Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Page 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986. 11 Menning Menning Menning Menning TARTUFFE Höfundur: Moliére Þýöing: Karl Guðmundsson Leikstjóri: Radu Penciulescu Aðstoðarleikstjóri: Þórunn Sigurðardóttir Leikmynd: Grétar Reynisson Lýsing: David Walters Búningar: Grétar Reynisson, Anna Jóna Jónsdóttir, Alda Sigurðardóttir Skósmíði: Aðalheiður Sveinbjömsdóttir Lokaverkefai 4. bekkjar- Leiklistar- skóla íslands í ár er leikritið Tartuffe eftir Moliére og var það frumsýnt sl. fbstudag í Lindarbæ. Þeir sex nemendur LÍ, sem nú hafa bæst í hóp íslenskra leikara, eru: Bryndís Petra Bragadóttir, Eiríkur Guðmundsson, Guðbjörg Þórisdóttir, Inga Hildur Haraldsdóttir, Skúli Gautason og Valdimar Öm Flygen- ring. Þau taka að sjálfsögðu öll þátt í sýningunni, auk nokkurra nemenda úr 3. bekk og tveggja gestaleikara, þeirra Sigríðar Hagalín og Þorsteins Gunnarssonar. Tartuffe hefúr ekki fyrr verið leikinn á sviði hér á landi þó að þetta sé það verk Moliéres, sem hvað þekktast er og oftast sýnt. Leikritið var flutt í út- varpi árið 1946 í þýðingu Boga Ólafs- sonar sem þýddi textann í óbundnu máli. En sú þýðing, sem notuð er hér í sýningu Nemendaleikhússins, er ný af nálinni og sætir tíðindum, svo vel er hún gerð. Sá sem tókst á við tex- tann og sneri honum í bundið mál er Karl Guðmundsson og hefúr honum tekist að halda formi frumtextans og jafnframt að flytja áheyrendum inntak hans á góðu og kröftugu máli. Ekki er að efa að glíman við textann hefúr verið ströng, en segja má að leik- endur hafi þar góðan sigur. Framsögn er í flestum tilfellum með ágætum, og tyrfinn textinn verður oft næsta lipur í meðförum flytjenda. Þetta þriðja og síðasta verkefai leik- ársins myndar gott mótvægi við hin fyrri tvö, Rauðhærða riddarann, sem var harkalegt nútímaverk, og Ó muna tíð, frumsamið verk eftir Þórarin Eld- jám, í stíl vísindaskáldsagna. Tartuffe er sígildur gamanleikur með ádeiluívafi. Moliére sýnir okkur í leiknum mynd af franskri fjölskyldu og því umróti sem gesturinn, Tartuffe (hræsnarinn, undirhyggjumaðunnn), veldur. Náunga þessum tekst með fögru og guðrækilegu tali að slá svo ryki í augu heimilisföðurins, Orgons, að hann vill allt fyrir svo sannheilagan mann gera; gefa honum allar eigm- sínar, hvað þá annað. En sá hængur er á að undir yfirborði helgislepjunnar Leiklist AUÐUR EYDAL býr lífsnautnamaður sem hyggst not- færa sér tökin á Orgon út í ystu æsar. I leikritinu kemur fram góð aldarfars- lýsing og höfundur sendir jafúframt hvöss skeyti til klerkastéttarinnar sem með trúarofstæki vildi ráðskast með daglegt líf fólks en var sjálf uppfull af skinhelgi og fégræðgi. Þeir tóku líka til sín skeytin sem áttu þau og það var ekki fyrr en eftir nokkrar umritanir og fimm ára þras sem leikri- tið fékkst sýnt án þess að það væri umsvifalaust bannað, eins og áður hafði verið. En frá árinu 1669 hefúr Tartuffe notið stöðugra vinsælda og verið sýndur ótal sinnum. Og galdur textans nær sannarlega til okkar enn í dag. Sviðsmyndin í Lindarbæ er einföld, leikið er í opnu rými á gólfi fyrir miðju salar og áhorfendur sitja síðan á þrjá vegu í kring. Leikstjóri er Rúmeninn Radu Penciulescu sem búsettur er í Svíþjóð. Hann kemur hingað fyrir til- stilli Norrænu leiklistamefadarinnar. Aðstoðarleikstjóri er Þómnn Sigurð- ardóttir, og ber sýningin þess merki að vel og markvisst hefúr verið unnið með hinum ungu leikendum. Valdimar Öm Flygenring leikur heimilisföðurinn, hinn auðtrúa Orgon, og gerir um margt vel. Honum tekst á stundum mætavel að sýna hrekk- leysi hans og trúgimi, en hlutverkið Smáauglýsingadeild DV, Þverholti 11, sími 27022, verður opin miðvikudaginn 7. maí til kl. 22. Lokað verður fimmtudag- inn 8. maí. Smáauglýsingar sem birtast eiga í blaðinu föstudaginn 9. maí þurfa að berast fyrir kl. 22 miðvikudag- inn 7. maí. er flókið, því að á hinn bóginn er Org- on höfuð fjölskyldunnar og orð hans em lög, þannig að persónan hefúr margar hliðar. Þama þarf Valdimar líka að leika langt fram fyrir sjálfan sig í aldri. Mér fannst, sem fyrr segir, hann ná ágætum tökum á hlutverkinu og samleikur hans og kvennanna ráðagóðu var prýðilegur. Samskipti þeirra Tartuffes og Org- ons vom heldur stirðlegri. Sjálfur Tartuffe er leikinn af Skúla Gautasyni. Þessi lævísi og útsmogni náungi sýnir á sér ýmsar hliðar - hann er ýmist guðræknin uppmáluð eða versti flagari sem reynir að forfæra eiginkonu Orgons. „Synd er engin synd, ef syndgað er með leynd,“ segir hann. Skúli er mátulega „demonskur" í útliti og nær góðum töktum í hlut- verkinu. Eiginkona Orgons, Elmíra, er leikin af Ingu Hildi Haraldsdóttur. Hún er glæsileg og sett og gaman er að sam- leik þeirra Skúla þegar hún teflir á tæpasta vað til þess að koma upp um svikarann. Bryndís Petra Bragadóttir var prýði- leg sem þjónustustúlkan bráðhressa, Dorin, sem brýst út úr venjubundnu hlutverki hjúsins og leggur orð í belg þegar henni sjálfii þóknast. Guðbjörg Þórisdóttir leikur af látleysi hlutverk Mariann, dótturinnar á heimilinu, sem er alin upp við það að hlýða beri skil- yrðislaust því sem pabbi segir. Mál- pípa höfundar, mágurinn Kliant, er leikinn af Eiríki Guðmundssyni, sem leikur hlutverkið af hófstillingu og sýnir góðgjaman mann, rödd skyn- seminnar. Þórarinn Eyfjörð, nemandi í 3. bekk, leikur soninn Damís og von- biðillinn Valer er leikinn af Hjálmari Hjálmarssyni, einnig úr 3. bekk. Þeir gera báðir ágætlega. Smærri hlutverk eru leikin af bekkjarfélögum þeirra. Þá koma, sem fyrr er sagt, tveir þaul- reyndir leikarar neðan úr Iðnó til liðs við útskriftarhópinn, þau Sigríður Hagalín, sem leikur Madame Pemelle, og Þorsteinn Gunnarsson sem leikur Offisér. Vemlegur fengur er í þátttöku þeirra. Búningar em ágætlega hannaðir í góðum litum, en úr heldur leiðinlegu efni, að minnsta kosti í því návígi sem er í Lindarbæ. Prýðilega gerðir, sér- hannaðir skór vöktu athygli. Hinum nýútskrifúðu leikurum er óskað til hamingju með áfangann og velfamaðar í firamtíðinni. AE Skúli Gautason og Valdimar Flygenring i hlutverkum sinum í Tartuffe. NYTT — NYTT — NYTT fabard SKORDÝRAPENNI Heldur skordýrum í burtu Notast ems og filt penni. Boríð á rúðuna (opnanleg fög), kringum brúnir á ruslafötum og á aðra staði, sem laða að sér flugur eða skordýr. FÆST Á ÖLLUM HELSTU SHELL-STÖÐUM OG í FJÖLDA VERSLANA UM LAND ALLT. Smávörudeild, simi 681722. Skeljungur h.f.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.