Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Page 10
10
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Útlönd
Konungdæmið á örugga
framtíð fyrir höndum
- segir KaH Gústav 16. Svíakonungur sem verður fertugur á morgun
drottning jafiian hafiiað í öðru sæti,
aðeins Astrid Lindgren, bamabóka-
höfundurinn heimskunni, nýtur
meiri vinsælda.
Sylvía þykir mjög glæsileg í allri
framkomu og kann vel að koma fyr-
ir sig orði. Er það raunar oftsinnis
hún er hefur orð fyrir þeim hjónum
í sjónvarpsviðtölum.
Varð krónprins eins
árs gamall
Karl Gústav hafði ekki náð eins
árs aldri er hann varð skyndilega
krónprins er faðir hans fórst í flug-
slysi á Kastrupflugvelli árið 1947.
En Bemadottamir sænsku em yfir-
leitt langlífir. Þar eð afinn, Gústav
fimmti, varð 91 árs, þurfti Karl
Gústav ekki að taka við embætti
fyrr en árið 1973, þá orðinn 27 ára
gamall.
Þá hafði hann enn ekki fest ráð
sitt. Sænskir fjölmiðlar höfðu þó tek-
ið af öll tvímæli um að konungurinn
ungi hefði ekkert á móti kvenfólki,
stöðugar fréttir vom af kvennamál-
um hans.
Hann hitti Sylvíu fyrst á ólympíu-
leikunum 1972 og það varð að hans
sögn ást við fyrstu sýn. Það var þó
ekki fyrr en árið 1975 sem þau gengu
í hjónaband og létti þá sænsku þjóð-
inni mjög.
Karl Gústav segist sannfærður um
að konungdæmið eigi framtíð fyrir
sér: „það er mögulegt að formið
breytist eitthvað, það hefur það
raunar gert á þeim tíma sem ég hef
gegnt embættinu".
A þeím 13 árum er Karl Gústav
hefur gegnt embætti hefur hann far-
ið í opinberar heimsóknir til 30
þjóðríkja. Eitthvert sænsku blað-
anna sagði að þar mætti konungur-
inn þó auka á ferðagleðina, því ef
hann yrði í embætti 63 ár, eins og
búast mætti við, og heimsækti ekki
nema tvö lönd á ári að meðaltali,
yrðu þetta ekki nema 130 lönd, og
það nægði ekki til að heimsækja öll
ríki veraldar er nú telur um 170 sjálf-
stæð þjóðríki.
í tilefrú dagsins heldur konungur-
inn boð fyrir um 300 gesti í Drottn-
ingholm höll.Það eru fyrst og fremst
nánustu vinir sem boðnir eru, en
einnig talsvert af útlendum gestum,
mörgum konungbomum.
Fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn er Karl Gústav tók á móti eftir að hann tók
við konungsembætti árið 1973 var þáverandi forseti íslands, dr. Kristján Eld-
jám. Hér sést Svíakonungur taka á móti Kristjáni á Arlandaflugvelli í
september 1973.
Karl Gústav fyllir bensíntankinn á fjölskyldubílnum í miðborg Stokkhólms. Konungurinn þykir nokkur áhugamað-
ur um hraðskreiðar bifreiðir og sést oftsinnis á íþróttamótum bifreiðaáhugamanna.
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV i Lundi:
Það væri ekki rétt að halda því
fram að Karl Gústav 16. Svíakon-
ungur sé allra konunga mestur
skörungur eða ræðumaður. Því hef-
ur heldur enginn haldið fram.
Hann virðist oft heldur óömggur
í framkomu og er ekki alltaf sérstak-
lega orðheppinn. Hann er ekki
heldur talinn vera neinn afburða
gáfumaður og fékk aldrei nema
miðlungseinkunnir í skóla, þótt
stúdentsprófi lyki hann á réttum
tíma, og síðar hefur hann meira að
segja hlotið heiðursdoktorsnafhbót.
80 prósent fylgjandi
konungdæminu
Karl Gústav á fertugsafmæli á
morgun og af þeim sökum hafa sæn-
skir fjölmiðlar undanfama daga
beint kastljósinu að honum í óvenju-
ríkum mæli, og ævi hans hefur verið
rifjuð upp í máli og myndum.
Þrátt fyrir það sem sagt var hér
að ofan og draga mætti saman í þá
fullyrðingu að Karl Gústav þyki alls
ekki eins og sniðinn i konungsem-
bættið, þá hefur hann þó ætíð notið
velvildar þjóðar sinnar og vinsælda.
„Flestir hafa gert sér grein fyrir
því að ég inni af hendi þýðingarmik-
ið starf fyrir Svíþjóð,“ sagði konung-
urinn í viðtali um helgina í tilefni
fertugsafmælisins. Kannanir sýna
líka að 80 prósent sænsku þjóðarinn-
ar eru fylgjandi konungdæminu og
verður það að teljast há tala, ekki
síst ef tekið er tillit ti! hinnar sterku
stöðu sósíalísku flokkanna sem hafa
að jafnaði haf't um og yfir 50 prósent
fylgi á meðal sænskra kjósenda.
Þaðan hefði mátt búast við andstöðu
og margir af forystumönnum jafhað-
armannaflokksins hafa verið og eru,
að minnsta kosti af hugsjón, á móti
konungdæminu. Má í þeim hópi
nefha bæði Olof Palme og Ingvar
Carlsson, en þeir hafa þó ekki á síð-
ari árum beitt sér fyrir afiiámi
konungdæmisins.
Á ekki að skipta sér af
stjómmálum
Karl Gústav konungur hefur jafii-
an átt góð samskipti við þær ríkis-
stjómir sem hafa verið við völd á
hverjum tíma, hvort sem það hafa
Svíum þótti tími til kominn að Karl Gústav festi ráð sitt er hann gekk að
eiga Sylvíu Sommerlath árið 1975. Sylvía þykir glæsikona og eru Sviar stolt-
ir af drqítningu sinni.
verið borgaralegar stjómir eða
stjómir jafhaðarmanna.
Hann hefur oft ítrekað þá skoðun
sína að konungurinn eigi samkvæmt
stjómarskránni ekki að skipta sér
af stjómmálum. „Það væri rangt af
mér að tjá mig um stjómmál, það
hlyti að leiða til árekstra við stóra
hópa í samfélaginu," segir konung-
urinn.
Þetta atriði á vafalaust sinn þátt
í því að mörgum finnst hann skoð-
analaus um flesta hluti. Er í þeim
efnum auðvelt að taka undir með
Jan Myrdal, hinum kunna rithöf-
undi Svía, er segist vorkenna
konunginum, hann sé í vortlausri
aðstöðu.
Þessari aðstöðu má lýsa þannig
að tjái konungurinn sig um eitthvað
af umræðumálum líðandi stundar,
eða deilumálum, þá er hann yfirleitt
talinn vera að fara út fyrir starfssvið
sitt. En komi hann sér hjá því að
svara spumingum um slík efhi er
hann talinn skoðanalaus og jafnvel
heimskur.
Sem dæmi um þetta má nefna þeg-
ar konunginum varð á að tjá sig um
sífellt deilumál hér, það er hvort
gefa skuli einkunnir í grunnskólun-
um.
Konungurinn taldi tvímælalaust
að einkunnir ættu rétt á sér. Varla
getur sú spuming talist mjög pólit-
ísk, en engu að síður fékk kóngur
að heyra það úr ýmsum áttum að
hann hefði farið út fyrir verksvið
sitt og einhverjir fjölmiðlanna gátu
ekki stillt sig um að minna á að sjálf-
ur hefði Karl Gústav aldrei fengið
svo merkilegar einkunnir í skóla og
því væri vandséð hvers vegna hon-
um væri eftirsjá í einkunnagjöf.
Gagnlegt að vakna af
Þyrnirósarsvefni
í heild er óhætt að segja að Karl
Gústav hafi tekist vel að gegna þessu
erfiða embætti. Ekki er heldur ótrú- ■
legt að hann hafi áunnið sér virð-
ingu margra er hann talaði við útför
Olofs Palme og braut þar með blað
í sögu sænska konungdæmisins „þó
að það sé hræðilegt að segja það þá
var það gagnlegt fyrir okkur öll að
vakna upp af Þymirósarsvefhinum
og sjá að við erum ekki einangruð
þjóð, við höfum búið við falskt ör-
yggi,“ segir hann nú um afleiðingar
morðsins á Palme.
Konungur segist hafa litið á það
sem mikinn heiður er forystumenn
jafhaðarmannaflokksins báðu hann
að tala við útför Palme. Þar lýsti
hann því meðal annars að hann og
UMSJÓN:
HANNES
HEIMISSON
Palme hefðu með árunum orðið nán-
ir vinir.
Makavalið heppnaöist vel
Annars er erfitt að benda á eitt-
hvað ákveðið í starfi Karls Gústavs
konungs sem hafi heppnast sérstak-
lega vel eða illa. Starfið er einfald-
lega þannig að ekki reynir mikið á
frumkvæði hans. Eitt eru þó flestir
sammála um að honum hafi tekist
vel og það er makavalið.
Njóti Karl Gústav vinsælda þá er
í enn ríkari mæli hægt að segja það
um Sylvíu drottningu. í árlegu vali
á konu ársins í Svíþjóð hefur Sylvía