Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Síða 11
DV. FIMMTUDAGUR 22. MAl 1986.
11
Viðtalið Viðtalið Viðtalið Viðtalið
Helgi Pétursson, blaðafulltmi SIS:
„Reynt að troða í mig
marxískum fræðurn"
„Ég var hafður úti í bandi þegar
ég var lítill í Norðurmýrinni. Ég
slapp þó stundum og einu sinni stalst
ég upp á Laugaveg og klemmdi mig
á hurðinni á Liverpool," sagði Helgi
Pétursson, nýráðinn blaðafulltrúi
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga.
„Þá þótti mér veröldin stór, en hún
hefur skroppið saman síðan,“ sagði
Helgi sem er 37 ára gamall.
Helgi fluttist ungur með gölskyldu
sinni í Kópavog og hóf skólagöngu
þar. Á þeim tíma var hann farinn
að raula heilmikið. „Ég kunni ýms
lög og marga texta mjög snemma,
sem endaði með þvi að ég og félagar
mínir í Kópavogi stofnuðum Ríó
tríóið þegar við vorum enn í skyld-
unámi. Við skemmtum á skólaböll-
um og víðar.“
Marxísk fræði
Helgi varð fljótt áberandi í skóla-
lífinu, hann varð formaður skólafé-
lagsins og gat spilað og sungið. „Við
félagamir létum þó oft eins og fífl í
skólanum." Helgi hóf síðan nám í
Kennaraskólanum og lauk þaðan
prófi 1970. Hann kenndi í Kópavogi
í 3 ár. „Nemendurnir voru mjög
skemmtilegir og það gekk á ýmsu.
Ég var bara nokkrum árum eldri en
þeir og varð þeirra ráðgjafi í mörgum
erfiðum málum sem oft heija á ungl-
inga á gelgjuskeiði."
„Síðan lenti ég í ferðalögum, ferð-
aðist um allan heim með Ríó tríóinu,
dvaldi í Noregi um tíma og vann
„free lance“ hjá norska útvarpinu.
Þá ákvað ég að fara í stjómmála-
fræði í Árósum í Danmörku. En þar
reyndu þeir að troða í mann marx-
ískum fræðum. Ég flosnaði upp frá
námi og kom heim 1975, fór að vinna
hjá Dagblaðinu og datt þá endanlega
í blaðmennskuna."
Fjólubláir kjúklingar
Árið 1979 var Helgi ráðinn rit-
stjóri Vikunnar og ári seinna réðst
hann til Ríkisútvarpsins sem frétta-
maður. „Það var gaman á Vikunni,
hún leið að vísu fyrir tæknilega galla
á þessum tíma, t.d urðu kjúklingar
gjaman fjólubláir og sósur grænar,
þegar blaðið kom úr prentun.“
Helgi fór síðan til Washington að
læra fjölmiðlafræði og kom heim
þaðan 1983 og fór beint á fréttastofu
útvapsins aftur. Árið 1985 varð hann
síðan ritstjóri hjá dagblaðinu NT,
en þar var hann stutt, útgáfii blaðs-
ins var hætt. „Það urðu mér von-
brigði er ég áttaði mig á því að
gmnnur þess blaðs var eitt fen og
reksturinn í molum,“ sagði Helgi.
Eignast framsóknarmenn
Eftir að Helgi kom heim úr marx-
ísku fræðunum í Danmörku náði
hann sé í konu, Bimu Pálsdóttur,
og er nú búinn að eignast með henni
fjögur böm.„Það hefur verið sagt
um mig að ég haldi að eina leiðin
til að fjölga framsóknarmönnum sé
að eignast þá sjálfur."
„Ég reyni að eyða frístundum mín-
um með fjölskyldunni og nánustu
ættmönnum. Tengdaforeldrar mínir
eiga sumarbústað og þar dveljum við
mikið á sumrin. Ég hef gaman af að
bregða mér út á meðal fólks og stytta
mér stundir. Ég er nánast alveg
hættur að spila. Á næstunni mun ég
sennilega ferðast mikið um landið, á
milli kaupfélaga. Ég hlakka til þess,
ég hef skammarlega lítið séð af mínu
eigin landi.“
Þingmennska og metnaður
Því hefúr verið haldið fram að
Helgi gengi með þingmanninn í
maganum. „Ég hef engin slík áform,
ég er kominn hér í ágæta stöðu hjá
Sambandinu. Það er mjög nauðsyn-
legt að kynna betur starfsemi fyrir-
tækis af þessari stærðargráðu. Þetta
er umfangsmikið verkefni, en ég veit
að ég fæ aðstoð, því hér er mikið af
ungu og vel menntuðu fólki í
ábyrgðarstöðum." Um metnaðar-
gimi sína sagði Helgi: „Ég held að
ég færi heim og legði mig ef ég fyndi
eitthvað sem fullnægði mínum metn-
aði.“
-KB
»Það hefur verið sagl um mig að ég héldi að eina leiðin til að fjölga fram-
sóknarmönnum væri að eignast þá sjálfur," sagði Helgi. Hér er hann ásamt
bömum sínum fjórum, þeim Bryndísi, 8 ára, Pétri, 7 ára, Heiðu Kristínu,
3 ára, og Snorra 2 ára.
<////•
■'“////‘ ''lllll’.
'H''‘iinit,■"////>
’llllii ‘lllW ‘Ht” /u.
.///////'- “11111’ ‘H/.\
,////llll‘' -iIH“T
Sjálfstæðismenn, greiðum heimsenda gíróseðla.
Skrifstofa happdrættisins í Valhöll er opin alla daga
Aðeins dregið úr seldum miðum.
DREGIÐ 27 MAI 1986
Glæsilegir vinningar að verðmæti kr. 1.749.780,-
3 fólksbifreiðir:
Nissan Cherry GL 5 dyra, Corolla 1300 5 dyra
og Suzuki Swift 5 dyra.
14 glæsilegir ferðavinningar
SJÁLFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN