Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1986, Side 6
6
DV. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1986.
Peningamarkaður
Atvinnumál
Atvinnumál
Atvinnumál
t-J':
Aflinn minnkaöi i maí miðað við sama mánuð í fyrra.
Heildarafli landsmanna:
Jókst um 41.000tonn
það sem af er árinu
Heildarafli landsmanna á tímabil-
inu frá janúar til maí á þessu ári
jókst um rúm 41.000 tonn miðað við
sama tíma í fýrra. Aflatölur fyrir
maímánuð eru aftur á móti nokkru
lægri en í maí á síðasta ári, eða
56.789 tonn nú miðað við rúm 60.000
á síðasta ári. Hér munar mestu um
afla bátanna sem dróst nokkuð sam-
an í síðasta mánuði.
Bátafloti landsmanna hefur veitt
heldur meira af þorski í ár en á sama
tíma í fyrra og munar þar 13.000
tonnum. Síldveiðar hafa einnig auk-
ist verulega, eða úr 33 tonnum í 185
tonn. Afli togaranna jókst í heildina
um rúm 20.000 tonn, þar af jókst
þorskaflinn um rúm 16.000 tonn.
Ef litið er á löndunarstaðina þá
hefur mestu verið landað í Vest-
mannaeyjum, eða 102.543 tonnum
og munar þar mest um loðnuna sem
var rúm 77 þúsund tonn. Það sem
af er þessu ári hefur orðið mikil
aukning á afla sem landað er erlend-
is eða um 78 þúsund tonn miðað við
rúm 47 þúsund á sama hluta síðasta
árs.
Ef litið er á skýrslur yíir vinnslu
aflans á tímabilinu frá janúar til
apríl á þessu ári kemur í ljós að
mestur hluti hans hefur verið fiyst-
ur, eða um 117.000 tonn, en saltverk-
uð voru um 78.000 tonn.
Á fyrstu 5 mánuðum ársins var
mestu landað á Austfjörðum, eða um
160 þúsund tonnum, en því næst á
Reykjanesi, 128 þúsund tonnum.
-S.Konn.
Fiskeldi í heiminum skil-
ar tólf milljónum tonna
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyíðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxb
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hveiju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13‘X, nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún bctri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Utvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. í>á ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3‘X, nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum. 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er
almennt 12 lj6% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% najnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
Á síðasta ári mun láta nærri að fi-
skeldi í heiminum hafi skilað 12
milljónum tonna. Spá starfshóps
Rannsóknaráðs ríkisins um að við Is-
lendingar getrun framleitt 100 þúsund
tonn þegar fram líða stundir lætur því
ekki mikið yfir sér.
I skýrslu starfshópsins er greint frá
afla í öllum heiminum á helstu tegund-
um úr sjó og vötnum. Þar er sagt frá
því að aflaaukning á veiðum hafi orð-
ið um 10% áratuginn fyrir 1983. Á
sama tíma hafi framleiðsla fiskeldis
tvöfaldast. Hlutur fiskeldisins var
kominn í tæp 13% af heimsaflanum
1981.
Það ár var heimsaflinn 77,7 milljónir
tonna. Sjávarfiskar voru 57,6 milljónir
tonna af því og ferskvatnsfiskar 8,5
milljónir tonna. Skeldýr voru 5,2 millj-
ónir tonna, krabbadýr 3,3 milljónir
tonna og þörungar og plöntur 3,1
milljón tonna. Á þessu ári, 1981, nam
hlutur fiskeldis 10 milljónum tonna
af heildaraflanum.
Þá segir f skýrslunni að búist sé við
30 milljóna tonna framleiðslu fiskeldis
í byrjun næstu aldar. Þannig er aug-
ljóst að vöxtur fiskframleiðslu með
eldi verður gífurlegur næstu árin. Þótt
12.000 fisktegundir séu í hafinu og 8.
000 í fersku vatni eru aðeins um 300
notaðar í fiskeldi og 30 þeirra mikil-
vægar. 20 tegundir af skeldýrum og
álfka margar þörungategundir eru
jafhframt í eldi.
Af þeim ferskvatnsfiskum sem álit-
legastir eru til eldis eru laxfiskar
heppilegastir á okkar slóðum. Talið
er að hlutur flatfiska, áls og skeldýra
aukist í framtíðinni.
Á árinu 1983 var heimsafli af laxi
899 þúsund tonn, þar af aðeins 27 þús-
und tonn af Atlantshafslaxi sem er
okkar handleggur. Næst kom 770 þús-
und tonna afli af vatnakarfa, þá 130
þúsund tonna afli af regnbogasilungi,
18 þúsund tonn af ferskvatnsrækju og
14 þúsund tonn af ál. Af sjávarfiskum
veiddist langmest af þorski, 2.070 þús-
und tonn, en næstmest af rauðsprettu,
146 þúsund tonn.
HERB
VEXTIR BANKA OG SPARISJÓÐA (%) 01 -10.06. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJA SÉRLISTA II jfll U ilif If ú
IIMNLAN ÚVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9,0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10,0 10.25 10,0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10,0 9.0
6 mán. uppsögn 12,5 12,9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0
12mán. uppsögn 14,0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR — LÁNSRtT ]UHSparað3-Smán. 13,0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10,0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13.0 13,0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4,0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2,5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán.uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6mán. uppsögn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
innlAn gengistryggð
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6,25 7.0 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.0 10.0 10.0 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk 4.0 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 7,5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ
ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAViXLAR 3} (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15,5 15.5 15.5 15,5 15.5 15,5 15,5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20.0 kge 20.0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGO
SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4j0 4.0 4.0
Lengri eri2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5,0
ÚTLÁN T1L FRAMLEHDSLU
SJANEÐANMALSI)
l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Aðeins 27 þúsund tonn af Atlantshafslaxi komu frá veiðum og úr eldi árið
1983, en alls fengust 899 þúsund tonn af laxi í heiminum það ár.