Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Qupperneq 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Frakkar í ógöngum á Sprengisandi: tíma í Sylven og Evelyn stiga út úr þyrlu Landhelgisgæslunnar ettir ferð sína um Sprengisand. DV-mynd Sveinn. beið unnusta síns í sæluhúsinu. „Ég var dauðhrædd um að Sylven heföi farið sömu leið og bíllinn og lent í einhverri ánni. Mér fannst ég vera alein í heiminum." Vegurinn yfir Sprengisand var lokaður í allan vetur og hefur enn ekki verið opnaður. Franska parið hafði lent í ýmsum erfiðleikum áður en bíllinn stöðvaðist í ánni við Nýjadal. „Við sáum að vegurinn var lokaður en okkur grunaði ekki að færðin væri svona slæm. Ámar voru hrikalegar og snjóskaflar á veginum. Þetta er í annað sinn sem við ferð- umst um ísland og við höíum áður farið um lokaða vegi án þess að lenda í vandræðum," sögðu Sylven og Evelyn. Þau fóru beint á Hótel Loftleiðir eftir komuna til Reykvíkur. Þau fljúga heim til Frakklands á sunnu- daginn. „Við verðum ekki lengi heima,“ sögðu þau. „Sumaríríið er ekki búið. Við ætlum í hjólreiðaferð um Hol- land í næsta mánuði." -ÞJV Gekk „Þetta var allt í lagi fyrst. Ég gekk rösklega og landslagið var fallegt. En þegar líða tók á kvöldið og nótt- •ina var ég kominn með blöðrur á fætuma og alveg orðinn útkeyrður. Ég var að niðurlotum kominn þegar ég loksins sá til mannaferða um morguninn." Þannig fórust Frakkanum Sylven Weber orð um göngu sína um Sprengisand í fyrrinótt. Hann og unnusta hans, Evelyn Mauries, festu bíl sinn í á við Nýjadal á miðviku- dagsmorguninn og gátu hann hvergi hreyft. Evelyn leitaði skjóls í sælu- húsi þar hjá en Weber hélt af stað fótgangandi eftir hjálp. Hann gekk rúmlega 55 kílómetra leið án þess að rekast á nokkum mann. Éftir tuttugu stunda göngu hitti hann loksins vegaeftirlitsbíl og bílstjóri hans kallaði á þyrlu Landhelgis- gæslunnar til hjálpar. Hún sótti skötuhjúin á sandinn um hádegis- bilið í gær. „Það var hræðilegt að sitja og bíða eftir hjálpinni," sagði Evelyn sem töku sinni á landsmótinu í gær. Rúmlega sextiu unglingar komu með fáka sína og reyndu með sér. Er upp var staðið stóð efstur Hörður Á. Har- aldsson (Fáki). Hann keppti á Háfi og hlaut 8,54 í einkunn. Þetta er lokaein- Keppni í B-flokki fór fram á lands- mótinu á Hellu í gær. Keppnin tók allan daginn. Fyrst dormuðu áhorf- endur í brekkunni frameftir degi en síðdegis rigndi smávegis. Keppni var spennandi í B-flokki. Þeir vom ekki margir sem þorðu að veðja á að ein- hver hestur skytist upp fyrir Snjall frá Gerðum er Olil Amble haföi sýnt hann og fengið einkunnina 8,66. En Kristall frá Kolkuósi, sá gamli þrumuklár, kom öllum á óvart og skaust upp fyrir Snjall. Geysileg keyrslá og fallegur fótaburður tiyggði Kristal og knapan- um Gylfa Gunnarssyni, sem jafhframt er eigandi hestsins, einkunnina 8,69 og fyrsta sæti. Snjall frá Gerðum er í öðm sæti með einkunnina 8,66, Sölvi frá Glæsibæ í þriðja sæti með 8,56 í einkunn en knapi hans er Gunnar Amarson. Krummi frá Kjartansstaða- koti er með 8,55 í einkunn en knapi hans er Sigvaldi Ægisson. Gári frá Bæ er í fimmta sæti með 8,52 í einkunn. Knapi hans er Sigurbjöm Bárðarson. Þessir fimm hestar, svo og fimm aðrir, komast í sérstaka úrslitaröðun sem fer fram á sunnudaginn. Það er því greini- lega hörð keppni framundan og næsta víst að fyrsta sæti er ekki frátekið. Unglingar í eldri flokki luku þátt- Mótsgestir una sér vel í brekkunum aö horfa á gæöingana. Kristall frá Kolkuósi og Gyifi Gunnarsson í trylltum tölttakti. DV-mynd EJ kunn því unglingar þurfa ekki að koma í röðun. Borghildur Kristins- dóttir (Geysi) var í öðm sæti á Fiðlu og hlaut 8,38 í einkunn. Vignir Jóns- son (Snæfellingi) var þriðji á Blesa með 8,38 í einkunn, sömu einkunn og Borghildur þó broti lægri. Heiðdís Smáradóttir (Létti) var í fjórða sæti á Drottningu og hlaut 8,37 í einkunn. Guðmundur Baldvinsson (Glað) var í fimmta sæti á Draumi og hlaut 8,33 í einkunn. í dag verða dæmdir stóðhestar, gæð- ingar í A-flokki og yngri flokkur unglinga. Einnig verður keppni í tölti. Kaupstaðarlestin, sem fór til Reykja- víkur fyrir viku, kemur til baka og einnig verður farið í útreiðartúr um nágrennið undir stjóm Sigurðar Har- aldssonar frá Kirkjubæ. Sú ferð endar með mikilli grillveislu. Mikil stemmning er á svæðinu. Er- lendir hestaáhugamenn setja svip sinn á mótið og virðist annar hver gestur tala þýsku. Mikið er rætt um'gæðing- ana og þykja þeir óvenju góðir nú. Til dæmis þurfti tæplega 8,40 í einkunn til að komast í hóp tíu efstu hrossa í B-flokki. Kynbótahross þykja einnig fremri þeim er sýnd vom á síðasta landsmóti og þótti mörgum nóg um framfarir þá. Á morgun og sunnudag- inn renna svo upp hátíðardagar er hrossin verða öll kynnt og verðlaun afhent. Það verður mikil upphefð og gleðistund fyrir þá kynbótaræktunar- menn sem hafa markvisst stefht að því að ná árangri á þessu móti er þeir fá viðurkenningu fyrir starf sitt. Kristall blómstrar Reagan á íslandi Maureen E. Reagan, dóttir Ro- nalds Reagan Bandaríkjaforseta og fyrrverandi eiginkonu hans, Jane Wyman leikkonu, verður stödd hér á landi í einkaerindum dagana 5. til 8. júlí. Fyrir rúmum mánuði hitti sendi- herra Bandaríkjanna á íslandi, Nicholas Ruwe, Maureen Reagan í Washington. Lýsti hún þar áhuga sínum á fslandsferð. Hún haföi kynnst íslenskum konum í sendi- Maureen E. Reagan. nefiid íslands á kvennaráðstefhu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi og undirbúningsfundum í Vín og New York. Maureen Reagan er þekkt fyrir störfsín að málefhum kvenna. Hún hefur unnið á vegum Repúblíkana- flokksins um aldarfjórðungs skeið og gegnt þar fjölda ábyrgðarstarfa. Sem stendur er hún sérlegur ráð- gjafi nefhdar sem sér um framboðs- mál kvenna. Hún er einnig formaður samtaka sem safha fé til styrktar kvenframbjóðendum flokksins. Maureen Reagan var formaður bandarísku sendinefndarinnar á kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Nairobi í Kenýa sumarið 1985. Hún tók einnig virkan þátt í undirbúningsfundum í Vín og New York. A ráðstefhunni gafet fhlltrúum tækifæri til að meta ár- angurinn af áratugi kvenna sem þá var að ljúka. Nýlega skipaði George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Maureen Reagan í stöðu fúlltrúa Bandaríkjanna hjá þeirri nefhd Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um stöðu kvenna. -EA Helgaipósturinn: 73% vilja að Albert segi af sér Skoðanakönnun, sem Helgar- pósturinn gekkst fyrir síðastliðinn þriðjudag, leiddi í ljós að 73% þeirra sem tóku afetöðu töldu að Albert Guðmundsson iðnaðarráð- herra ætti að segja af sér ráðherra- embætti á meóan á rannsókn Hafekipsmálsins stendur. Úrtak könnunarinnar var 600 manns. Spurt var: „Telur þú að Albert Guðmundsson eigi nú þegar að segja af sér ráðherraembætti fyrir fullt og allt eða á meðan á rannsókn málsins stendur?“ 81,2% aðspurðra tóku afetöðu. 38% þeirra vildu að Albert segði af sér fyrir fullt og allt. 35% vildu að hann segði af sér á meðan rann- sókn fer fram. 27,1% vildu að hann segði ekki af sér. Éinnig var spurt hvort Guð- mundur J. Guðmundsson ætti að segja af sér þingmennsku vegna peningagreiðslu sem hann þáði fyrir milligöngu Alberts Guð- mundssonar. 82,7% tóku afetöðu til þeirrar spumingar. Af þeim vildu 53,2% að Guðmundur segði af sér en 46,8% vildu að hann sæti áíram. 1 skoðanakönnun sem Helgar- pósturinn gerði í desember töldu 64% þeirra sem tóku afetöðu að Albert ætti ekki að segja af sér embætti á meðan á rannsókn Haf- skipsmálsins stendur. -EA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.