Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Page 32
68*78*58
Hafiz þú ábendingu eða vitn-
eskju um frétt - hringdu þá í
sima 687858.
Fyrir hvert firéttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta firéttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fulirar nafiileyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986.
»
Þetta er dagsbirtan
áá
„Það fyrsta sem ég vissi var að
Herdís var við hliðina á mér og líka
þessi litla dama, Bryndís, sem tók
það nærri sér að sjá mig á sjúkra-
húsi. Og ég var lengi milli vonar og
ótta því það var leppur fyrir augun-
um. Þegar stundin rann upp og
Ingimundur fjarlægði hann hrópaði
ég af hverju hann beindi svona
óskaplega sterku ljósi inn í augun á
mér. „Þetta er dagsbirtan, Gísli“ -
var svarið sem ég fékk.“
Svo sagði Gísli Helgason sem
landsþekktur er sem annar bræðr-
anna úr Yestmánnaeyjum fiá fyrstu
viðbrögðum eftir að reynt var að
færa honum betri sjón með aðgerð
á Landakotsspítalanum í Reykjavík.
Þetta varð einn þeirra uppskurða
sem uppfylla björtustu vonir, tókst
eins og best verður á kosið.
„Ingimundur sagði mér svo að
skima út í veröldina og mér fannst
það stórkostleg upplifun. Litaskynið
var þó brenglað, allt svart var blátt
og hvítir litir bláleitir. Og fyrst þeg-
ar Herdís konan mín kom í heimsókn
til mín eftir að tekið var fiá augun-
um var hárið á henni heiðblátt og.
augun skærgræn. En þetta er farið
að jafna sig núna.“
Tregur í aðgerðina
„Ég hef verið sjóndapur frá því að
ég var krakki, sá þó skímu með öðru
auganu, einkum ef hlutir voru bom-
ir alveg að augunum. Þá gat ég
greint sundur liti og vissi mun á
nóttu og degi. En þessi litla sjón
fannst mér vera að hverfa með árun-
um og ég var búinn að sætta mig
við það.
Úlfar Þórðarson augnlæknir hafði
með mig að gera og þegar
leysigeislatæknin kom til vildi hann
reyna að stækka ljósop augans. En
ég var tregur til því ef ég missti skím-
una á því eina auga sem ég hafði
væri verr af stað farið en heima setið.
En Úlfar vísaði mér á Ingimund
Gíslason augnlækni á Landakoti.
Hann skaut geislum inn í augað til
þess að stækka ljósopið og sagði síð-
an að það væri freistandi að gera
aðgerð til þess að nema buitu kögg-
ul sem hindraði ljósstreymið inn í
augað. Eg var mjög ragur og hann
sagðist ekki geta lofað mér neinni
bót, en myndi þó ráðleggja öllum
sínum ættingjum að taka áhættuna
ef þeir þyrftu á slíkri aðgerð að
halda.
Ákvörðun tók ég í janúar og sam-
fara því mikinn kvíða. Á sunnudeg-
inum 27. apríl fór ég síðan á
Landakot og aðgerðin var gerð á
mánudeginum. Ég var svo kvíðinn
að kæruleysissprautan sem ég fékk
hafði engin áhrif.
Litaskynið gaf vonir
Sjónin breyth ansi miklu, ég get
frekar farið um bæinn en áður var.
Hún ætti með réttum hjálpargler-
augum að verða tíu prósent sem
þýðir að ég sé í sex metra fjarlægð
það semfullsjáandisérí sextíu metra
fjarlægð. Þessi aðgerð gefúr miklar
vonir þótt ég geri mér grein fyrir að
allt geti gerst.
Fyrst hélt ég að allt litaskynið
mitt væri kolruglað en svo var mér
sagt að það myndi batna þegar frá
liði. Það var reyndar það litla lita-
skyn sem ég hafði sem gaf læknum
svo mikla von um að aðgerðin gæti
heppnast. Núna greini ég ekki and-
litsdrætti en þó heildarlínur og get
lesið mjög stórt letur. Og ég er eins
og moldvarpa, þoli illa dagsbirtuna
utan dyra en það á eftir að lagast
líka.“
-baj
i
f
t
i
i
Bessastaðahreppur:
Sérframboð
sjátfstæðis-
manna
Það er að verða tískufyrirbæri að
1 ef smáágreiningur kemur upp þá er
komið fram með sérframboð. Þetta er
félagslegur vanþroski," sagði Jóhann
Jóhannsson, einn þeirra sem skipa
lista sjálfstæðismanna í Bessastaða-
hreppi við væntanlegar sveitarstjóm-
arkosningar.
Listi sjálfstæðismanna í hreppnum
klofnaði í gær eftir að ágreiningur
kom upp um skipan hans. Einar Ólafs-
son, sem hafhaði í sjötta sætinu við
prófkjör fyrr í vor, neitaði að taka
sæti á listanum og leggur fram sérlista
í dag. Einar sagði í samtali við DV
að ágreininginn mætti aðallega rekja
til deilna um byggingu íþróttahúss.
Þó sagði hann að fleira kæmi til en
vildi ekki ræða það nánar.
r Erla Jónsdóttir, formaður Sjálfstæð-
isfélags Bessastaðahrepps, sagði að
hér væri ekki um klofning að ræða -
aðeins óánægju eins manns með nið-
urstöðu prófkjörs. Erla bjóst þó við
„að fleiri sjálfstæðismenn fylgdu Ein-
ari í sérframboðið".
-GK
Geriö verösamanburö
og pantiö
ur
Matur..matur..matur..
Ef einhver verður lystarlaus á föstudaginn má reyna að örva bragðlaukana með því að reka nefið inn i Laugardals-
höll. Þar hefst þá sýningin Matarlist 86, sem nemendafélag Hótel- og veitingaskólans stendur fyrir. Höllin verður
undhlögð af mat og aftur mat. Á myndinni er verið að reisa kúluhús og stafnhús, sem líklegast verða einhvers
konar vertshús.
DV-mynd GVA.
Ævintýri í Hafnarfirði:
Læstist inni
í hraðbanka
Hafnfirðingur einn, er ætlaði að
notfæra sér þjónustu hraðbanka Út-
vegsbankans í heimabæ sínum, fékk
ekki mjög hraða afgreiðslu. Hann
læstist inni í hraðbankanum og varð
að dúsa þar í hálfa klukkustund með
aurana sína.
„Það var hringt í okkur klukkan
13.50 á sunnudaginn og okkur tilkynnt
að maður væri læstur inni í anddyri
Útvegsbankans. Við fórum á staðinn
og hleyptum honum út,“ sagði varð-
stjóri hjá lögreglunni í Hafharfirði í
samtali við DV. „Manninum var farin
að leiðast biðin.“
Til að komast inn í hraðbankann í
Hafharfirði þarf sérstakt kort. Maður-
inn fór að öllum leiðbeiningum en
þegar hann ætlaði út stóð allt fast.
Telur lögreglan að læsingin hafi verið
eyðilögð.
„Nei, maðurinn var aldrei í lífe-
hættu," sagði Sólveig Brynja Grétars-
dóttir, útibústjóri Útvegsbankans í
Hafnarfirði. -EIR
Hraðfiystihús Keflavíkur:
Hnúturinn
leystur
"i SJmh 52866
LOKI
Lok lok og læs
- með hraði!
Veðrið á morgun:
Lrtil breyt-
ing á veðri
Á morgun verður áfram austan-
eða suðaustan átt ríkjandi. á Aust-
ur- og Suðausturlandi verður skýjað
og rigning en víðast bjart í öðrum
landshlutum.
Hiti verður á bilinu 2-4 stig norðan
til á landinu, en nokkuð hærri, eða
4-7 stig sunnanlands.
-S.Konn.
„Við erum ekki að loka. Stærsti
hnúturinn var leystur í gær. Við getum
borgað 12-13 milljóna króna orlofsfé
eftir að við fengum frest á afborgun á
láni hjá Landsbankanum í gær,“ sagði
Gunnar Sveinsson, formaður stjómar
Hraðfrystihúss Keflavíkur hf., í morg-
un.
Lokun þessa eina frystihú.ss sem eft-
ir er í Keflavík heftu- verið yfirvofandi.
Jafnframt stöðvun og sala togaranna
Bergvíkur og Aðalvíkur. Hjá fyrirtæk-
inu vinna um 150 manns. Kaupfélag
Suðumesja á 55-60% í því, SIS af-
ganginn. Heildarskuldir em um 300
milljónir.
„Þetta em ekki miklar skuldir miðað
við stöðu margra hliðstæðra fyrir-
tækja. Á móti em vemlegar eignir, svo
sem togaramir sem em 12 og 14 ára,
annar spænskur, hinn norskur. Lausa-
fjárstaðan hefur hins vegar verið mjög
erfið," segir Gunnar Sveinsson.
„Við höfum eins og annar rekstur
þurft að bera gífurlegan fjármagns-
kostnað á undanfömum áruni.
Lausafjárstaðan hefur því farið sí-
versnandi. Þess vegna þurfum við að
fá lánum breytt í viðráðanlegt horf.
Það er sá vandi sem er óleystur," seg-
ir stjómarformaður Hraðfrystihúss
Keflavíkur hf. -HERB
i
i
i
i
i
i
i
i
t
t
i