Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986. 35 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Úrslit 1982 Fimm listar voru í framboði í kosn- ingunum 1982. Úrslit urðu þessi: Alþýðuflokkur (A) 203 1 Framsóknarflokkur (B) 559 3 Sjálfctæðisflokkur (D) 677 4 Alþýðubandalag (G) 249 1 Óháðir kjósendur 169 0 Þessir voru kjömir í bæjarstjóm: Steingrímur Ingvarsson (A), Ingvi Ebenhardsson (B), Hafsteinn Þor- valdsson (B), Guðmundur Kr. Jónsson (B), Óli Þ. Guðbjartsson (D), Guðmundur Sigurðsson (D), Ólafur Helgi Kjartansson (D), Guðfinna Ólafcdóttir (D) og Sigur- jón Erlingsson (G). Selfoss: Sex listar í framboði Á Selfossi hafa menn áhyggjur af atvinnumálunum eins og svo víða annars staðar. Bærinn hefur í gegnum tíðina verið þjónustubær íyrir sveit- imar í nágrenninu. Nú hallar undan fæti hjá bændum og það bitnar að sjálfcögðu á atvinnulífinu á Selfossi. Þess vegna vilja allir frambjóðendur efla atvinnuþróunina. Hinn almenni kjósandi hefur úr mörgu að velja því að sex listar bjóða nú fram. Tveir þessara lista em nýir af nálinni; Kvennalistinn og Flokkur mannsins. Þetta kjörtimabil hafa Framsóknar- flokkur og Sjálfctæðisflokkur starfað saman í meirihluta bæjarstjómarinn- -APH Alþýðubandalag: Auka félags- lega þjónustu „Atvinnumálin skipta okkur mestu máli. Við viljum að bæjarfélagið eigi frumkvæðið að atvinnuuppbyggingu hér og bíði ekki bara eftir því að hlut- imir gerist. Einnig viljum við að hingað verði ráðinn atvinnumálafull- trúi,“ sagði Þorvarður Hjaltason, efsti maður á lista Alþýðubandalagsins. „Við leggjum einnig mikla áherslu á að auka félagslega þjónustu. Upp- bygging á þvi sviði hefúr að mestu legið niðri. Það þarf að koma upp dagvistarheimili með hraði og halda áfram byggingu íbúða fyrir aldraða eða halda áfram þar sem frá var horf- ið ’78 til ’82. Þá viljum við að hér verði byggðar íbúðir á félagslegum gmnd- velli. -APH Þorvarður Hjaltason. Flokkur mannsins: Ekki bóla sem springur Flokkur mannsins hefur verið starf- srndi á Selfossi síðastliðin tvö ár og býður nú fram lista í þessum kosning- um. „Við viljum að bæjarfélagið gefi gott fordæmi og hækki laun bæjarstarfe- manna. Við teljum það vera mögulegt ef litið er á það sem sjálfcögð mann- réttindi að hafa mannsæmandi laun,“ sagði Davíð Kristjánsson, efeti maður lista Flokks mannsins. „Hér þarf einnig meira atvinnuör- yggi svo að fólk þurfi ekki að flýja þetta láglaunasvæði. Einnig verður að hraða framkvæmdum við byggingu íbúða fyrir aldraða. Við teljum að um 70 til 80 prósent fólks sé sammála okkar stefnumálum, en það þorir ekki að kjósa okkur Davíð Kristjánsson. vegna þess að það heldur að þetta framboð sé einhver bóla sem eigi eftir að springa. Það er mesti misskilning- ur. -APH Kvennalisti: Laun aldrei undir fram- færslukostnaði „Við viljum auka hlut kvenna í bæjarstjómarmálum. I síðustu kosn- ingum komst aðeins ein kona í bæjarstjómina,” sagði Sigríður Jens- dóttir, efeta kona á lista Kvennalist- ans, sem býður fram í fyrsta skipti á Selfossi. „Við setjum atvinnu-, launa- og fé- lagsmál á oddinn. Við viljum að bæjarfélagið styðji atvinnufyrirtæki ef þörf krefur og reyni að laða hingað ný fyrirtæki. Einnig leggjum við áherslu á að greidd verði mannsæm- andi laun og að þau verði aldrei undir framfærslukostnaði." Það em fjölmörg önnur málefhi sem Kvennalistinn vill koma í framkvæmd. Að sögn Sigríðar er mikil þörf á dag- vistun fyrir böm á Selfossi og einnig að komið verði á samfelldum skóla- Sigríður Jensdóttir. degi. Þá er mikilvægt að bætt verði þjónusta við aldraða. -APH Framsóknarflokkur: Fjárhagurinn á réttum kili „Meirihlutasamstarfið hefúr gengið mjög vel. Okkur hefur tekist að koma á mjög góðri fjárhagsstöðu bæjarfé- lagsins. Við mörkuðum ákveðna stefnu í þeim efnum í upphafi og höfum náð að koma bæjarfélaginu á réttan kjöl. Greiðslustaðan er góð og við- skiptatraust bæjarins út á við einnig gott,“ sagði Guðmundur Kr. Jónsson, efcti maður á lista Framsóknarflokks- ins. Að sögn Guðmundar leggur Fram- sóknarflokkurinn mesta áherslu á að efla atvinnumál bæjarins. Þegar liggi fyrir samþykkt bæjarstjómar um að útvega fjármuni til kaupa á hlutabréf- um í fyrirtækjum og einnig til að auka hlutafé í fyrirtækjum. Fjölmörg önnur mál em á dagskrá Framsóknarflokksins. Efla þarf m.a. æskulýðs- og íþróttamál og einnig er Guðmundur Kr. Jónsson. stefnt að því að leysa dagvistunarmál bæjarins á árinu 1987. -APH Alþýðuflokkur: Fyrirsjáan- legur sam- dráttur hér „Við viljum fyrst og fremst efla at- vinnulífið. Selfoss hefúr verið þjón- ustubær við sveitimar hér í kring. Nú er búið að byggja upp í sveitunum og að auki hefúr mjólkurkvótinn verið minnkaður. Það er því fyrirsjáanlegur samdráttur hér á Selfossi. Fyrir þenn- an leka verður að komast. Við viljum auglýsa staðinn og efla ráðgjöf fyrir fyrirtæki um markaðsmöguleika,11 sagði Steingrímur Ingvarsson, efeti maður á lista Alþýðuflokksins. Steingrímur er einnig óánægður með þann samning sem bæjarstjómin hefúr gert við Samvinnuferðir/Landsýn um rekstur hins nýja félagsheimilis og Steingrímur Ingvarsson. vill að hann verði endurskoðaður. „Við viljum koma inn kvöðum þannig að félagsheimilið fúllnægi þörfúm bæj- arbúa, og þá sérstaklega unglinga." -APH Sjátfstæðisflokkur: Flokkurinn er velferðar- flokkur „Við leggjum áherslu á að flokkur- inn er velferðarflokkur þó að sumir vilji halda því fram að hann sé íhalds- og peningaflokkur. Við viljum nálgast vandamálin þannig að framtak og frelsi til athafna sé í fyrirrúmi. Að okkar mati á ekki að stýra fólki held- ur á það hafa möguleika til að eiga sjálft frumkvæði," sagði Brynleifur H. Steingrímsson, efcti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Brynleifur telur þó að bæjarfélagið eigi að hafa frumkvæðið í ýmsum málum t.d. þegar um er að ræða meiri- háttar fjárstreymi inn í bæinn. „Við höfúm einnig áhuga á að efla iðnað í kringum landbúnað og sjávar- Brynleifur H. Steingrimsson. útveg,“ segir Brynleifur og telur að það hafi verið mikil mistök að selja togarann Bjama Herjólfcson á sínum tíma. Sjávarútvegur eigi enn erindi til Selfoss og nauðsynlegt sé að vinna að þvi að koma upp fiskvinnslu þar á nýjan leik. -APH A-listi Alþýðuflokksins 1. Steingrímur Ingvarsson 2. Eygló Lilja Gránz 3. Sigurjón Bergsson 4. Katrín Bjamadóttir 5. Júlíus H. Baldvinsson 6. Erla Eyjólfsdóttir 7. Sigurður Guðjónsson 8. Ásgrímur Kristófersson 9. Sigríður Á. Jónsdóttir 10. Heiðar Snær Engilbertsson 11. Laufey Kjartansdóttir 12. Jakobina Óskarsdóttir 13. Sigríður Bergsteinsdóttir 14. Hreinn Erlendsson 15. Sigurbjörg Gísladóttir 16. Jón I. Sigurmundsson 17. Jónas Magnússon 18. Guðmundur Jónsson B-listi framsóknarmanna 1. Guðmundur Kr. Jónsson 2. Grétar H. Jónsson 3. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir 4. K. Hjördís Leósdóttir 5. Pálmi Guðmundsson 6. Jón G. Bergsson 7. Jón Ó. Vilhjálmsson 8. Ásdís Ágústsdóttir 9. Guðbjörg Sigurðardóttir 10. Hákon Halldórsson 11. Sólrún Guðjónsdóttir 12. Vignir Rafn Gíslason 13. Þorgrímur Óli Sigurðsson 14. Ingibjörg Stefánsdóttir 15. Guðmundur Eiríksson 16. Sigurdór Karlsson 17. Sigurfmnur Sigurðsson 18. Ingvi Ebenhardsson D-listi Sjálfstæðisflokksins 1. Brynleifur H. Steingrímsson 2. Bryndís Brynjólfsdóttir 3. Haukur Gíslason 4. Valdimar Þorsteinsson 5. Haraldur B. Amgrímsson 6. Arndís J. Jónsdóttir 7. Óskar G. Jónsson 8. Nína Guðbjörg Pálsdóttir 9. Sigurður Þór Sigurðsson 10. Þórunn Einarsdóttir 11. Björn Ingi Gíslason 12. Aðalheiður Jónsdóttir 13. Jakob J. Havsteen 14. Kolbeinn I. Kristinsson 15. Dagfríður Finnsdóttir 16. Páll Jónsson 17. Guðmundur Sigurðsson 18. Óli Þ. Guðbjartsson G-listi Alþýðubandalags 1. Þorvarður Hjaltason 2. Kolbrún Guðnadóttir 3. Sigríður Ólafsdóttir 4. Bryndís Sigurðardóttir 5. Ottó Valur Ólafsson 6. Þorbjörg Þorkelsdóttir 7. Hreggviður Davíðsson 8. Gyða Sveinbjörnsdóttir 9. Gunnar Jónsson 10. Ásthildur Bjarnadóttir 11. Magnús J. Magnússon 12. Lísbet Nilsdóttir 13. Gestur Ólafur Auðunsson 14. Hansína Stefánsdóttir 15. Magnús Aðalbjarnarson 16. Helga Guðjónsdóttir 17. Hafsteinn Stefánsson 18. Sigurjón Erlingsson M-listi Flokks mannsins 1. Davíð Kristjánsson 2. Einar G. Axelsson 3. Lilja Jónsdóttir 4. Sigríður Haraldsdóttir 5. Sævar H. Geirsson 6. Guðný K. Axelsdóttir 7. Benedikt Þ. Axelsson 8. Stefán Pétursson 9. Maria Hafsteinsdóttir 10. Lúðvík P. Jónsson 11. Haraldur Magnússon 12. Haraldur Skarphéðinsson 13. Niels Joenson 14. Bergur Sigurjónsson 15. Þorvaldur Sigurðsson 16. Sigurður R. Óttarsson 17. Guðmundur S. ólafsson 18. Sigríður Einarsdóttir V-listi Kvennalistans 1. Sigríður Jensdóttir 2. Ramiveig Óladóttir 3. Valgerður Kr. Fried 4. Kristjana Sigmundsdóttir 5. Svanheiður Ingimundardóttir 6. Jóhanna Lárusdóttir 7. Sigrún Ásgeirsdóttir 8. Kristín G. Guðmundsdóttir 9. Sigrún Jensey Sigurðardóttir 10. Guðrún Sigríður Þórarinsdóttir 11. Guðrím Amhildur Sveinsdóttir 12. Sigurbjörg Árnadóttir 13. Lilja Guðmundsdóttir 14. Ería Bára Andrésdóttir 15. Nanna Þorláksdóttir 16. Sigríður Matthíasdóttir 17. Kristín Þórarinsdóttir 18. Jóna Þómnn Vigfúsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.