Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Síða 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjömu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hvcrja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,6% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 13,75% nafnvöxtum og
14,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mán-
uð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygg-
ing auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir em færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir cru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuöi 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 12,4%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tek-
ið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mán-
uði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2% árs-
ávöxtun. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnar-
firði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seölabankanunrt, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning rr.illi
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10.25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.198*> 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM ' | | SJA SÉRLISTA 11 || iiiiiiif liiilhi
INNLÁN ÓVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæða 9.0 9.0
SPARIREIKNINGAR 3jamán uppsögn 10,0 10.25
6 mán. uppsögn 12.5 12.9
12mán. uppsögn 14,0 14,9
SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Sparað3-5 min 13.0
Sp. 6 mán. ogm. 13.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0
Hlaupareikningar 4.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0
6mán.uppsögn 3.5
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadollarar 8.0
Sterlingspund 11.5
Vestur-þýsk mörk 4.5
Danskar krónur 8.0
ÚTLAN óverðtryggð ALMENNIRViXLAR VIÐSKIPTAVfXLAR 3) (forvextir) (lorvextir) 15.25
ALMENN SKULDABRÉF 2) VIÐSKIPTASKULOARRÉF 3) 15.5
HLAUPAREIKNINGAR YFIRORATTUR 9.0
útlAn verðtryggð SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0
Lengrien21/2 ár 5.0
ÚTLÁN TTL FRAMLEIÐSLU
SJA neðanmAls 1)
8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.0 10.0
14.0 11.0 12.6 12.0
13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
6.0 2,5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.2S 6.5 6,25
11.5 9.5 9.0 9.5 10,5 10.5 11.5 9.5
4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
9.5 7.0 7.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25
kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
15,5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5
kge 20.0 kge 20.0 kge kge kge kge
9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4,0 4.0
5.0 5.0 5.0 5.0 5,0 5.0 5,0 5.0
X) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 9,25%, í Bandaríkjadollurum 9, 0%, í sterlingspundum 13,25%, í
vestur-þýskum mörkum 5,75%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilal-
ána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge,
hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðun-
um.
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
Állinn dýrastur
í Barcelona
Ekki hafa borist upplýsingar
um sölur á fiski erlendis utan
það að ms. Súlan seldi á
þriðjudag í Grimsby og fékk
að meðaltali kr. 57 fyrir kílóið.
Miklum verðmætum hent?
Ensím eru talin til þeirra e&ia sem
í framtíðinni verða hvað verðmætust
til ýmislegrar framleiðslu. Rann-
sóknastofriun fiskiðnaðarins heíur í
samvinnd við Rannsóknastofnun
Hóskólans unnið að rannsóknum á
framleiðslu ensíma, en þetta er mik-
ið og taísamt rannsóknarefhi og
sennilega er með þessar rannsóknir
eins og svo mörg önnur þörf rann-
sóknarstörf að skorið er vel við nögl
það fé sem til rannsóknanna þarf.
Hér er þörf á stórátaki eins og á
mörgum öðrum sviðum, en við verð-
um að stefna að því að sjávaraflinn
nýtist sem allra best. Til þessarar
framleiðslu er notað slógið úr fiskin-
um og annar úrgangur sem ekki
nýtist til annarrar framleiðslu.
Noregur
í blaðinu Fiskaren er grein um þær
rannsóknir sem gerðar hafa verið í
Noregi. Segir blaðið frá þvi að fram
hafi farið rannsóknir á framleiðslu
ensíma og að um sé að ræða dýrmæt
efni sem nota eigi við ýmsa fram-
leiðslu. Norsk Hydro er í samvinnu
við dótturfyrirtækið Biochemical
A/S að reisa verksmiðju í Norður-
Noregi til framleiðslu á þessum efn-
um.
í fyrsta lagi verða framleidd efni
sem notuð verða við framleiðslu á
osti og í öðru lagi verður framleitt
efni til að nota við framleiðslu á
þvottaefrú. Telja Norðmenn að hér
sé um mjög arðvænlega framleiðslu
að ræða. Hvað varðar þvottaefhið
er ætlunin að framleiða efhi sem
þvær þvott við miklu lægra hitastig
en áður; telja þeir að við það að þvo
Fiskmarkaðirnir
Ingólfur Stefánsson
við svo lágt hitastig sem gert er ráð
fyrir sparist geysileg orka.
New York
Á markaðnum hjá Fulton hefur
verið mikið framboð af fiski að und-
anfömu, en fyrir hvítasunnuhelgina
var verðið viðunandi. Stórlúða frá
Alaska, sem veidd er í Kyrrahafinu,
flæddi yfir markaðinn, en lúða frá
Kyrrahafinu er aldrei í eins góðu
verði og Atlantshafelúðan. Verðið á
lúðunni var kr. 335 kílóið. Eins og
áður barst mikið af laxi frá Noregi.
Mikið af laxi haföi eyðilagst á mark-
aðnum vegna sölutregðu og um tíma
var bannað að flytja inn lax frá
Noregi. Kom þetta sér illa fyrir selj-
endur á íslandslaxi sökum þess að
hann er seldur undir merkjum
norskra fyrirtækja. Þessu verður að
breyta og getur ráðið úrslitum um
sölu laxins. Hafevæðið í kringum
ísland er eitt það ferskasta í Norð-
ur-Atlantshafinu og lítil hætta á
menguðum fiski héðan.
Meðalverð á þroski var kr. 139
kílóið, karfa kr. 70 og ýsu kr. 141
kflóið. íslenskur hörpudiskur seldist
á kr. 375 kílóið og hefur verið lítill
verðmunur á stórum og millistórum
hörpudiski. Meðalverð á laxi var kr.
360 kílóið.
Madrid
Mikið barst að af ferskum fiski
fyrir hvítasunnuhelgina, en markað-
ur var góður þrátt fyrir þetta mikla
framboð. Þó féll markaðurinn nokk-
uð eftir hátíðina þótt aðeins væm 4
söludagar í þeirri viku. Verðið á
þorskinum var kr. 87 kílóið og verð
á laxi fór niður í 230 kr. meðalverð.
Barcelona
í tilkynningu frá Mecanbama-
markaðnum kom eftirfarandi fram:
Á árinu 1985 seldust alls 23.000 tonn
af skelfiski; þar af vom 12.500 tonn
af bláskel og var meðalverð hennar
kr. 18,70. Af skötusel var landað 4.
119 tonnum og var meðalverð hans
kr. 235 kílóið. Hæst verð fékkst fyrir
ál, en meðalverð á honum var kr.
1260 kílóið. Ekki hefur gengið vel
að selja norskan lax eftir óhappið í
Kiev.
París
Venjulega er maí besti sölumánuð-
ur ársins á laxi, en vegna óhappsins
í Kiev hefur orðið að fylgja hverri
sendingu heilbrigðisvottorð. Hefur
dregið mjög úr kaupum manna og
verðið verið fremur lágt eða frá kr.
240-355 kílóið. Lítið hefur borist til
markaðarins af laxi frá Skotlandi,
Shetlandseyjum, Færeyjum og ekk-
ert frá íslandi, eins og venjulega.
Erfitt er að gera sér grein fyrir hvort
eitthvað af laxi frá íslandi sé á mörk-
\ uðunum þar sem hann selst undir
norskum framleiðslumerkjum.
Um hvítasunnuna mynduðust langar biðraðir við bensinsjálfsalana sem teknir vom í notkun fyrir ári.
Bensínsjálfsalar gera það gott
Bensínsjálfsalamir hafa fengið að
vera í friði fyrir skemmdarvörgum, að
sögn forsvarsmanna Olíufélagsins
Skeljungs og Olíufélagsins hf. Nú er
liðið ár síðan þessi félög fóru að bjóða
þessa þjónustu og að sögn hafa við-
skiptin aukist jafnt og þétt. I fyrstu
vom menn hræddir við skemmdarverk
líkt og á símaklefum í borginni en sá
ótti hefur reynst ástæðulaus.
Nú hefur verið settur upp fjöldi
bensínsjálfeala í Reykjavík og ná-
grenni og nokkrir eru komnir upp úti
á landi. Nýlega bættist við ný gerð
sjálfeala hjá Skeljungi sem tekur allar
gerðir seðla. Hingað til hefur bara
verið hægt að nota 100 krónu seðla í
bensínsjálfealana.
Bjöm Jónsson hjá Skeljungi sagði í
samtali við DV að fáar kvartanir hefðu
borist vegna sjálfealanna. Nokkrir
byrjunarörðugleikar hefðu gert vart
við sig en nú væm menn famir að
kunna á þetta. Nýju sjálfealamir, sem
taka alla seðla, hefðu líka mælst vel
fyrir. Þó hefðu menn flaskað á því að
stilla þá þannig til að byija með að
vélin tók ekki krumpaða seðla. Þessu
heföi nú verið kippt í lag.
Olíufélagið hf. reið á vaðið með þessa
þjónustu í fyrrasumar. Sjálfealar hafa
verið settir upp á þremur stöðum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu en auk þess
í Borgamesi, á Akureyri og Egilsstöð-
um. Að sögn Þorsteins Þorsteinssonar
hjá Olíufélaginu hf. er mjög sjaldgæft
að menn segi sínar farir ekki sléttar
af viðskiptum við bensínsjálfealana og
allir séu mjög ánægðir með þessa þjón-
ustu.
Olís mun nú fljótlega bætast í hóp-
inn og setja upp sjálfeala á sínum
bensínstöðvum. Þórður Ásgeirsson,
forstjóri Olís, sagði í samtali við DV
að Oh's myndi setja upp bensínsjálf-
sala í næsta mánuði. Boðið yrði upp
á þessa þjónustu á öllum helstu bens-
ínstöðvum Olís á Reykjavíkursvæð-
inu, svo og á nokkrum stöðum úti á
landi. Um yrði að ræða sjálfeala sem
tækju bæði 100 og 1000 krónu seðla.
Áður en bensínsjálfealamir komu til
sögunnar var Umferðarmiðstöðin eini
staðurinn í Reykjavík þar sem hægt
var fa keypt bensín eftir lokun. Þar
reka olíufélögin þrjú sameiginlega
bensínstöð sem opin er fram eftir
nóttu. Margir þurftu líka að grípa til
þess örþrifaráðs að fá að fylla á tank-
inn á leigubílastöðvunum. Þetta er
liðin tíð.
-EH