Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Side 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþról Góðurtími Aðalsteins -Í300mhlaupi Aðalsteinn Bernharðsson, KR, náði góðura tíma í 300 m hlaupi á innan- fclagsmóti ÍR á iaugardag, hljóp á 35.2 sek. Það er hans besti árangur á vegalengdinni en íslandsmet Odds Sígurðssonar, KR, er 34,0 sek. Jó- hann JóhannssonJR, varð annar á 36.2 sek. Það er hans besta i 100 m. Oddný ÁrnadóttirjR, hl'óp vega- lengdina á 40,7 sek. ÓU/hsím. Akureyrar-Þór vann í Eyjum Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni ; DV á Akureyri. Fyrstu deildar lið IBV og Þórs, Akureyri, léku æfmgaleik í Vest- mannaeyjum á laugardag. Akur- eyrarliðið sigraði, 3 2, og mörk þess skoruðu Óskar Gunnarsson, Bjarni Sveinbjörnsson og Kristján Kristj- ánsson. hsím L V v sBjg mmmmmBmmrnmmmmmmimmmmmmimmmmmmmimmmiímtmmmmmmmmm Firmakeppni í borðtennis Firmakeppni Borðtennissambands íslands verður háð á uppstigningar- dag, 8.maí. Kcppt verður i 2ja manna liðum. Þátttökutilkynningar þurfa að berast sem fyrst í síma 651366 eða 23380. KAsigraðiá Akureyri Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni DV á Akureyri. KA sigraði í bikarkeppni Knatt- spymuráðs Akureyrar, sem nýlega er lokið. Sigraði Þór, 3-2, í úrslitaleik keppninnar. Fjögur lið tóku þátt í henni, KA, Þór og Vaskur, Akureyri, og Magni frá Grenivík. Auk sigursins á Þór vann KA Vask. 5-0, og Magna, 5-0. Þór vann Magna, 10-0, og Vask, 4-1. Vaskur sigraði Magna, 2-0. hsím Sveinamet í stangarstökki Þorsteinn Magnússon, KR, setti í síðustu víku sveinamet í stangar- stökki á innanfélagsmóti KR. Stökk 3,61 m. Bætti sveinamet sitt um 11 sm frá þvi í vetur. Marinó Alberts- son, KR, sem er 17 ára, stökk 1,81 metra í hástökki. ÓU. Stórkostieg spilamennska Greg Normans - á PGA-mótinu í Las Vegas „Ég var á timabili farinn að hugsa um það hvort mér myndi takast að leika á 30 höggum undir pari. Ég pútt- apði mjög vel og það gaf mér mikið sjálfstraust,“ sagði Ástraliumaðurinn Greg Norman eftir að hann hafði tryggt sér glæsilegan sigur á PGA- golfmóti atvinnumanna í Las Vegas í gær. Leiknar voru samtals 90 holur og Norman lék á 333 höggum sem er 27 höggum undir pari vallarins. Þessi stórkostlega spilamennska Normans gaf honum rúmlega 8 milljónir króna í aðra hönd. Greg Norman hefur ekki unnið stór- mót í golfi siðan 1984 en ávallt verið í fremstu röð. Og á mótinu í Las Veg- as sannaði hann að hann er einn snjallasti kylfingur heims. „Ég var virkilega hissa“ Litlu munaði að Greg Norman tæk- ist að setja nýtt met hjá atvinnumönn- um í 'PGA-keppnunum með þvi að leika á sem flestum höggum undir pari vallarins. Norman fór með mögu leikann er hann þrípúttaði 17. grínið og var mikið hissa á eftir: „Ég var virkilega hissa. Ég vissi að ég væri við það að setja nýtt met. I raun og veru var ég að hugsa um að reyna að leika á 30 höggum undir pari vallarins samanlagt," sagði Norman eftir keppnina. Hann lék fyrsta daginn á 73 höggum og var þá mjög aftarlega á merinni. Síðan fór að ganga betur, 63 högg annan daginn, 68 þriðja dag- inn, 64 högg fjórða daginn og síðasta keppnisdaginn lék hann á 65 höggum eða samtals á 333 höggum. Næstu menn háðu harða baráttu um næstu sæti en þeir voru þó langt frá árangri Greg Normans. Bandaríkja- maðurinn Dan Pohl lék á 340 höggum og fékk tæpar 5 milljónir króna í sinn hlut. Loks komu þeir Steve Pate og Laarry Nelson Bandaríkjunum á 341 höggi og fengu um 2,5 milljónir hvor. Tom Watson á 344 höggum Margir þekktir kylftngar fóru nokk- uð halloka á þessu mikla peningamóti hvort sem seðlabunkamir hafa haft einhver áhrif á frammistöðu þeirra eða ekki. Til að mynda lék hinn þekkti Tom Watson frá Bandaríkjunum á „aðeins“ 344 höggum og byrjaði illa eins og raunar Greg Norman er hann lék á 73 höggum. Hal Sutton var á 344 höggum og þeir Fred Couples og Jay Haas á 345 höggum. -SK Greg Norman spilaði stórkostlegt golf í Las Vegas og fór heim með rúmar átta milljónir i vasanum. Gdansk sigraði meistara Sabac Wybrzeze Gdansk, Póllandi, sigraði Evrópumeistara Metaloplastica Sabac, Júgóslaviu, 29-24(11-11), i fyrri leik liðanna i úrslitum Evrópubikars- ins i handknattleik í Póllandi á sunnudag. Mörk Wybrzeze skoruðu Daniel Waszkiewicz 9, Andrzej Maluszki- ewicz 8, Bogdan Wenta 7, Zbigniew Plechoc 3 og Zbigniew Urbanowicz 2. Mörk júgóslavneska liðsins skoruðu Veselin Vujovic 10, Zlatko Portner 6, Milo Isakovic 3, Veselin Vutovic 2, Jasmir Mrkonia 2 og Slob Vuc- manovski 1. hsím Björgólfur Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins, leggur á ráðin með leik og Jóni Árnasyni. Norðurlandamót karia hefst í Dig Norðurlandamót karla í blaki, mesti viðburður í sögu íþróttarinnar hérlendis, hefst í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi klukkan 15 á uppstigningardag, með leik íslands og Noregs. Mótinu lýkur á laugardag með úrslitaleik um fyrsta sætið sem hefst klukkan 17. Fyrsta Norðurlandamót í blaki var haldið árið 1962. Hefur það síðan farið fram annað hvert ár. Mótið nú er það þrettánda frá upphafi en það sjöunda sem íslendingar taka þátt í. Finnar verða að teljast sigur- stranglegastir. Þeir hafa sigrað á öllum Norðurlandamótunum hingað til. Frá árinu 1970 hafa Svíar hreppt annað sæti og Danir þriðja. Norðmenn og íslendingar hófu þátttöku árið 1974. Fjórða sæti hefur ávallt verið hlutskipti Norðmanna og fimmta sæti íslendinga. Færey- ingar voru fyrst með árið 1984 og höfnuðu þá í sjötta sæti. Risar í finnska liðinu Finnar tefla fram langreyndasta liðinu. Þeir mæta með leikjahæsta mann mótsins, hinn 32 ára gamla Pekka Toppari, sem á að baki 250 landsleiki. Tveir aðrir finnsku leik- mannanna hafa leikið yfir eitt hundrað landsleiki en enginn leik- maður hinna þjóðanna. Blaklandsliðið: Guðmundur E. leikjahæstur Leifur Harðarson - 34 landsleikir. Þróttararnir Guðmundur E. Páls- son og Leifur Harðarson eru reynd- ustu leikmenn íslenska landsliðsins í blaki. Norðurlandamótið hefst í Kópavogi á fimmtudag, uppstigning- ardag, klukkan 15. Guðmundur, sem er 34 ára gamall og elstur islensku leikmannanna, á að baki 46 landsleiki. Leifur, sem er 29 ára, hefur leikið 34 landsleiki. Reyndar hefur enginn Islendingur leikið eins marga blaklandsleiki og Guðmundur í þau tólf ár sem liðin eru frá fyrsta landsleik íslands í þess- ari íþrótt. Næstur Guðmundi kemur Gunnar Árnason, með 40 landsleiki, en Leifur er í þriðja sæti og nær Gunnari væntanlega um helgina. Gunnar gaf síðast kost á sér í lands- lið árið 1983. Þrír aðrir Þróttarar koma næstir Guðmundi og Leifi hvað leikreynslu íslenska liðsins snertir. Þeir Lárents- ínus Ágústsson og Jón Árnason hafa hvor leikið fjórtán sinnum með landsliðinu og Sveinn Hreinsson ell- efu sinnum. Þorvarður Sigfússon, ÍS, á að baki sex landsleiki, Haukur Valtýsson, ÍS, og Ástvaldur J. Arthúrsson, HSK, þrjá landsleiki hvor en fjórir leik- menn leika nú í fyrsta sinn með landsliðinu, þeir Páll Svansson, ÍS, Einar Hilmarsson, Þrótti, Stefán Jó- hannesson, Víkingi, og Kjartan Busk, HK. -KMU Guðmundur E. Pálsson - 46 lands- leikir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.