Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Qupperneq 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRlL 1986.
15
Lesendur
Lesendur
Lesendur
\janhr píf Ó/P
Þsrftc/ ad x(ia bt
SMA-AUGLYSING I DV GETUR LEYST VANDANN
Smáauglýsingadeild
sími 27022.
„Illgresi, sem smýg-
ur þar inn,
sem síst skyldi“
Anna Sigurðardóttir skrifar:
Hinn 1. deseraber sl. var haldin ráð-
stefiia í Þjóðleikhúsinu um íslenska
tungu. Þar fluttu margir erindi - mest
almennar vangaveltur en tóku lítt til
meðferðar ákveðin atriði þessa máls.
Síðar birtust erindi þessi í Morgun-
blaðinu 8. janúar.
Einn ræðumanna, Barði Friðriks-
son, skar sig þó úr. Kallaði hann erindi
sitt: „Illgresi, sem smýgur þar inn, sem
síst skyldi." Hér átti hann við ofnotk-
un og misnotkun viðskeytts greinis í
íslensku máli og nefndi þar til ýmis
herfileg dæmi, m.a. úr opinberum fjöl-
miðlum. Þá rifjaðist upp, mér til
mikillar fúrðu, að ég hafði aldrei heyrt
neinn af kennurum mínum í skólum
fjalla um þennan veigamikla þátt í
meðferð móðurmáls okkar. Jafiiframt
skynjaði ég hvílíkur vágestur við-
skeyttur greinir getur stundum reynst.
Fannst mér ég læra meira af þessu
stutta erindi Barða en á margra mán-
aða kennslu í skólum - oft fánýtt eða
lítt uppbyggilegt stagl varðandi ís-
lenskt mál. Mér er tjáð að opinberlega
hafi vart verið fjallað um viðskeyttan
greini, ef undan er skilin grein Jóns
Á. Gissurarsonar í Mbl. 12. apríl 1975.
Þar gagnrýnir hann opinbera fjöl-
miðla allhvasst - en þó fyllilega
maklega að mínum dómi.
Fannst mér ég læra meira af þessu
stutta erindi Barða en á margra mán-
aða kennslu í skólum.
Áfram
Agnes!
Vinstri maður skrifar:
Mér finnst nú alger óþarfi að vera
að krossfesta hana Agnesi fyrir þætt-
ina Á líðandi stundu. Agnes hefur
bein í nefinu og heilmikinn húmor
plús öiyggi sem til dæmis Sigmundur
Emir getur ekki státað af. Að vísu
fannst mér Agnes vera nokkuð hörð
við Þjóðviljaritstjórann, en það kemur
á móti að hann hefur munnirm fyrir
neðan nefið og er frekjan í blóð borin,
var enda fullkomlega fær um að verja
sig sjálfúr; minnir mig stundum á viss-
an mann í borgarstjóm!
Sem sagt: Áfram Agnes, láttu ekki
deigan síga, það dugar ekkert nema
harkan á þessa karla!
„Að vísu fannst mér Agnes vera nokk-
uð hörð við Þjóðviljaritstjórann en það
kemur á móti að hann hefur munninn
fyrir neðan nefið.“
■ - v--. >. v--■^■:*.
Rauðar sprengjur
og bláar
A.Þ.Þ. skrifar:
Friðarhreyfingar á íslandi bmgðust
hart við eftir fréttir af nokkurra
klukkustunda hiyggilegri árás á Lýb-
íu. Nú rignir sprengjum og byssukúl-
um á andspymumenn í Afganistan,
mannfall er mikið, bændur konur og
böm fómarlömb, læknishjálp, lyf og
matur af skomum skammti handa
þeim. Friðarhreyfingar á íslandi, ég
heyri ekkert í ykkur núna, er ekki
sama af hvaða lit sprengjumar em?
Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður
færð á kortið.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu j sama símtali.
Hámark kortaúttektar i sima er kr. 2.050,-
Hafið tilbúið:
/Nafn - heimilisfang - síma - nafnnúmer -kortnúmerN
og gildistima og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
MF50HX ELITE
KYNNING
MP
Massey Ferguson
Kynnum nýju M.F. hjólagröfurnar í dag og á
morgun við nýja verkfræðingahúsið - gegnt
Hótel Esju.
Kl. 17.30-18.30 þriðjudag 29. apríl.
Kl. 17.30-18.30 miðvikudag 30. apríl.
Mr. Richard Ghent frá Massey Ferguson sýnir vélina
í notkun.
Komið og kynnist MF 50 HX - 80 hestafla - 4x4.
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
fasteign v/Flatahraun, Hafnarfirði, þingl. eign Knattspymufélagsins Hauka,
fer fram eftir kröfu Innheimtu nkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 2. maí
1986 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Dalshrauni 9, hluta, Hafnarfirði, þingl. eign Hilmars Sigurþórssonar,
fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs og Brunaþótafélags Íslands á eigninni sjálfri
föstudaginn 2. maí 1986 kl. 14.00.
Baejarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögþirtingaþlaðsins 1985 á
eigninni Drangahrauni 2, eystri hluta, Hafnarfirði, þingl. eign Leysis hf„ fer
fram eftir kröfu Guðjóns Steingrimssonar hri., iðnlánasjóðs, Brunabótafélags
islands og Ara isberg hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 2. maí 1986 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Drangahrauni 6, hluta, Hafnarfirði, þingl. eign Valgarðs Reinharðs-
sonar, fer fram eftir kröfu Guðmundar Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 2. maí 1986 kl. 14.30.
_______________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.