður. Larry Hagman lifir sannkölluðu kóngalífi. Það þakkar hann Dallasþáttunum sem hafa malað honum gull á síðustu árum. Launin fyrir þátta- röðina eru ekkert til að gráta yfir en mun hærri eru þó upp- hæöirnar sem hann fær fyrir að lána nafn sitt á alls kyns fram- leiðsluvarning og láta sjá sig á hinum ýmsu stööum. Hver þátt- ur sem J.R. gefur Hagman 8J þúsund dollara. Joko Ono: „Hvar ertu, Kyoko?“ Með syni sínum og Johns Lennon - Sean Lennon 11 ára. Joko og John með Ky- oko dóttur Joko Ono frá fyrra hjónabandi með kvikmyndaframleiðand- anum Tony Cox. Meira að segja heimsins frægasta og auðugasta fólk á ekki alltaf sjö dagana sæla, það fær sinn skammt af sorgum og erfiðleikum lífsins ekki síður en óbreyttir borgarar. Joko Ono þurfti ekki aðeins að sætta sig við morðið á eiginmanni sínum, bítlinum John Lennon, heldur leitar hún horfinnar dóttur sinnar af örvæntingu. Þetta er Kyoko sem í dag er orð- in 22 ára. Fyrstu myndir af John og Joko saman sýna oft litla dökk- hærða stúlku í bak- eða forgrunni. Þetta er Kyoko sem dvaldi hjá móður sinni þar til faðirinn og fyrr- verandi eiginmaður Joko birtist einn daginn og hafði dótturina á brott með sér. Síðan hefur ekkert til þeirra spurst og Joko hefur reynt að hafa uppi á þeim þrotlaust síðustu íjórtán árin. Cox gerði þetta af hræðslu við að Joko reyndi að ná umráðaréttinum yfir bam- Joko er orðin 52 ára gömul og á sér vin, hinn 33 ára Sam Havadtoy. inu. Úr jólaheimsókn til föður síns sneri Kyoko litla aldrei aftur, frá jólakvöldinu 1971 hefur Cox hrein- lega horfið undir yfirborð jarðar. I örvæntingu sinni skrifaði Joko Ono nýlega opið bréf í bandaríska vikublaðið People Weekly: „Kæra Kyoko, öll þessi ár hefur enginn dagur liðið án þess að ég saknaði þín. Þú verður alltaf í hjarta mínu. En ég reyni ekki að gera ráðstafanir til þess að hitta þig því ég vil virða einkalíf þitt og óska þér allrar lífshamingju sem unnt er að finna. Ef þú einhvern tíma vilt hafa samband við mig þá vil ég að þú vitir að ég elska þig heitt og yrði mjög glöð að heyra frá þér. En viljirðu það ekki skaltu samt ekki vera með sektarkennd, þú átt virðingu mína, ást og stuðn- ing alla ævi. Kær kveðja, mamma.“ En Joko hefur ekki ennþá fengið svar frá Kyoko ... Svíar tala nú ekki um annað en Agnethu Fáltskog, fyrrum Abba- stelpu. Hún hefur fundið sér nýjan lífsförunaut sem er hljómplötu- framleiðandinn Benny Hedlund. Benny er þrítugur en Agnetha sex árum eldri - skiptir engu máli, segja Svíar en sjá samt ástæðu til að skrifa um þá staðreynd. Grannt hefur verið fylgst með Agnethu frá því að hún var í Abba- flokknum, hún nýtur mikillar lýðhylli í Svíþjóð og segja þarlend blöð að landsmenn óski henni til lukku í væntanlegu hjónabandi. Abbastelpan er ástfangin Þeir voru aldrei nægilega ánægðir með fyrri sambýlismanninn sem var lífvörður söng- konunnar og henni á engan hátt samboðinn að þeirra dómi. En Benny hinn nýi hefur sumsé verið samþykktur til handa þessum vinsælasta meðlim Abbahópsins fyrrverandi og ekki er að efast um að fylgst verður náið með samskiptum þeirra hjónaleysa á næs- tunni. Agnetha Fált- skog er nokkr- um árum eldri og þá væntan- lega reyndari. Benny Hedlund er þekktur plötuframleið- andi í Svíþjóð. Aðeins ein Connie Chung sælt að vakna á morgn- ** ó, hve sælt að vakna á morgn- ana! Hún Connie Chung brosir til þín af skerminum af því fréttirnar hjá NBC-sjónvarpsstöðinni í dag eru góðar fréttir. Nei, hún brosir ekki stöðugt, það eru ekki allar fréttir góðar. En þá líka er yfir- bragð hennar heillandi alvörugefið og það er gott að láta þessa hríf- andi konu segja sér hvað gengur á í heiminum, hvort sem það er ják- vætt eða neikvætt. Hún er svo vinsæl að margar aðrar sjónvarps- stöðvar í Bandaríkjunum eru komnar með eftirlíkingar af henni. En.... þó það megi ef til vill finna einhverja ekki ólíka Connie Chung í útliti er alveg vita vonlaust að ætla að finna einhverja með sömu persónutöfrana. Auðvitað - það er nefnilega bara til ein Connie Chung. Connie Chung býður þér góðan daginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.