Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Síða 3
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986. 3 pv Fréttir íslenskur prestur í Svíþjóð: Sæmdur æðstu orðu Rotaiy Prá Gunnlaugi Jánssyni, DV, Lundú Séra Cecil Haraldsson, sóknarprest- ur í Burlöv í Svíþjóð, var nýlega sæmdur æðstu orðu Rotary-hrejrfing- arinnar er hann var gerður að Paul Harris-félaga. Viðurkenningin er kennd við Paul Harris, sto&ianda hreyfingarinnar. „Þetta kom mér alveg á óvart,“ sagði séra Cecil í samtali við DV, aðspurður um viðurkenninguna. Séra Cecil hefur verið sóknarprestur í Burlövsöfiiuði í útjaðri Malmö und- anfarin ár, en flytur til íslands í haust. Hann er guðfræðingur frá háskólan- um í Lundi og var talsvert í fréttum í vor þegar Alþingi sett lög til að gera honum kleift að taka þátt í prestskosn- ingum á íslandi. Gffðfræðideild Háskóla íslands fjallaði síðan um mál Cecils og komst að þeirri niðurstöðu að hann yrði að gangast undir nokkur próf til að geta starfað sem prestur í íslensku þjóðkirkjunni. Þessi próf eru m.a. íslensk kirkjusaga, kirkjuréttur og helgisiðafræði. -APH Rannsókn í Öxarfjarðar- kreppi Ríkissaksóknari hefur nú heimilað sýslumanni Þingeyjarsýslu að ranns- aka ákæru á hendur oddvita og hreppsnefhd Öxarfjarðarhrepps. Eins og greint var frá í fréttum DV á dögunum hefur Lárus Birgisson, bóndi á Birkilandi í Öxafjarðarhreppi, kært oddvitann og hreppsnefndina fyrir að hafa haft af sér bótagreiðslur. Nemur upphæðin, sem hér um ræðir, einni og hálfri milljón króna. „Ríkissaksóknari hefúr falið mér að leita frekari upplýsinga um þetta,“ sagði HaEdór Kristinsson sýslumaður. „Ég hef falið ákvéðnum starfsmönnum embættisins að rannsaka málið. Sú rannsókn er nýhafin. Það er á þessu stigi ekki hægt að segja hvenær niður- stöðu er að vænta.“ -ÞJV Nýnemum í hjúkran hefúrfækkað úr 134 niður í 52 Árið 1984 hófú 134 nemar nám í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands. I ár hafa aðeins 52 skráð sig til náms. í ályktun frá félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfiræðinga segir að þessa þró- un megi rekja til lágra launa og sé ógun við heilbrigði landsmanna. Á félagsfúndi félagsins var samþykkt ályktun þar sem niðurstöður Kjara- dóms eru fordæmdar. Krafist er fulls samnings- og verkfallsréttar. Bent er á að illa hafi gengið að manna stöður hjúkrunarfræðinga vegna lélegra launa. Ennfremur segir að ef heil- brigðisstofiianir eigi áfram að vera reknar af ríkinu verði launin að vera eftirsóknarverð. -APH essss&w'*' Á leiö til útlanda er gott aö vita af verslun íslensks Markaöar í flug- höfninni í Keflavík. Þar er mikið vöruval, miðað við þarfir þeirra sem eru aö byrja utanlandsferðina. Allskonar minjagripir, gjafavara og efni til afþreyingar. Ullar- og keramikvörur, margskonar landkynningarbækur, blöð og tímarit. íslensk matvara vekur líka síaukna athygli. Ostar og mjólkurvörur, lax og fjölbreyttar fiskafurðir. Hangikjöt og annað lambakjöt. Frá- gangur og pökkun á matvælum er eins og best verður á kosið. Þá er íslenska sælgætið vinsælt erlendis. Þetta er þægileg þjónusta, prófaðu bara næst þegar þú átt leið úr landi. - Þú getur greitt í íslenskum krónum eða með krítarkorti. ÍSUNSKUR MARKAÐUR qa flughöfn BU KEFLAVIK Sími 92-2791

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.