Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1986, Side 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1986.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Færeyingar sýni meiri mannúð
Gunnlaugur A. Jánssan, DV, Malmö:
Alþjóðahvalveiðiráðið hvetur Fær-
eyinga til að sýna meiri mannúð við
grindhvalaveiðar sínar. Á öðrum degi
fúndar hvalveiðiráðsins í Malmö í gær
var meðal annars fjallað um grindar-
dráp Færeyinga og því beint til dönsku
ríkisstjómarinnar að sjá til þess að
Færeyingar notuðu mannúðlegri að-
ferðir við veiðamar en fram að þessu
hafa tíðkast.
„Efnislega gekk þetta út á að þeir
myndu gera þetta eins vel og kostur
væri, nota króka og stingi eins lítið
og hægt væri og reka grindina á land
þar sem aðstæður væm góðar,“ sagði
Ámi Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, í samtali við
DV.
Þess má geta að þrír Færeyingar em
í sendinefhd Danmerkur á þinginu og
Faereyskir sjómenn við grindhvaladráp. Einn rússnesku fulltrúanna á þingi Aiþjóða hvalveiðiráðsins lét þau orð
falla i umræðunni um mannúðlegar veiðar Færeyinga á grindhval að til þess að vita hvað mannúðlegar hvala-
veiðar væm þyrfti maður að vera hvalur!
munu þeir fyrir sitt leyti hafa getað
fellt sig við þessa niðurstöðu þingsins.
Einn rússnesku fulltrúanna á þing-
inu hafði hins vegar á orði í umræðun-
um um mannúðlegar veiðar að til þess
að vita hvað mannúðlegar hvalaveiðar
væm þvrfti maður að vera hvalur!
Á fimdinum í gær var líka fjallað
iim veiðar Grænlendinga. Var sam-
þykkt samhljóða óbreytt veiðiheimild
til handa Grænlendingum þar sem
heimild þeirra til hrefhuveiða var þó
aukin nokkuð.
Samtök grænfriðunga og sænsk
dýravemdunarsamtök halda áfram
mótmælum sínum gegn hvalveiðum
fyrir utan fundarstað ráðsins í Malmö.
Mótmælendahópurinn er þó mjög
fámennur og hafði Kristján Loftsson
frá Hval hf. á orði að meira fjölmenni
væri við pylsusöluna á torginu heldur
en í hópi mótmælenda.
Myrti föður
sinn með
hagiabyssu
Gauti Grélaissan, DV, Þrándheimi:
Réttarhöld eru nú að hefjast í
máli nítján ára gamals piits í
Frostaþingi hér í Noregi er ákærð-
ur er fyrir að hafa myrt föður sinn
á grimmilegan hátt.
Á nýársnótt er ungi maðurinn
sakaður um að hafa tekið hagla-
bvssu af veggnum á heimili for-
eldra sinna og skotið fimmtugan
Riður sinn í bakið.
Eftir það tiikynnti hann um
morðið til yfirvalda.
Segist piltur ekki sjá hót eftir því
að hafa myrt föður sinn og segir
hann hafa átt það skilið.
Að sögn piltsins beitti faðirinn
fjölskylduna baxii andlegu og iík-
amlegu ofbeldi í mörg ár, og segist
sjálfur margsinnis hafa verið lam-
inn af föður sínum með ölhun
tiltækum barefium, þar á meðal
kúbeinum, hömrurn. og lausiun
spýtum.
Hann sagðist alltaf hafa orðið
að segja félögum sínum i skólanum
að hann hefði hrasað og slasað sig
til skýringar á ýmsum líkams-
meiðslum eflir barefli föðurjns.
Sakbomingur segist fyrst muna
eftir ofbeldi föður síns gegn móður
sinni er hann var ellefu ára gam-
all, en þá hljóp faðirinn um allt
heimili fjölskyldunnar á eftir móð-
urinni með byssu og hótaði að
myrða hana.
Segir sakbomingur föður sinn
hvað eftir annað hafa lamið konu
sína í höfuðið með byssuskeftinu
að ásjáandi ungum systkinum sín-
um.
Síðastliðna nýársnótt segir sak-
bomingur að faðir sinn hafi aftur
gengið berskerksgang, meðal ann-
ars stórlega sært annan son sinn,
tólf ára að aldri, fyrir það eitt að
hafa komið með ranga úlpu heim
úr skólanum.
Sakbomingur segir þetta
ófremdarástand ekki hafa getað
gengið lengur og segist ekki hafa
átt önnur ráð en að myrða föður
sinn.
„Ég vissi að þetta myndi leggja
líf mitt í rúst, en þetta var það eina
sem ég gat gert til að bjarga móður
minni og systkinum."
Þrir danskir
sjómenn fórust
Talið er að þrír danskir sjómenn
hafi farist eftir að danskur fiskibát-
ur sökk í þungum sjó norðaustur
af Englandi, samkvæmt upplýsing-
um bresku strandgæslunnar í gær.
Sagt var að tveimur af áhöfrt
bátsins, Anna Sörine, heföi verið
bjargað af öðrum dönskum bát en
ekkert heföi sést til hinna þriggja
er leit var hætt
Ný spor benda til
aðildar Chile
Gunnlaugur A Jcmsson, DV, Malmö:
Sydsvenska dagbladet skýrir frá því
í morgun að ný spor hendi til þess að
stjómin í Chile standi á bak við morð-
ið á Olof Palme, eins og breska blaðið
Observer skýrði frá á dögunum.
Hafði breska blaðið frétt sína eftir
háttsettum aðila innan sænsku ríkis-
stjómarinnar.
Sydsvenska dagbladet skrifar að til-
ræðið við chileanska stjómarand-
stæðinginn Bemardo Leighton í Róm
árið 1975 hafi verið framkvæmt á ná-
kvæmlega sama hátt og morðið á Olof
Palme.
Bandarískur leigumorðingi?
Bandaríski leigumorðinginn Micha-
el Townley stóð á bak við tilræðið við
Leighton, en það var einmitt þessi
Townley sem Observer heldur fram
að hafi lagt á ráðin um morðið á
Palme, að beiðni Chilestjómar.
Sydsvenska dagbladet hefur það
ennfremur eftir bandarískum fræði-
manni, er rannsakað hefur feril
Townleys, að hann hafi staðið í sam-
bandi við sænska hægrisinnaða
öfgamenn og fulltrúa króatísku fas-
istahreyfingarinnar Ustasía.
Sænska lögreglan hefur hins vegar
sagt að Townley sé ekki ofarlega á
blaði yfir þá sem kastljósi rannsóknar-
innar sé nú beint að og virðist lögregl-
an einkum vinna út frá þeirri
kenningu að það sé sænskur öfgamað-
ur eða öfgamenn er standa á bak við
morðið á Palme.
Gagngerar breytingar
á yfirstjóm NASA
Halldór VaJdimarssan, DV, Dallas:
Ljóst er nú að það tekur að minnsta
kosti eitt til eitt og hálft ár að fram-
kvæma breytingar þær á geimferðaá-
ætlun Bandaríkjanna sem þarf til að
geimferjumar geti hafið ferðir að nýju.
Nefnd sú ei Bandaríkjaforseti skip-
aði til að rannsaka slysið í janúar
síðastliðnum, er geimferjan Challen-
ger fórst með sjö geimfömm, hefúr nú
að mestu lokið störíúm.
Helstu niðurstöður nefndarinnar em
þær að endurhanna þurfi ákveðna
hluti í skotbúnaði feijanna áður en
öraggt verður talið að senda þær á
loft á ný.
Þá telur nefndin að gagngerar breyt-
ingar þurfi að gera á yfirstjóm
bandarísku geimferðastofnunarinnar,
NASA, og þeim reglum sem fylgt er
við ákvarðanatöku innan hennar.
Talið er að það taki að minnsta kosti eitt til eitt og hálft ár að koma geimferjuáætlun Bandaríkjamanna aftur í
gagnið eftir endurskipulagningu í kjölfar sprengingarinnar í Challenger i febrúar síðastliðnum.
Sjötíu fórust
á Sri Lanka
Að minnsta kosti 70 manns biðu
bana er sprengja eyðilagði tvær
rútur í Trincomalee í Sri Lanka í
morgun.
Talið er að skæruliðar tamila,
sem berjast fjTÍr sjálfetæði, hafi
komið þeim fyrir.
Sprengingin í dag var sú öflug-
asta, sem orðið hefúr í þeirri
ofbeldisöldu, sem varð 130 manns
að bana í síðasta mánuði.
Meira en þrjú þúsund manns
hafa beðið bana á Sri Lanka frá
því skæmliðar hófu baráttu sína
fyrir sérstöku ríki fyrir minni-
hlutahóp tamila á norð-austur
hluta eyjunnar.
Ofbeldi milli tamila og sinhala
jókst mjög árið 1983, er skæmliða-
áras, sem varð 13 hermönnum að
bana kom af stað kynþáttaátökum.
Síðasti mánuður vai- blóðugasti,
heilagi mánuðurinn í sögunni fyrir
sinhala, sem em búddatrúar, og i
meirihluta. Tamilar em hindúa-
trúar og í miklum minnihluta.
Ofbeldi gegn
ósiðsamlegum
auglýsingum
Öf'gafullir gyðingar, klæddir í
hefðbundinn svartan klæðnað,
köstuðu í gærkvöldi flöskum að
bílum og kveiktu í sex strætis-
vagnabiðstöðvum til að mótmæla
auglýsingum með myndum af'
stúlku í efnislitlum sundbol.
Enginn meiddist og enginn var
handtekinn í hverfi rétttrúnaðar-
manna í Jerúsalem, að sögn
lögreglu.
Hinir herskáu gyðingar kveiktu
í biðskýlum, sem á vom auglýsing-
ar með myndum af stulkunni í
sundbolnum, sem þeir telja ósið-
legar.
Nokkrir tugir heittrúarmanna
hafa verið handteknir síðan þeir
hófu baráttu sína í síðustu viku til
að hreinsa burt ósiðlegar auglýs-
ingar í ísrael. Þeir hafa eyðilagt
yfir 50 biðskýli.
Um tuttugu prósent ísraelskra
gyðinga lifa mjög strangt efitir bók-
stafstrúnni en einungis lítill
minnihluti þeirra tók þátt í árás-
unum- á strætóskýlin.
Umsjón:
Hannes
Heimisson
. °9
Ólafur
Arnarson