Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1986, Síða 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Gitte
Nielsen
á alltaf síöasta orðið í orðasenn-
um við eiginmanninn, Sly Stall-
one. Kunningjar segja hana
hæstánægða með hlutverkið sem
eiginkona leikarans en þó vanti
punktinn yfir i-ið - barn. Gitte varð
að skiija son sinn eftir í umsjá
fyrri eiginmanns þegar hún yiirgaf
fyrra lif til þess að taka saman
við Sly og saknar þess sárt að
vera ekki lengur í móðurhlut-
verki. Talið er líkiegt að barn verði
fljótlega á leiðinni því þessi
danski kvenskörungur muni ráða
stefnunni í þeim málum, sem og
* öðru i hjónabandinu.
Renée Toft
Simonsen
er i sjöunda himni yfir kærastan-
um, John Taylor í Duran Duran.
Hann fær þá einkunn að vera
besti elskhugi sem hún hefur
kynnst, þrátt fyrir stóra leyndar-
málið sem enginn má komast að
- John er strax kominn með ístru
og verður því að ganga í viðum
skyrtum til þess að hylja sköpu-
lagið.
Springsteen
heldur tast í buxnastrenginn. Fírn-
um var boðin formúa fyrir aö
hneppa frá og lækka strenginn
aðeins en neitaði ennþá, harðán-
ægður og hreykinn vegna auð-
sýnds áhuga. Það var timaritið
Playgirl sem sýndi þennan ein-
læga áhuga á Springsteen -
neðan mittis - og eru ritstjórnar-
meðlimir bitrir yfir að söngvarinn
skuli hafa fjárhagslegt bolmagn
til þess að neita sliku kostaboði.
Boy George
skemmti ser hið besta á nætur-
klúbb á Manhattan um daginn.
Þegar leið á nóttina bauð hann
kvenmanni með sér heim í lúxus-
ibúðina sína. Þar lá eiskhugi Boys
- Marilyn - allsnakinn á rúminu
en sofandi kvenmannsbúkur á
gólfinu. Hvert sem litið var voru
tómar flöskur og hálfétnir ham-
borgarar. „Nött með Boy George
er ógleymanleg reynsla", stundi
skvísan daginn eftir, og það er
varla ástæða til að rengja hana.
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri:
lcosin í Sj allanum
Gígja Birgisdóttir, átján ára Akur-
eyrarmær, var kosin ungfrú Akur-
eyri við miklar dýrðir og gífurleg
fagnaðarlæti í Sjallanum á Akureyri
skömmu eftir miðnætti síðastliðið
miðvikudagskvöld, eða á fyrstu mín-
útum nýs sumars. Sex stúlkur tóku
þátt í keppninni. Helga Björg Jónas-
dóttir var kosin ljósmyndafyrirsætan
og vinsælasta stúlkan (valin af stúlk-
unum sjálfum).
Vel var staðið að fegurðarkvöldinu
í Sjallanum. Dagskráin hófst með
fordrykk klukkan hálfátta. Undir
glæsilegu horðhaldi lék strengjasveit
sem sett var sérstaklega saman í til-
efni kvöldsins. Nýr dans frá dans-
stúdíói Alice á Akureyri var
frumsýndur og tískusýning kom í
kjölfarið. Hápunktur kvöldsins var
svo auðvitað kjörið á ungffú Akur-
eyri.
Það voru blóm í barminn þegar inn var komið.
Helga Björg Jónasdóttir var kosin ljósmyndafyrirsætan og vinsælasta stúlkan.
Létt í lund eftir kosninguna: ungfrú Akureyri með Ólafi Laufdal, formanni
dómnefndar, og Sigurði Þ. Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Sjallans, en hann
átti sæti i dómnefnd.
Gígja Birgisdóttir, átján ára, heilsaði nýju sumri í Sjallanum með titlinum
ungfrú Akureyri.
Kvöldið hófst með fordrykk sem allir gestir fengu.
Nína Ósk sló metiö
Áður hefur komið fram hér á síð-
um Sviðsljóssins að íslensk
smáböm eru alveg með afbrigðum
fótviss. Sífellt berast fleiri dæmi,
eins og frá Nínu Sveinsdóttur í
Sandgerði sem sendi okkur með-
fylgjandi mynd. Hún segir:
„Eg get ekki á mér setið lengur
þegar ég sé allar þessar bama-
myndir í Sviðsljósinu þar sem börn
standa í lófa. Sjálf hef ég leikið
mér að því að láta böm standa í
lófa frá því að ég var unglingur.
Síðan miðaði ég að því að dætur
mínar stæðu í lófa þriggja mánaða
- eins bamabörnin. En þessi litla
Nína Ósk, sem myndin er af, sló
metið. Hún er aðeins tveggja og
hálfs mánaðar þar sem hún stendur
í lófa föður síns, Kristins Kristins-
sonar.“
m------------------►
Sú stutta í lófa föður síns, Kristins
Kristinssonar.