Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Qupperneq 7
DV. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986.
7
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Bíldudalur:
Munninum lokað með minna
„Þetta var dæmigerður vanhirtur
íslenskur kirkjugarður áður en ég tók
við honumsagði Jón Kr. Ólafsson,
söngvari, myndlistarmaður, grá-
sleppukarl og kirkjugarðsvörður á
Bíldudal.
„Hef verið héma að brjóta í burtu
gamla steinveggi sem vom löngu ónýt-
ir og vanhirtir. Svo hef ég- líka reynt
að fá fólk til að merkja leiði látinna
ættingja. Þegar ég fer svo sjálfur ætla
ég samt að fara beint í ofninn - ekki
verða undir einni af þessum óhirtu
torfum."
nærri kirkjustarfi hef verið lengi - í
kirkjukómum frá fermingu, séð um
kirkjugarðinn frá sextíu og átta og
haft umsjón með kirkjunni tíu árum
betur. Sönglistin er mér helgur dóm-
ur, söng með danshljómsveitinni
Facon í samfleytt tíu ár - sem var
virkilega skemmtilegur tími - hef
komið fram sem gestur á Hótel Borg
í Reykjavík og gaf út plötu árið átta-
tíu og þrjú.“
Söngnám eða náttúrutalent?
„Ég er sjálfinenntaður með öllu en
hef fengið tilsögn hjá góðu fólki - þetta
er mest frá guði. Og ég er voðalega
ánægður með það sem ég er búinn að
gera - sérstaklega með hljómplötuna.
Það loka margir munninum með
minna en hljómplötu upp á vasann,
jafnvel þótt bréf frá Italíu sé í hinum
vasanum. Það eru fáir með náttúruta-
lent og ef það vantar er eins og menn
geti lokað munninum endanlega án
þess að nokkur muni eftir því að þeir
hafi nokkum tímann opnað hann.“
Útborgað á föstudögum
„Núna vinn ég við rækjuvinnslu og
hrognasöltun. Fór út í það þegar ég
tók mér frí frá húsamáluninni sem ég
hef starfað við undanfarin ár. Vildi
prófa hvemig það er að fá útborgað á
föstudögum eins og annað fólk. Líkar
það mjög vel og er ekkert að hugsa
um að skipta í bráð. Og héma á
Bíldudal hef ég alið allan minn aldur
- finnst ágætt að koma í bæinn stöku
sinnum til þess að fara úr kyrrðinni í
ysinn og þysinn. En svo er alltaf nauð-
synlegt að 'komast heim aftur."
-baj
Samúel og drukknaðir sjó-
menn
Núna er ég að safna í minnisvarða
um drukknaða sjómenn og hef þegar
sett upp minnisvarða um Samúel í
Selárdal. Þann stein fjármagnaði ég
sjálfur með sölu korta með mynd af
Samúel sjálfum. Og þótt ég segi sjálfur
frá er kirkjugarðurinn héma á Bíldud-
al að komast í nokkuð gott horf -
helst vildi ég þó fá varanlegar merk-
ingar á öll leiðin, eitthvað sem ekki
þarf mikið viðhald en héma fer mikill
tími í að mála og pússa - að ógleymdu
brölti við að koma sláttuvél að svo vel
fari.“
Meðfædd snyrtimennska?
Heimih Jóns liggur niðri við f|öm-
borðið með verönd út í hafið. Húsin
era einstaklega snyrtileg þrátt fyrir
háan aldur, vandlega máluð og meira
að segja grásleppuskúrinn er hvít-
lakkaður í hólf og gólf að innan en
himinblár að utan. Á útveggjum húss-
ins era málverk af stærri gerðinni -
stíflökkuð til þess að þola veður og
vind.
„Þetta er bara mitt eðli - hef fengið
það i arf með móðurmjólkinni. Það
þykir kannski gamaldags í dag en ég
er mjög hirðusamur og nýtinn. Og
„Salta hrogn til að prófa hvernig það er að fá útborgað á föstudögum.
á Bildudal.
Jón Kr. fyrir framan heimili sitt að Sæbakka
DV-myndir baj
—i; _
« ^ Í • - . - ÍÖS-É3IÉÍ1 .hv- . »• ■ " ■«-«.- 'T” ’ T, . . ■ v lljppl.
Þingeyri:
Atta mánaða
áhorfandi
Þessi unga stúlka sat á þvotta- planinu á Þingeyri og nagaði box í blíðunni - alsæl með lífið og til- verana. Sú stutta heitir Kristrún Þórarinsdóttir, er átta mánaða og hefur um þessar mundir lítinn áhuga á öðra en því sem hægt er að naga hressilega. Ljósmyndavél- ar virðast að hennar dómi lítt gimilegar til átu og því fremur stutt í samræðum og frekari við- kynningu.
Tálknafjörður:
„Ég byggði húsið fyrst“
„Ég vann við að byggja þetta frysti-
hús ’46 og hef unnið héma síðan,"
segir aldursforsetinn í frystihúsi
Tálknaflarðar - Einar Guðmundsson
og hélt síðan ótrauður áfram að roð-
fletta fiskinn.
„Þetta er langa héma, hún fer að
mestu leyti á Rússlandsmarkað. Við
borðum hana þó saltaða og hertá."
„Þetta er ágætt starf en líklega fer
ég nú að hætta þessu. Annars er slæmt
að hafa lítið fyiir stafni.“
- Áttu héma eiginkonu og böm?
„Ég hef nú aldrei verið giftur, er á
lausu eins og krakkamir segja."
- Myndirðu gifta þig fengirðu að lifa
lífinu aftur? - „Gifta mig - nei ætli
það nokkuð." 'baj
Áttræóur og ennþá á fullu í frystihúsinu -Tálknfirðlngurinn Einar Guðmundsson.
DV-mynd baj
SlMINN ER 27022
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
52525L515L515Í52515LS252515LSL515L5Z5L5252
STIMPLAR
SLfFAR OG HRINGIR
ÍAMC
| Buick
! BMC dísil
BMW
| Chevrolet
i Cortina
Datsun
ibensín— dísil
Dodge
i Escort
|Ferguson
c Ford
ÍD300 - D800|
Ford Traktor
Ford Transit
Ford USA
International
Isuzu dísil
Lada
Landrover
Mercedes
!Benz180 D
Mercedes
íBenz 220 D
Mercedes
Benz 240 D
Mercedes
Benz 300 D
Mercedes
Benz 314 D
Mercedes
Benz 352 D
Mercedes
Benz 355 D
Perkins 3.152[
Perkins 4.108 [
Perkins 4.203 í
Perkins 4.3181
Rerkins 6.354!
Peugeot
Pontiac
Range Rover
Renault
Saab
Simca
Subaru
Taunus
Toyota
Volvo bensín
— dísil
Þ JÓNSSON&COl
SKeitan 1 7 s 8461^>— 84 516S
ÆSFW
MAnR^)
KJÖTMIÐSTÖÐIN
Lauqalæk 2.Simi 686511.
Minna en 1% fita.
Diet nautahakk 399,-
Nautahakk aðeins 250,-
5 kg. í poka.
Lambahakk 210,-
Kindahakk 185,-
Baconsneiðar 275,-
Baconstykki 199,-
Marinerað lambal. 310,-
Marineraðar lambakótel. 328,-
Marineraðar lambasn. 366,-
Marineruð lambasteik 218,-
Krydduð lambarif 126,-
Svínabógar, reyktir, 290,-
Nýr svínsbógur 247,-
Reykt svínalæri 295,-
Ný svínalæri 245,-
Svínarif 178,-
ítalskt gúllas 370,-
kr. kg.
Londonlamb, 1.fl., 375,-
Londonlamb, 1.fl„ 375,-