Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1986, Blaðsíða 36
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
DV. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1986.
Ólyginn
sagði...
Sylvester
Stallone
reynir nú sitt ítrasta til að fá
götu i Hollywood nefnda eftir
persónugervingi sínum, John
J. Rambo. Hann hefur jafnvel
gefið í skyn að hann sé reiðubú-
inn að borga skiltið með
götuheitinu.
Ketil Stokkan
norski þátttakandinn í Evróvis-
ion, hefur undanfarnar vikur
verið að ganga frá umfangsmik-
illi tónleikaför. Ferðin er nú hafin
og mun standa alveg fram í
september. Samkvæmt dag-
skránni á þessi Rómeó Norð-
manna að heimsækja
Danmörku, ÍSLAND og Sví-
þjóð. Undarlegt er að Ketil skuli
hafa eitthvað að segja við
Svíana þar sem þeir kunna
greinilega ekki að meta söng
hans. Þeir gáfu honum að
minnsta kosti ekkert stig!
■ - *
Ennþá sjarmi yfir Robert Wagner.
Indiana Jones, Han Solo og Harrison
Ford þykja smart.
Tony Danza, baseballstjarnan, skaut
sér í 6. sætið.
Larry Hagman,
sá sem leikur hinn illræmda J.R.
í Dallas-þáttunum sívinsælu,
hélt að hann væri sniðugur um
daginn. Leikarinn var staddur á
veitingastað og lét þjónana fá
einka-J.R.dollaraseðlana sína
sem þjórfé. Þjónarnir brugðust
hinir verstu við og vildu fá ekta
seðla og létu sér fátt um finnast
þó um stjörnuseðla væri að
ræða. i kjölfarið fékk Dallas-
stjarnan svo slæma þjónustu að
hann neyddist til að taka fram
veskið og greiða í ekta mynt.
Komst J.R. því ekki upp með
vélabrögð í þetta skiptið.
Kynþokkafyllstu karlmenn Ameríku!
Hvað eiga þeir Bruce Springsteen, Sean Penn, Eddie Murp-
hy og Ronald Reagan sameiginlegt? Sjálfsagt mætti tína
ýmislegt til en þeir eru a.m.k. allir í flokki þeirra 40 sem
taldir eru til kynþokkafyllstu karlmanna Ameríku. Tímaritið
Star gerði fyrir skömmu skoðanakönnun meðal bandarískra
kvenna sem leiddi ýmislegt athyglisvert í ljós og eflaust eiga
einhver „kyntákn" í erfiðleikum með að sætta sig við útkom-
una. Könnunin var unnin á þann hátt að konur á aldrinum
18-50 ára voru beðnar um að fylla út langan naínalista og
gefa einkunn frá 1-10 og átti að gefa öllum einkunn. Jafn-
framt voru konurnar í úrtakinu beðnar um að nefna það sem
þeim þætti kynþokkafullt í fari karla. Það sem einkum var
nefnt voru eiginleikar eins og: Gáfur, sanngirni, rödd, vöxtur,
kurteisi, riddaramennska og útlit. Er þetta birt landsins
sonum til hollrar íhugunar og ígrundunar.
I efsta sæti listans, með 49% atkvæða og titilinn kyn-
þokkafyllsti Kani sem vitað er um, er Tom Selleck. Hann var
vinsælastur í öllum aldurshópum og öruggur sigurvegari. í
öðru sæti komu gamla kempan Robert Wagner og nýjasta
goðið, Don Johnson, með 32,5% atkvæða. Fjórðu og aðeins
hálfu prósenti á eftir komu þeir Mark Harmon og Harrison
Ford, fornleifagrúskarinn illvígi. Á hæla þeirra komu allir
jafnir: Tony Danza, Robert Redford og David Hasselhoff.
Ætla má að aldurinn sé farinn að draga úr vinsældum Red-
fords sem ævinlega hefur skipað hærri sess en nú í skoðana-
könnunum þessum. Níundi varð Bruce Springsteen. Tíundi
Tom Cruise og ellefti kom Patrick Swayze. I tólfta sætið röð-
uðust gamlir kunningjar, þeir Burt Reynolds, Sylvester
Stallone og Patrick Duffy. Frammistaða Duffys vakti tölu-
verða athygli og þykir sýnt að þótt Bobby Ewing hafi verið
fjarri góðu gamni í Dallas-þáttunum undanfarið ár í Ameríku
sé hann síður en svo horfinn úr hugum amerískra kvenna.
Listinn er miklu lengri og ýmis þekkt nöfn koma fyrir. John
Forsythe, sem leikur frekjuhundinn Blake Carrington í Dyn-
asty, er nr. 15 og annar Dynasty leikari, John James er í 19.
sæti. Fyrirmyndarfaðirinn Bill Cosby er í 24. sæti og annar
engu síðri uppeldisfrömuður er í 26. sæti en það er Michael
Landon sem ól sín börn upp í Húsinu á sléttunni og um leið
heila kynslóð íslenskra barna í gegnmn sjónvarpið. Grínarinn
óborganlegi, Eddie Murphy, lenti i 29. sæti og eiginmaður
Madonnu, Sean Penn, þótti ekki betri en svo að hann varð
að sætta sig við 36. sætið. Penn þessi hefur íyrir utan það
að berja á ljósmyndurum getið sér frægðarorð sem „hin nýja
James Dean týpa“, virðist svo vera sem slíkar týpur eigi
ekki upp á pallborðið lengur ef taka á mið af útkomu Penns.
I fertugasta sæti kom síðan nestor listans, sjálfur Banda-
ríkjaforseti, Ronald Reagan. Þó að karl sé um 75 ára gamall
virðist ýmislegt við hann, a.m.k. töldu 7% hann vera þann
kynþokkafyllsta!
Sá allra glæsilegasti.
Nýjasta „sjarmabuffið” I Ameríku, IVIark Harmon varð I 4. sæti.
Don Johnson.
David Hasselhoff er óneitanlega
glæsilegur að sjá!