Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Side 18
18 DV. FIMMTUDÁGUR 22. MAÍ 1986. Bankað uppá í Bergen Þungamiðja umræðna í daglega líf- inu íslenska heíur nú færst yfir á úrslit dægurlagakeppni evrópskra sjónvarpstöðva. Það er nú einu sinni þannig að þegar við Islendingar þykjumst eiga rétt á hamingjunni, a.m.k. til jafiis við aðra, þá skal það ekki bregðast að hún tekur hliðarspor og fer - ein- mitt til einhverra annarra en okkar. Þannig var það um úrslitin í þess- ari síðustu dægurlagakeppni sjón- varpsstöðva. Gleðibankinn, þessi eini banki íslenski sem nú er þó þekktur erlendis, vakti hvorki gleði né hamingju hjá dómneíndum Ev- rópuþjóða enda eru þær þjóðir ekki vanar því að gleðimál eða sirkus- kæti séu bendluð við það eðla Kjallarinn Geir R. Andersen auglýsingastjóri hlutverk sem bankastarfeemi er. „Banuier, - c’est un beau metier“, segja þeir í franska heiminum, eink- anlega í Sviss, þar sem bankastarfið er talið göfúgt starf. í flestum lönd- um Vestur-Evrópu koma bankar og bankastarfeemi næst á eftir kirkju og trúarþörf manna. Kirkjunni er trúað fyrir andlegheitunum en bönk- um og skyldum stofnunum fyrir þeim veraldlegu. - Svona einfalt er þetta nú í þessum löndum. Norður og suður Að vísu verður þó að viðurkenna að trú á kirkju og banka vex hlut- fallslega eftir því sem sunnar dregur í álfúnni. Er þar talsverður munur, sem markast nokkuð greinilega eftir línu sem hugsuð er milli austurs og vesturs, þannig að skil myndast. Fyrir sunnan þessa hugsuðu línu eru lijndin Belgía, Lúxemborg, Frakkland, Spánn, Portúgal, Ítalía, Sviss og Mónakó - og þótt merkilegt sé, einnig Vestur-Þýskaland, einkum á seinni árum. En það fylgir meira þessari skipt- ingu en trúin á kirkju og banka og vantrú á gleðibanka. Samhliða þess- um hugarheimi fylgir áhugi á rólegri og melódískri tónlist, einkum í dæg- urlagaheiminum og í Frakklandi hefur mikill lamstur og barsmíðar í tónsmíðum aldrei náð hylli fólks. Það gegnir öðru máli með þær þjóðir sem búa fyrir norðan hina hugsuðu línu, þar með talin eyþjóðin í norðri, sem beið málþola eftir því að Evrópuþjóðir gæfu á bátinn trúna á alvörubanka og hrópuðu „tólf punkta fyrir Gleðibankann". Þessar norðanþjóðir eru minna fyrir trúna og bankastarfeemi. Þær eru líka miklu hrifnari af dægurlög- um sem endurspegla sverðaglamur víkinganna með tilheyrandi bar- smíðum og kryppudansi. Graðhesta- tónlistín blívur þar. - „En Andrarímur þykja mér góðar“ var einu sinni sagt. Endalaus umræða Og umræðan heldur áfram. Verst að fermingar eru afstaðnar að mestu. Það hefði verið prýðilegt umræðu- efiii í þeim vandræðalegu samkund- um að geta afhjúpað rækilega sökudólgana, sem ollu því að Gleði- bankinn fékk aðeins fátækrastyrk dómnefndanna. Auðvitað færi enginn að minnast á þá augljósu staðreynd að úr því umhverfi og andrúmslofti sem við búum við hér er tilgangslaust að senda dægurlagatónlist sem fellur að smekk þeirra sem trúa á dýrlinga og peningageymslur. En uppákoman hefúr komið að góðu gagni hér í tilbreytingarleys- inu, stingur í stúf við endalausar fréttir af afgangshópum launþega- samtakanna, sem enn eru að reyna að fá meiri og betri kjör en allur almenningur hefúr sætt sig við. Og víst er um það að það á eftir að heyrast margur útvarps- og sjón- varpsþátturinn um hugmyndina um stofiiun Gleðibanka í Noregi. Einnig fjölmargir viðtalsþættir í blöðum um sama efni, ásamt ffegnum af undir- búningi fyrir næstu hátíð sem haldin verður í Belgíu að ári. Og þá er bara að vona að „hið opinbera" taki nú duglega við sér og láti af hendi rakna ómælda fjár- sjóði til allra nefndanna og sérffæð- inganna sem verða kallaðir til. Ekki til að spauga með Þótt einhvem tíma kynni svo að fara að gott íslenskt dægurlag yrði nú samið fyrir þennan árlega við- burð sjónvarpsstöðva Evrópu þá er ekki sopið kálið. Lagið er bara ein hliðin, þó aldrei sé of ítrekað að ekki megi minnast á trú eða peninga í texta. - Æfing og sviðsetning kost- ar ofljár. Og þá kemur að því sem okkur íslendingum er ætíð ofarlega í sinni, þjóðrembunni. Hún felst í því til dæmis að halda að við eigum að senda á alþjóðavettvang hverja nefhdina á fætur annarri eða hópa sem „taki þátt“ fyrir íslands hönd og komi heim með vinninginn. Þátttaka til þess eins að „vera með“ og koma íslandi á blað, eins og það er kallað, er verri en ekki ef undirbúningur er ekki nægilegur. Og í flestum tilfellum kostar slíkur undirbúningur svo mikið fé að það er einfaldlega ekki fyrir hendi. En ekki nóg með það. Þjóð, sem ekki hefúr yfir að ráða alvörugjald- miðli, hefur ekki efni á að taka þátt í eða vera með stórar uppákomur á alþjóðavettvangi því öll slík útgjöld verður að taka að láni í erlendum. gjaldeyri. Þjóðremban um krónuna íslensku er nú orðin eins konar sameiningar- tákn ráðamanna og það sem verra er, þetta sameiningartákn, íslenska krónan, er orðin að athlægi hjá öðr- um þjóðum. Lækkun verðbólgu mun hér engu breyta og heldur ekki fyrir- huguð sameining ríkisbanka. Og þegar farið er að gera banka- stofnanir að útflutningsvöru í því formi að syngja nokkur vers um „Bank of fun“ í alþjóðlegri söngva- keppni þá vænkast ekki hagur íslendinga. Versnar kannski ekki heldur. En hjá alvöruþjóðum eru peningar einfaldlega ekki til að spauga með. Það hafa þeir hins vegar lengi verið hér og munu verða, þar til við höfum kastað hinni illræmdu og einskis- verðu krónu fyrir róða og tekið upp aðra sterkari mynt í samfloti með einhverri viðskiptaþjóð okkar. Andleg hamingja er stundum ná- tengd trúnni, en veraldleg hamingja er ávallt tengd peningum. Geir R. Andersen. Kjörrétturinn „Finnst mér að nota ætti atkvæðisréttinn í komandi kosningum til að mótmæla fyrri og núverandi stjómmálaöflum...“ IErlendar langtímaskuldir^ji íslendinga í dollurum * -r,™ eftir að ,,fríverslun,'I— £<LUu"var tekin upp sem "sið- venja” í viðskiftum, þessi sífellda hækk- un sannar ógæfulega Jpróun er varðar efnahagslegt sj álfstæði b.i óðarinnar. |l\vr 71 73 75 77 79 31 83 35 37<* Línuritin skýra að mestu við hvaða efnahagslegu aðstæður_ „Þjóðarsáttin” var gerð og ..sanna"að lækkun tollaj á bílum og myndböndum o.f: var og er fjarstæða og nær hefði verið að lækka mat- væli.það hefði leyst tvenn* FO0 an vanda, láglauna- fólks og bænda að hluta, í staðinn fyrir enn aukna er- lenda skuldasöfnun. 100-1- 6 0 041 I 83 84 85 86 87|Alls Arlegur halli á vöruskifta og þjónustujöfnuði við út- lönd.Arin 86-87.eru spár. Svartir stólpar eru uppsafn- aður halli og skuldaaukning, tölur ofan þeirra er möguleg þróun til ársloka 1987. $ m 200 100 ? ? Illllllll 00 1 co ■11 III i O ÍN O CN T— 83 84 85 86 87 Arleg og áætluð skuldahækkunJfciUi^j stjórnar Steingríms Hermannssonar Kjallarinn Bjarni Hannesson frá Undirfelli Pólitískar siðvenjur hér á íslandi eru að mínu mati æði sérstæðar. Meðal ýmissa sérkennilegheita er sá siður að „kemba“ einungis yfirborð- ið á þjóðlífeþróun og mikilvægum viðfangsefnum. Rífast síðan af kappi fremur en forsjá um ýmis lítt merk aukaatriði, en þegja helst alveg um það sem mest er um vert, sem er pólitískt og efnahagslegt sjálfetæði þjóðarinanr gagnvart erlendum ríkj- um. Virðist hvíla „bannhelgi" á umræðu um þau mál. (Erlendar skuldir og hermál.) Ætla má að stjómmálamönnum þessa lands muni takast að gera þjóðina svo skuldum vafða að raunverulegt sjálfetæði tapist alveg. Vil ég benda á meðfylgjandi línurit sem rökstuðn- ing við þessa fullyrðingu og ætla að skýra það nánar. Rangar viðmiðanir 1-2-3. Langtímaskuldir Islendinga eru nú um 1.600 millj. dollara, um 66 milljarðar íslenskra króna, þ.e. um 1 milljón á hverja 4 manna fjölskyldu. 3. Líkleg þróun í ár og næsta ár, að óbreyttum líkum og 10-15% falli dollars, er að bókaðar langtíma- skuldir hækki um allt að 4-8 milljarða. 4. Eru líklegir möguleikar miðað við breytilegar forsendur. 5. Sýnir samanlagðan halla á vöru- skipta- og þjónustujöfnuði frá maí 1983 til mars 1986. 6. Sýnir bókaða hækkun á erlendum langtímaskuldum frá maí 1983 til mars 1986. Þessi hækkun er að hluta vegna endurreiknings vegna gengisbreytinga, en eru þó upphæðir sem standa verður skil á líkt og dollaralánin frægu vegna skipakaupa 1979-84. 7. Sýnir óvissuþætti og geta gjör- breyst ef gengisþróun og við- skiptakjör yrðu með allra hagstæðasta móti. Reiknuð skuldarhækkun milli áranna 1984-86, um 13.700 milljónir króna, eru bráðabirgðatölur úr Hag- tölum mánaðarins apríl 1986. Við þessar aðstæður er gerður kjara- samningur, „þjóðarsátt", sem vegna rangra kjaralegra viðmiða mun valda auknum halla og hækkun er- lendra skulda án þess að bæta kjör þeirra sem helst þurfa á kjarabótum að halda. Finnst mér að nota ætti atkvæðis- réttinn í komandi kosningum til að mótmæla fyrri og núverandi stjóm- málaöflum og kjósa aðra aðila en óbeina umboðsmenn þeirra sem að slíku standa. Mun ég í það minnsta styðja Kvennalistann því aðstandendur hans vom þeir einu af stjómmálaöfl- um þessa Iands sem áttuðu sig strax á hvað margfrægur samningur var í raun skammsýnn og óraunhæfur, enda að líkum gerður til að „kaupa“ ákveðnum stjómmálaöflum frið til að geta stundað hefðbundna trúð- leika fram yfir kosningar. Bjami Hannesson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.