Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Blaðsíða 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986. 25 Sandkorn Sandkorn Kýrnar á Hvanneyri eru taugaóstyrkar og skapvondar. Stuðmenn létu bíða eftir sér Skagamenn eru ekki hrifnir af óstundvísi hljóm- listarmanna, samkvæmt frásögn Skagablaðsins. Blaðið greinir lesendum sínum frá dansleik, sem hljómsveitin Stuðmenn hélt á hóteli bæjarins ný- verið. Segir blaðið að ekki hafi farið leynt að margir gestanna hafi verið orðnir ansi þreyttir á að bíða eftir goðunum, sem hófu ekki spilamennsku fyrr en klukkan eitt eftir miðnætti þrátt fyrir að dansleikurinn ætti að hefjast klukkan 23. „Fannst mörgum Stuð- menn setja niður við þessa framkomu í garð Skaga- manna,“ segir Skagablað- ið. Reyndar kemur einnig fram í blaðinu að mikil stemmning hafi verið á ballinu. Brennivínið skráð á húsverðina í móttöku í Höfða nýlega, þar sem vel var veitt, flutti Davíð Oddsson borgarstjóri ávarp og minntist á risnu borgarsjóðs. Sagði Davíð að þegar vinstrimenn kom- ust síðast til valda í borg- inni, sem gerðist á 1100 ára fresti að jafnaði, hefði leið- togi vinstrimanna, Sigur- jón Pétursson, farið ofan í risnukostnað fyrri ára en aðeins fundið lágar tölur. Skýringuna á þvi að Sigur- jón fann engar háar tölur sagði Davíð vera þá að aðal- risnan væri alltaf falin undir liðnum „húsverðir og annað“. Það væru auðvitað alltaf húsverðirnir sem væru sendir út til að kaupa brennivínið. Taugaóstyrkar og skap- vondar kýr f svari Jóns Helgasonar landbúnaðarráðherra á Al- þingi við fyrirspurn Ólafs Þórðarsonar alþingis- manns um rikisbú kemur fram að Bændaskólinn á Hvanneyri neyðist árlega til að selja nokkrar mjólk- urkýr þar sem ógerlegt sé að nota þær til kennslu. Ástæðan er sú að kýrnar eru taugaóstyrkar og skap- vondar. f sama svari kemur fram að bændaskólinn hafi uppi áform um að farga öllum holdanautunum. Skagamönn- um kennd stundvísi Hinn nýi þjálfari Skaga- liðsins í knattspyrnu, Englendingurinn Jim Barr- on, kann ýmis ráð við óstundvísi. Þegar knatt- spyrnuliðið var í Reykja- víkurferð á dögunum þótti þjálfaranum einhverjir leikmenn fullseinir út i rútu eftir snæðing. Refsingin var aukaþrekhlaup á næstu æf- ingu. Nokkrum dögum síðar átti varaliðið að keppa æf- ingaleik við Borgnesinga. Þjálfarinn bað leikmenn um að mæta þremur kort- erum fyrir leik. Þeir sem komu eftir það voru hund- skammaðir og einn sem mætti þegar tæpur hálftími var i leik fékk alis ekki að vera með. Skagablaðið seg- ir að enski þjálfarinn sé nú kallaður „Iron man“. Fats Domino gáttaður á viðtökunum Fats Domino og fjórtán manna hljómsveit hans hafa undanfarin kvöld skemmt landsmönnum í veitingahúsinu Broadway við fádæma undirtektir. Hefur gamli rokkarinn sjálfur verið gáttaður á við- tökunum. Gífurleg fagnað- arlæti við upphaf og endi hvers lags. Jafnvel virðu- legustu borgarar hafa hoppað uppi á stólum á tón- leikum Fats Domino. Starfsmenn veitingahúss- ins segjast aldrei hafa séð annað eins. Hafa gestir haft á orði að þær 2.900 krónur, sem aðgöngumiðinn kost- aði, hafi verið vel þess virði. Heilt hverfi sameinast um gervi- hnattadisk Það færist nú í vöxt að nágrannar slái saman í kaup á búnaði til móttöku sjónvarpssendinga frá gervihnöttum. DV hefur greint frá nokkrum dæm- um, svo sem á Patrek'sfirði, í Vestmannaeyjum og (jöl- býlishúsi í Reykjavík. Og frá Akranesi berast þær fréttir að íbúar einbýUs- húsahverfis þar hafi ákveð- ið að sameinast um kaup á gervihnattadiski. Búnaður Skagamanna kostar með öllu um eða innan við 200 þúsund krónur. Þegar búið er að deila honum niður koma um fimm þúsund krónur í hlut hverrar íbúð- ar. Umsjón: Kristján Már Unn- arsson. Kvikmyndir Kvikmyndir BÍÓHÖLLIN - A CHORUS LINE ★ ★ Þar sem samkeppnin er hörð A Chorus Line. Leikstjóri: Richard Attenborough. Handrit: Arnold Schulman eftir samnefnd- um söngleik. Kvikmyndun: Ronnie Taylor. Tónlist Marvin Hamlisch. Dansstjórnandi: Jeffrey Hornaday. Aðalleikarar: Michael Douglas, Michael Blevins og Alyson Reed. A Chorus line er vinsælasta sýning sem sett heíur verið upp á Broad- way. Þar hefiir söngleikurinn gengið síðan 1976 og er ekkert lát á aðsókn- inni. Að ekki sé búið að kvikmynda þennan vinsæla söngleik íyrr er skiljanlegt. A Chorus Line hefúr allt það sem gott Broadway-„show“ þarf að hafa - góða tónlist, dansa sem eru í sér- flokki og þar að auki fjallar leikur- inn um Broadway. Hann gerist í raun á einum eftirmiðdegi þegar verið er að ráða átta dansara úr hundrað sem prófaðir eru. Það gefúr að skilja að erfitt hlýtur að vera koma þessu afmarkaða verki í kvikmyndaform, enda er það svo að þrátt fyrir að öll tæknivinna sé fyrsta flokks, dansararnir frábærir og lögin skemmtileg, þá vantar eitt- hvað líf í kvikmyndina þegar hún er skoðuð í heild. Það er lítið hægt að nota þá óravídd sem kvikmyndaformið býður upp á. A Chorus Line gerist á leiksviði og út fyrir það er ekki farið. Dansaram- ir segja að vísu frá högum sínum og eru mjög persónulegir þegar leik- stjórinn, Zack (Michael Douglas), lætur þau tjá sig í máli til að kanna leikhæfileika þeirra. En líf þeirra snýst um dans og aftur dans og eðli- legt líf kemur ekki til greina fyrr en starfsaldri þeirra lýkur. Þá byrjar lífið, eins og einn dansaranna kemst að orði. 1 byrjun myndarinnar höfum við Dansarnir eru margir hverjir stórkostlegir í A Chorus Line. fjölmarga dansara sem allir gera sér vonir um að verða ráðnir. Sextán eru valdir úr hópnum og þessum sextán er strax gert ljóst að það verða aðeins átta ráðnir. Dansararnir, sem allir eru fi-ábær- ir, vita að það er ekki aðeins danskunnátta þeirra sem ræður úr- slitum um ráðningu, heldur einnig hvemig svör þeirra verða við spum- ingum leikstjórans. Það verða þvi mikil vonbrigði hjá helmingi þeirra um leið og gleðin er mikil hjá þeim sem fá ráðningu í lokin. Inn í þenn- an söguþráð spilar svo persónuleg ástamál leikstjórasns og dansmeyjar einnar sem hafði yfirgefið hann. Söguþráður er ekki mikil svo á einhverju öðru verður myndin að byggja. Það em dansarnir sem hrífa áhorfendur með sér og þeir dansarar sem sýna listir sýnar í myndinni em hreint út sagt stórkostlegir. Söngur- inn aftur á móti, þótt lögin séu ágæt, hægir nokkuð á myndinni og í söng- atriðunum virkar myndin gamal- dags og væmin. Það kom svo sannarlega á óvart þegar Richard Attenborough fékk það verkefni að leikstýra A Chorus Line. Eftir sigur hans og óskarsverð- laun fyrir Gandhi áttu menn von á einhverju öðm viðfangsefni frá þeim ágæta manni. En sjálfsagt hefur hann fundið fyrir einhverri ögrun við að taka að sér leikstjórn á jafn ólíku viðfangsefni og A Chorus Line. Og leikstjómin er ekki illa leyst af hendi. Það er aftur á móti skoðun mín að Attenborough hafi ekki verið rétti maðurinn til að stjóma A Chor- us Line. Dettur mér í raun aðeins einn maður sem hefði getað farið betur með efniviðinn. Það er Bob Fosse, sem auk þess að vera góður leikstjóri er fyrrverandi dansari og þekkir manna best Broadway. Það má þó geta þess að dóttir hans, Nic- ole Fosse, er ein dansara í myndinni. Þrátt fyrir ýmsa vankanta við kvikmyndagerð A Chorus Line má hafa gaman af myndinni og þá sér- staklega dönsunum, en það breytir því ekki að A Chorus Line er fyrst og fremst sviðsverk og frábært sem sh"kL Hilmar Karlsson. k'k'k'k Frábær kkk Góð kk Miðlungs k Léleg 0 Afleit Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á kortið. Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar og ganga frá öliu í sama simtali. Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,- Smáauglýsingadeildin verður opin miðvikudag- inn 23. apríl til kl. 22.00. Lokað verður fimmtudag- inn 24. apríl. Smáauglýsingar, sem birt- asteiga í blaðinu föstu- daginn 25. apríl, þurfa að berast fyrir kl. 22 miðviku- Gleðilegt sumar! Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Norðurnesi 49, Möðruvöllum I, Kjósarhreppi, þingl. eign Stefáns Bjarnasonar og Benedikts Þórðarsonar, fer fram á eign- inni sjálfri föstudaginn 25. apríl 1986, kl. 17.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 95., 98. og 99. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eign- inni Efstalundi 8, Garðakaupstað, þingl. eign Steinunnar H. Gunnarsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði og Gjaldheimtunnar í Garða- kaupstað á eigninni sjálfri föstudaginn 25. apríl 1986, kl. 14.15. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Markarflöt 35, Garðakaupstað, þingl. eign Pét- urs Ó. Þorsteinssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 25. april 1986, kl. 14.45. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Bugðutanga 9, Mosfellshreppi, þingl. eign Lárus- ar Eiríkssonar, ferfram á eigninni sjálfri föstudaginn 25. april 1986, kl. 16.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 55., 66. og 72. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign- inni Áslandi 18, Mosfellshreppi, þingl. eign Jóhanns Guðjónssonar, fer fram eftir kröfu Skúla J. Pálmasonar hrl„ Jóhanns H. Níelssonar hrl„ Veðdeildar Landsbanka íslands og Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudag- inn 25. apríl 1986, kl. 16.15. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.