Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Side 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986.
Sviðsl]ós
Ólyginn
sagði...
Hanne Krogh hefur kynnst skini og skúrum í söngvakeppnum
Hanne Krogh kom Noregi á topp-
inn í söngvakeppni sjónvarps-
stöðva í fyrra ásamt stöllu sinni,
Elisabeth Andreason. Þá sögu
þekkja allir. Hitt vita færri að fyrir
15 árum átti Hanne sinn þátt í að
skapa hefðina sem virtist ætla að
loöa við Norðmenn til eilífðarnóns.
Það ár varð hún í næstneðsta sæti
keppninnar. Næstu árin kom það í
hlut hins nafhtogaða Jans Teigen
að gulltryggja Norðmönnum botn-
sætið.
Hanne var aðeins 15 ára þegar
hún keppti í fyrra sinnið í söngva-
keppninni. Hún sigraði í forkeppn-
inni heima með miklum glæsibrag.
Norðmenn töldu sér vísan sigurinn
eins og hent hefur fleiri þjóðir. En
vonbrigðin eftir keppnina urðu til
þess að Hanne Krogh hætti að
syngja og landar hennar hentu eft-
irleiðis gaman að öllum söngva-
keppnum.
f tólf ár söng Hanne hvergi svo
til heyrðist á almannafæri og var
ákveðin í að syngja aldrei aftur.
En fyrir þremur árum var hún búin
að jafria sig og sló til þegar Andrea-
son bauð henni að syngja á móti
sér í Bobbysokks. Þær æfðu af
krafti, sigruðu í forkeppni norska
sjónvarpsins í fyrra og léku það svo
léttilega eftir í sjálfri aðalkeppn-
inni. Heiðri Noregs var bjargað og
Hanne endurheimti sjálfstraustið.
Susan og draumaprinsinn Simon.
Draumaprinsinn betri
en Kalli Bretaprins
Leikkonan Susan, sem á sínum tíma hafa því sest að í Hoílywood, höfuð-
var mjög orðuð við Karl Bretaprins, stað kvikmyndanna. Simon þótti
hefur nú fundið þann eina sanna. standa sig vel í myndinni Dauðinn á
Hann heitir Simon MacCrokindale Níl sem tekin var fyrir nokkrum
og er leikari eins og frúin. Susan árum. Síðan þá hefur hann þó engin
hefur sagt að eftir að hún hitti Simon almennileg hlutverk fengið en von-
þá sjái hún hreint ekki eftir að hafa ast til að frægð konunnar fleyti
misst af tækifærinu til að verða honum eitthvað áleiðis á toppinn.
drottning Breta. Susan er aftur á móti ekkert hrifin
„Hann Simon er miklu betri en af þessu stússi í kvikmyndunum.
prinsinn Kalli, jafnvel þótt konungs- Hana langar heim til Englands á ný
ríkið ætti að fylgja í kaupbæti," sagði og telur að þau hjónin geti haft næg-
Susan í blaðaviðtali stuttu eftir að ar tekjur af eignum ættarinnar. Þar
hún kom úr brúðkaupsferðinni til á hún m.a. ágætis hús nærri Wind-
Fidjieyja. sorkastala. Susan segist ekkert hafa
Simon ætlar sér mikinn frama sem á móti nábýli við drottninguna þótt
kvikmyndaleikari. Hjónakomin Kaili sé ekki á lausu lengur.
Michael Jackson
bauð vinkonu sinni, Liz Taylor, i
hádegisverð á einum dýrasta
veitingastað i Los Angeies. Þang-
að mætti hann með sinn einka-
kokk og vistir þvi Mikki ætlar
aldeilis ekki að iáta einhverja
ókunna kújóna eitra fyrir sér fæð-
una. Liz kæröi sig hins vegar
kollótta og bað um buff - beint
úr eldhúsi hússins. Hún fékk buff-
ið umbeðna og allir voru ánægðir
í það sinniö.
Margrét
Danadrottning
átti afmæli um daginn og komst
ekki hjá því að blása á kerti af-
mælistertunnar sem henni er
skenkt á ári hverju. Magga neyð-
ist til að þjálfa vikum saman fyrir
þessa ágætu tradisjón því sífellt
verður erfiðara að slökkva á
helv.... kertunum. Þau voru sumsé
fjörutíu og sex talsins og á staðn-
um var ekki nokkur maður til þess
að vorkenna drottningunni. Hins
vegar eru menn uggandi um
móður hennar, Ingrid, sem verður
sjötíu og fimm á þessu ári - af-
mælistertublástur hennar hátign-
ar þann daginn er ennþá óleyst
vandamál.
Diana prinsessa
er lítt hrifin af nýjustu bókinni á
breska markaðnum. Hún ber heit-
ið Flekklausa familían og fjallar
um Kalla prins og konurnar hans
fyrir hjónaband. Þar er ákveðið
gefið í skyn að prinsinn hafi ekki
verið hreinn sveinn fyrir giftingu
og íhugar Diana nú að fara í
dúndrandi skaðabótamál. Hvort
málið verður höfðað á hendur
bókaforlaginu vegna skrifanna
eða bresku krúnunni vegna vöru-
svika er ekki komið fylliiega á
hreint ennþá.
Marlon Brando
vildi gleðja son sinn á afmælis-
daginn en átti í vandræðum með
að finna huggulega afmælisgjöf.
Þrautalendingin var einbýlishús
fyrir einar tuttugu milljónir króna.
Stórafmæli? Ja, sonarmyndin
varð tuttugu og átta ára gamall.
„Bylting“
Boy George breytti svip
skemmtistaðarins
Hver er þessi undurfagra kona?
Veit það nokkur? Fyrirgefið,
reyndar er þetta hann Boy George,
söngvari og forsprakki Menning-
arklúbbsins, Culture Club. Hann
er ekki alltaf svona vel til hafður,
strákurinn, og meðal annars er
merkileg sú saga af honum þegar
hann kom inn á einn frægan og
mjög fínan veitingastað, klæddur
aldeilis allt öðruvísi en krafist var
af gestum staðarins. Það fór, sem
vonlegt var, mikill kliður um sal-
inn og fólk vissi ekki hvort það
ætti að hlæja eða gráta, sitja eða
standa.
En Boy George lét sem ekkert
væri, pantaði sér mat og tyllti sér.
Viti menn og konur! eftir nokkrar
vikur hafði staðurinn gjörbreytt
um svip og nú mæta þangað engir
nema þeir sem vilja vera öðruvísi,
enginn í fínum jakkafötum og svo-
leiðis. En þeir eru býsna margir
sem vilja vera öðruvísi svo að stað-
urinn hefur síður en svo tapað á
þessari dirfsku, byltingarhneigð,
frjálslyndi eða hvað á aftur að
kalla það þegar svona er gert, Boy
George.
■