Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Blaðsíða 34
34 DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Spurt í Hveragerði: Hverju spáir þú um úrslít kosn- inganna hér í Hveragerði? Hreinn Kristófersson garðyrkju- bóndi: - Eigum við ekki að segja að H-list- inn fái fjóra og hinir þrjá. Soffia Erlendsdóttir húsmóðir: - Ég yrði ekki hissa ef óháðir fengju meirihluta. Jóhanna Magnúsdóttir húsmóðir: - Sjálfstæðisflokkur bætir við sig ef einhverjar breytingar verða. Ragnhildur Jónsdóttir húsmóðir: - Eg vona að Sjálfstæðisflokkurinn haldi meirihlutanum. ; Hallsdóttir afgreiðslustúlka: ig spói Sjálfstæðisflokknum áframhaldandi meirihluta. Björn Brynjar Jóhannsson bensínaf- greiðslumaður: - Sjálfstæðisflokkurinn tapar eimun manni og óhóðir ná meirihluta. Hótel örk i Hveragerði. DV-myndir GVA Hveragerði: Bær í örum breytingum Miklar breytingar hafa ótt sér stað í Hveragerði ó síðustu árum. Vaxandi vinsældir Edens og svo Tívolís í fyrra hafa orðið til þess að ferðamanna- straumurinn liggur til Hveragerðis, a.m.k. sunnudagsbíltúrinn. Það nýjasta í Hveragerði er svo Hótel Örk. Þar er nú unnið myrkr- anna á milli og sjá íbúar bygginguna breytast með hverjum deginum. Hótel- ið hefur risið upp á mettíma. Mikið er ógert en samt á öllu að vera lokið 6. júní og gestir að mæta nokkrum dögum síðar. Hvergerðingar er að vonum ánægðir með þessar framkvæmdir. Þær skapa atvinnu og bærinn vex sem er draum- ur allra sem búa á smástöðum úti á landi. -APH Listi Sjálfstæðisflokksins: Sprenging í ferðamálum Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft hreinan meirihluta í hreppsnefnd þetta kjörtímabil. Listinn fékk 53,7 prósent greiddra atkvæða. „Við erum bjartsýnir ó að halda meirihlutanum. Það verður trúlega mjótt á mununum þar sem allir hinir flokkamir hafa sameinast gegn okk- ur,“ sagði Hafsteinn Kristinsson, efsti maður á lista Sjólfstæðisflokksins. „Það hefur verið gríðarleg upp- bygging hér þetta kjörtímabil. Hér hefur risið Tívolí og nýtt hótel er í þann mund að taka til starfa. Það má segja að hér hafi orðið sprenging í ferðamannaþjónustu." Hafsteinn segir að í sumar standi til Hatsteinn Kristinsson. að leggja tvo kílómetra af bundnu slit- lagi. Haldið verður áfram við bygg- ingu grunnskólans og þegar hafi verið byggt nýtt íþróttahús sem sé annað stærsta íþróttahús á Suðurlandi. „Við viljum áfram styðja við þessa uppbyggingu í ferðamálum. Síðan þarf einnig að huga að uppbyggingu iðnað- ar. í því sambandi viljum við kaupa Ölfusvelli af ríkinu og nota háhitann þar fyrir orkuferkan iðnað,“ sagði Hafsteinn. Þegar hefur verið úthlutað lóð ó Ölfusvöllum undir þilplötuverksmiðju og gert er ráð fyrir að samið verði við ríkið um kaupin á næstu dögum. -APH Listi Félagshyggjufólks: Ætlum að fella memhlutann Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag hafa sameinast og bjóða nú fram sem einn listi, Listi f élagshyggjufólks. „Við fórum út í þetta með það fyrir augum að fella meirihlutann og teljum okkur hafa góðar vonir um það,“ sagði Gísli Garðarsson, efsti maður listans. „Það er ýmislegt sem við erum óán- ægðir með, sérstaklega þá fijálshyggju sem ríkt hefur í skipulagsmálum héma. Við teljum að öfugt hafi verið farið að. Hér hafa verið byggð upp fyrirtæki og síðan skipulagt ó eftir í stað þess að skipuleggja áður. Það er augljóst að ekki er til fjár- magn nema til framkvæmda við grunnskólann. Við viljum að tekið Gísli Garðarsson. verði framkvæmdalán til þeirra fram- kvæmda. Þá skapast svigrúm til að sinna gatnagerð og hitaveitumálum. Hitaveitan hér er í hörmulegu ástandi og við leggjum til að gert verði við hana. Einnig vantar nýjan knattspymu- völl. Við höfum aðeins gamlan malarvöll og höfum fengið að nota hann á undanþágu.“ Gísli segist vera ánægður með að Tívolí hafi verið reist í Hveragerði og einnig að nú sé nýtt hótel að rísa. Þó beri að hafa í huga að þessi fyrirtæki skapi fyrst og fremst láglaunastörf. Mikilvægt sé að skapa fjölbreyttara atvinnulíf og einnig sé þörf á að reisa iðngarða. -APH Þessir listar eru í framboði: D-listi, Sjálfstæðisflokksins: 1. Hafsteinn Kristinsson 2. Alda Andrésdóttir 3. Hans Gústafsson 4. Marteinn Jóhannesson 5. Ólafur Óskarsson 6. Bjöm Pálsson 7. Pamela Morrison 8. Páll Guðjónsson 9. Erla Alexandersdóttir 10. Bjöm Sigurðsson 11. Gunnar Davíðsson 12. Ævar Axelsson 13. Helgi' Þorsteinsson 14. Gunnar Kristófersson H-listi, félagshyggjufólks: 1. Gísli Garðarsson 2. Ingibjörg Sigmundsdóttir 3. Valdimar Ingi Guðmundsson 4. Sigríður Kristjánsdóttir 5. Bjöm Pálsson 6. Stefán Þórisson 7. Runólfur Þór Jónsson 8. Magnús Ágúst Ágústsson 9. Þórdís Jónsdóttir 10. Guðríður Austmann 11. Halldór Höskuldsson 12. Gestur Eyjólfeson 13. Sigurður Jakobsson 14. Auður Guðbrandsdóttir ÚrslH 1982 Þrír listar vom í framboði í kosn- ingunum 1982. Úrslit urðu þessi: Framsóknarflokkur (B) 184 2 Sjálfstæðisflokkur (D) 339 4 Alþýðubandalag (G) 108 1 Þessir menn voru kjömir í hrepps- nefnd: Garðar Hannesson (B), Gísli Garð- arsson (B), Ævar M. Axelsson (D), Sigríður Guðmundsdóttir (D), Gunn- ar Davíðsson (D), Bjöm Sigurðsson (D) og Úlfur Bjömsson (G). Spurt á Selfossi: Hverju spáir þú um úrslit kosninganna hér á Selfossi? Regína Thorarensen fréttaritari: - Ég treysti Brynleifi lækni og henni Bryndísi Brynjólfsdóttur mjög vel og ætla að kjósa þau. Ég spái því að Kvennalistinn fái einn fulltrúa í hreppsnefndina, þær eru mjög mál- efnalegar. Alþýðubandalagið fær svo tvo, Sjálfstæðisflokkur fjóra og Framsókn tvo. Benedikt Franklínsson bílstjóri: - Það er mjög erfitt að spá um úr- slit. Þetta á eftir að ruglast mikið því það eru margir nýir listar og nýtt fólk. Guðjón Öfjörð rennismiður: - Sjálfstæðisflokkur fær 3 menn, Framsóknarflokkur 4, Alþýðubanda- lag 1 og Alþýðuflokkur 1. Jón Ragnar Ólafsson, atvinnulaus: - Ætli þetta verði ekki mjög svip- að. Kannski tapar Framsókn einum til Kvennalistans. Hrafnkell Guðmundsson nemi: - Sjálfstæðisflokkur heldur sínum fjórum fulltrúum. Guðjón Bárðarson ellilífeyrisþegi: - Eg hef ekkert spekúlerað í þessu og veit ekki hverju ég á að spá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.