Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 31.MAÍ 1986. 49 HM í Mexíkó HM í Mexíkó HM í Mexíkó HM í Mexíkó Mexíkó: æfingabúðum • Arnór Guðjohnsen. Belgía fer upp - segir Amór Guðjohnsen Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara Dy í Belgíu: Ég hef trú á því að Evrópuliðin Frakkland, Spánn, England og Sov- étríkin komi til með að beijast um HM-titilinn ásamt S-Ameríkuliðun- um, Argentínu, Brasilíu og Mexíkó," sagði Arnór Guðjohnsen knatt- spyrnumaður sem leikið hefur með belgíska liðinu Anderlecht undan- farin ár. Hverjir eru möguleikar Belga? „Ég held að þeir geti komið á óvart og ég spái að þeir komist upp úr riðlinum. Það fer þó mikið eftir því hvernig þeir ná að aðlagast lofts- laginu og hitanum í Mexíkó. Vörnin er veikasti hlekkurinn þó að liðið sé með mjög góðan markvörð og hinn frábæra Eric Gerets. Mér finnst þá tilfinnanlega vanta leikstjórnanda á borð við Platini hjá Frökkum. Liðs- heildin og taktískur leikur liðsins kemur til með að verða aðalvopn liðsins í keppninni. Hvað um þig, er ekki sárt fyrir at- vinnumann að sitja heima? Það er draumur hvers leikmanns að leika í heimsmeistara- eða Evrópukeppni, auglýsingin sem hver leikmaður fær er ótrúleg. Ég get nefnt sem dæmi Preben Elkjær Larsen sem var búinn að eiga miðlungstímabil með Loker- en. í síðustu Evrópukeppni lék hann frábærlega með danska landsliðinu og fékk að launum gott tilboð frá Ítalíu þar sem hann leikur nú. Ár í Líklega kemur ekkert lið betur undirbúið til keppninnar en gestgjaf- arnir Mexíkó. Þeir landsliðsmann- anna, sem leika með mexíkönskum félagsliðum, hafa verið meira og minna í æfingabúðum í eitt ár fyrir keppnina. Þá kemur þunna loftið þeim heldur ekki í opna skjöldu eins og svo mörgum öðrum liðum. Þvert á móti, þetta eru þær aðstæður sem heimamenn eru vanastir. Mexíkanskir áhangendur treysta á sitt lið og stjörnu sína, Hugo Sanc- hes, sem leikur með Real Madrid. Til marks um áhuga Mexíkana á átrúnaðargoði sínu má benda á að mexíkanska sjónvarpið sýnir alltaf leiki Real Madrid beint. Sanches var markahæstur í spönsku deildinni á síðasta keppnistímabili. Einn þeirra sem gæti gert garðinn frægan er Thomas Boy sem þekktur er fyrir aukaspyrnuar sínar. Hann er þó kominn af léttasta skeiði og mun tæpast leika í heilar níutíu mínútur. Annars er lið Mexíkó þannig: Markverðir 1. Paplo Larios. 25 ára. 39 leikir. Hávax- inn og líklegur aðalmarkvörður liðsins í keppninni. 12. Ignacio Rodriguez Baena. 29 ára. 13 leikir. 20. Olaf Heredia. 28 ára. 23 leikir. Varnarmenn. 2. Mario Trejo. 30 ára. 65 leikir. 3. Fernando Quirarte. 29 ára. 39 leikir. 4. Armondo Ponce. 27 ára. 43 leikir. 14. Felix Cruz. 26 ára. 44 leikir. 17. Raul Servin. 23 ára. 24 leikir. 18. Rafael Amador. 27 ára. 36 leikir. Miðjumenn. 6. Carlos de Los Cobos 27 ára. 34 leikir. 7. Miguel Espana. 22 ára. 41 leikur. 8. Alejandro t Dominguez. 24 ára. 24 leikir. 10. Tomas Boy. 33 ára. 70 leikir. Fyrir- liði. Hefur viðurnefnið „stjórinn". Mjög leikinn með vinstri fæti. Hefur skorað 23 mörk fyrir Mexíkó. 16. Carlos Munoz. 25 óra. 46 leikir. 21. Cristobal Ortega. 29 ára. 35 leikir. 22. Manuel Negrete. 26 ára. 54 leikir. Stjarna liðsins þegar Sanches leikur ekki. Jafnfættur og mjög leikinn. Líklegt að hann veki áhuga stórliða á meðan á keppnibnni stendur. 12 mörk fyrir Mex- íkó. Sóknarmenn. 5. Francisco Cruz. 20 ára. 1 leikur. 9. Hugo Sanchez. 27 ára. 58 leikir. hef- ur skorað 36 mörk fyrir Mexíkó. Vörumerki hans er kollhnís eftir gott mark. 11. Carlos Hermosillo. 21 árs. 28 leikir. 13. Javier Aguirre. 27 ára. 54 leikir. 15. Luis Flores. 24 ára. 46 leikir. Þrátt fyrir litla hæð, góður í loftinu. Líklegur til að leika með Sanches í fremstu víg- línu. 19. Javier Hernandez. 24 ára. 25 leikir. Þjálfari liðsins er Júgóslavinn Bora Milotinovic. Hann tók við lið- inu 1983 og hefur á þremur árum tekist að lagfæra leik þess mikið. Vinsæll meðal leikmanna og fjöl- miðla. Þjálfaði áður í Frakklandi. • Landslið gestgjafanna. Aftari röð frá vinstri: Munoz, Espana, Larios, Boy, Cruz, Manzo. Fremri röð frá vinstri: Aguirre, Negrete, Chavez, Amador, Flores. ERÞETTA EKKI , RÉTTA SPOLAN FYRIR ÞIG Viö óskum PANASONIC til hamingju meö nýju VHS myndbandsspóluna, PREMIUM STD. Það geröi japanska rafeindaeftirlitiö líka þegar þaö veitti PANASONIC PREMIUM spólunni viöurkenningu sína fyrir gæöi. Fyrsta VHS spólan sem fengiö hefur viöurkenningu frá þeirri stofnun. ^JAPIS 8RAUTARH0LT 2 SlMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.