Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Side 2
2 DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Þjóðskrármálið: Krefja stjómvöld Hagstofuna skýringa? DV-mynd PK. Skiptar skoðanir um ágæti fyrir- hugaðra breytinga Hagstofunnar á nafnnúmerakerfi landsmanna hafa verið til umfjöllunar í DV að undan- fömu. Annarsvegar em þeir sem „taka ofan hattinn fyrir Hagstof- unni“ og hinsvegar hinir sem benda á að breytingin kosti þjóðarbúið hundruðir milljóna króna þegar ein- fold lausn á þessu máli sé til sem kosti ekkert. Allir em sammála um að núver- andi nafnnúmerakerfi hafi gengið sér til húðar og það verði að afnema það en menn greinir á um leiðir. Hagstofustjóri hefur ákveðið að nafhnúmerakerfinu verði breytt þannig að tekið verði upp svokallað auðkennisnúmer og í febrúar s.l. sendi hann frá sér ítarlega tilkynn- ingu um þessa breytingu. Raunar hafði þessi breyting verið lengur í aðsigi og því átti hún ekki að koma neinum á óvart. Gagnrýnendumir benda svo aftur á að einfóld lausn á vandanum sé að afhema tengsl nafh- númersins og stafrófsins, gefa hverjum einstaklingi sitt nanfnúmer við fæðingu og hann haldi því svo óbreytt, óháð nafnbreytingum. Einn viðmælenda blaðsins kallaði gagnrýni þá sem blossað hefúr upp nú lítið annað en storm í vatnsglasi en í síðustu frétt DV af málinu er það haft eftir forsætisráðherra að séu þær upplýsingar réttar sem hann hefiír fengið af málinu muni stjóm- völd vafalaust leita skýringa á þeim hjá Hagstofúnni. Nafnnúmeriö Eins og fyrr segir hefur núverandi nafnnúmerakerfi gengið sér til húð- ar og svo er komið málum að ekki er lengur hægt að gefa út númer samkvæmt því. Ennfremur er um að ræða ýmsan rugling í því sem ýmsir telja að Hagstofan ætti fremur að einbeita sér við að lagfæra fremur en standa í breytingum. Frægt dæmi um mgling sem komið hefúr upp í núverandi kerfi er maðurinn sem labbaði inn á þjóðskránna með 16 dóma á bakinu og labbaði þaðan út aftur eins og nýskúraður engill með nýju nafnnúmeri. Annað dæmi benti dr. Pétur Blöndal, formaður Landsambands lífeyrissjóðanna okkur á en þar var um að ræða konu, Guðrúnu, sem fékk nýtt nafnnúmer er hún tók upp ættamafn mannsins síns. Þau skildu og vildi Guðrún þá fá aftur sitt fyrra númer en því hafði þá verið úthlutað alnöfhu hennar. Guðrún fékk svo sitt þriðja númer á lífsleiðinni en er nafha hennar fór að athuga með líf- eyrisréttindi sín fékk hún að vita að Þjóðskránni flett. hún ætti 20 ára réttindi inni þó hún hefði vart náð þeim aldri sjálf. Sem fyrr greinir era nafhnúmer nú tengd stafrófinu og þannig nafhi viðkomandi persónu. Hvað þetta at- riði varðar þá sagði Bjami G. Ólafsson forstöðu- maður vinnslu- deildar Reiknistofú bankanna að „við teljum það kost að einhver tengsl séu á milli númers og númers- hafa til að koma í veg fyrir að ávísanafals tröllríði öllu keifinu“ ■ Auðkennisnúmer Hið nýja númer sem taka á upp um næstu áramót er tíu stafa, fyrstu sex stafimir era fæðingardagur og ár viðkomandi en síðan kemur fæðing- amúmer hans og tíundi stafunnn táknar svo öldina sem viðkomandi er feeddur á. Hvað varðar númerið sjálft benda gagnrýnendur á að það sé tveimur stöfúm lengra en núverandi númer og því eykur það vinnu við innslátt um 25%. Þessi aukning heldur sér um ókomin ár. Annað atriði er að því lengra sem númerið er því meiri hætta er á vill- um við vinnslu þess. Þannig sagði Fréttaljós Friðrik Indriðason Ragnar Pálsson forstöðumaður tölvudeildar Sambandsins að „þessi breyting kemur sér illa við tölvu- deildina því í skrám hennar eru nú nafhnúmer auk tveggja stafa ein- kennistölu sökum deildarskiptingar fyrirtækisins. Ef tíu stafa tala kemur í stað nafn- númersins verða þetta tólf stafir í skrám okkar sem er allt- of löng tala sökum hættu á villum“ Annað atriði sem bent er á í sam- bandi við hið nýja auðkennisnúmer er að fyrstu sex stafimir í því gefa vissar persónulegar upplýsingar um handhafa númersins, þ.e. aldur hans. Stangast á við tölvulög Á fundi sem Skýrslutæknifélag Is- lands og Verslunarrað efndu til vegna þessa máls kom meðal annars fram að fyrirhuguð breyting stang- aðist á við nýsett tölvulög eða lög um persónubundna skráningu upp- lýsinga þar sem númerið gæfi upp aldur viðkomandi. I niðurstöðum af umræðum af fundinum segir: „Hæpið er að þvinga fólk til að gefa upplýsingar um fæð- ingardag og ár sérstaklega með hliðsjón af nýsamþykktum tölvulög- um. Viðbúið er að þessi ákvæði tölvulaganna verði þrengd frekar en rýmkuð í framtíðinni. “ Sturla Þengilsson deildarstjóri tölvudeildar Sjóvá, sem einna harð- ast hefur beitt sér í gagnrýni á þjóðskrárbreytinguna tók sem dæmi hvað þetta atriði varðaði að karlar á aldrinum 30-40 ára hefðu að meðal- tali þrenns konar tryggingar. Sjóvá gæti tekið úrtak úr þessum hóp og séð hverjir mannana hefðu ekki eina eða fleiri þessara trygginga og notað úrtakið svo í söluherferð „Þetta er ólöglegt nú en hæpið að segja þetta ólöglegt eftir breytinguna. Það besta við nafhnúmerakerfið er að það gef- ur engar persónulegar upplýsingar. “ Mikil kostnaður Eins og fyrr segir er bent á að fyrir- huguð breyting muni kosta þjóðar- búið nokkur hundrað milljónir. Þessi kostnaður liggur í að breyta þarf öllum tölvukerfúm landsins meir og minna, setja í þau hið nýja númer í stað hins gamla. DV hefúr birt nokkrar tölur um kostnað ein- stakra fyrirtækja og stofnanna vegna breytinga. Sem dæmi má nefha að hjá Sjóvá er þessi kostnað- ur á bilinu 1-3 milljónir króna, hjá Hagstofúnni sjálfri svo og Skýrslu- vélum ríkisins liggur þessi kostnað- ur á bilinu 15-30 milljónir kr. og hjá Sambandinu er kostnaðurinn áætl- aður 2,5-4 milljónir kr. Þetta eru aðeins fjórir aðilar af hundraðum sem þurfa að breyta tölvukerfúm sínum. Það er tiltölulega stutt síðan að fyrirtæki og stofnanir tóku að nota tölvur almennt í rekstri sínum en um þetta atriði sagði dr. Pétur Blöndal. „Þessi ákvörðun Hagstof- unnar hefúr í fór með sér töluvert miklar breytingar á tölvukerfum landsins einmitt á þeim tíma sem menn hafa nóg annað að gera við að byggja kerfin upp. Breytingin mun tefja það starí. “ Minni gagnrýni DV hefur ítrekað reynt að ná tali af hagstofústjóra undanfama daga vegna þessa máls en án árangurs. Ingimar Jónasson deildarstjóri Þjóðskrárinnar sagði hinsvegar í samtali við blaðið að gagnrýni sú sem komið hefði fram væri minni en þeir bjuggust við og þeir hefðu síðin- en svo nokkuð á móti umræðum um málið. „Þessi breyting var tilkynnt með það miklum fyrirvara að fyrir- tæki og aðrir aðilar sem nota tölvukerfi hafa haft tímann fyrir sér. Við áttum alltaf von á að ákvörðun- in yrði gagnrýnd. “ Hvað varðaði það atriði að hægt hefði verið að finna lausn á vandan- um sem kostaði ekkert sagði Ingimar að margir möguleikar hefðu verið athugaðir en þetta kerfi sem varð ofaná er hið sama og notað er á hin- um Norðurlöndunum og reynst þar vel. -FRI Aðeins búið að selja Flugvél ® fank 10-15% af skreiðinni a hv»if - srtjum uppi með um 8 þúsund tonn „Það er búið að selja um 20-30 þús- und pakka af skreið og 80-90 þúsund pakka af hausum það sem af er ár- inu,“ sagði Bjami V. Magnússon, framkvæmdastjóri Sameinaðra fram- leiðenda. Það er því aðeins búið að selja um 10-15% af þeirri skreið sem var í landinu. Heildarmagnið var um 200 þúsund pakkar, eða um 9 þúsund tonn. Ennþá sitjum við uppi með í kringum 8 þúsund tonn af skreíð og einnig mikið af hausum. Fáum hefúr tekist að selja skreiðina til Nígeríu, Samlag skreiðarframleið- enda, sjávarafurðadeild Sambandsins og Sameinaðir framleiðendur era þeir sem staðið hafa að sölu á þessum 20- 30 þúsund pökkum sem selst hafa. Margir hafa þó gert ítrekaðar tilraun- ir til sölu. „Mest af því sem selst hefúr á árinu fór til Nígeríu í maí, eða 17 þúsund pakkar. Við erum með mörg jám í eldinum núna, þrýstum á að Nígeríu- menn kaupi og eigum von á svörum bráðlega um umtalsverða sölu,“ sagði Bjami. Innflutningsleyfi á skreið í Nígeríu rennur út í lok júní þannig að söluaðil- ar verða að hafa hraðan á. „Ef ekki næst samkomulag um sölu verðum við að vona að innflutnings- leyfið verði framlengt í Nígeríu. Það sem gerir okkur erfitt fyrir er að Ní- geríumenn hafa ekki gjaldeyrisleyfi fyrir skreiðinni þótt þeir hafi innflutn- ingsleyfið," sagði Bjami. - En ef innflutningsleyfið verður ekki framlengt og þið fáið neikvætt svar um söluna verður þá þessum 8 þúsund tonnum af skreið sem eftir era hent? „Ég vil benda á að það er hægt að geyma vel þurrkaða skreið í góðum geymslum í mörg ár. En það kostar auðvitað heilmikla peninga," sagði Bjami. -KB Flugvél í eigu Mýflugs fauk á hvolf á Reykjahlíðarflugvel 1 i í fyrradag. Vélin, 1F MYY, sem er af gerðinni Cessna 172 M, fjögurra sæta, er talin ónýt. Það var ekki mjög slæmt veður þegar óhappið varð. Þetta er mikið tjón fyrir Mýflug þar sem nota átti flugvélina í útsýn- isflug í sumar. Þá var flugvélin notuð í kennsluflug. Ómar Ragnarsson átti flugvélina áður. -sos

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.