Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986. Ferðamál Þar leiðist hvorki foreldrum né bömum Disneyland í Kalifomíu er staðsett í Orange County á Ball Road og Santa Ana Freeway. Það tekur um það bil klukkutíma að aka þangað frá miðborg Los Angeles. Aðgangseyrir er 16,50$ fyrir full- orðna og 11,50$ fyrir böm. í þeirri upphæð er innifalinn aðgangur að öllu sem fram fer innan veggja garðsins, nema veitingar sem þar eru seldar. Þegar þessi skemmtigarður er heimsóttur er gott að hafa tímann fyrir sér og halda þangað að morgni til þess að hafa allan daginn til umráða innan garðsins. Það veitir sannarlega ekki af þvi. Járnbraut um svæðið Disneyland nær yfir tæpt ferkíló- metrasvæði og er skipt í Aðalstræti USA, Ævintýraland, Landnemaland, Bjamdýraland, New Orleans Torg, Land morgundagsins og Drauma- land. Á milli þessara staða er hægt að „ferðast“ með jámbrautarvögnum sem hafa viðdvöl í hveiju „landi“. Innan um em svo kastalar ævintýr- anna, alls kyns furðuskepnur úr teiknimýndunum, frumbyggjar landsins em á vappi í skóginum, hús landnemans stendur í björtu báli. f landi morgundagsins er hægt að fá sér ferð með „eldflaug" og í Draumalandi em öll húsin beint úr ævintýrunum. Innan dyra em veit- ingastaðir. Og yfir öllu gnæfir sjálft Matterhom, sem er upplýst á til- komumikinn hátt eftir að rökkva tekur. Ferðamennimir em leiddir í gegn- um „ævintýralöndin“ í litlum bátum sem sigla eftir vatnshrautum og geta þannig skoðað það sem fyrir augu ber á bökkunum. Og það er ýmislegt athyglisvert. Meðal annars er siglt í gegnum hús eitt mikið en í iðrum þess getur að líta hella sjóræningja sem héldu til í Karabískahafinu. I miðju húsinu fer fram mikill bardagi, þar er stórt sjóræningjaskip sem skiptist á „skotum“ við hermenn í virki miklu sem er í landi. Getur að líta fólk við bæði leik og störf á þessari siglingu, en allt em þetta brúður. Þær em gæddar lífi á Óvenjuleg „bílabraut". Þetta er rétt hjá húsinu hennar Lísu í Undralandi og krakkarnir eru í bollum og undirskálum! Götumynd úr Ævintýralandi. Allt umhverfið er sérlega snyrtilegt enda urmull af fólki sem gerir ekkert annað en að sópa svæðiö. Matterhorn gnæfir í baksýn. ótrúlegan hátt og sömuleiðis tali. Þama em einnig ýmis dýr eins og t.d. blindfullt svín sem er ótrúlega eðlilegt, mávur sem hreiðrað hefur um sig í hatti gamallar beinagrindar og fleira má týna til sem er alveg ótrúlega vel gert. Á aðaltorginu í New Orleans er stór útiveitingastaður þar sem lif- andi hljómlistannenn leika ekta New Orleans jazz. Húsið hennar Lísu í Undralandi er á sínum stað og vom gulrætumar hennar búnar að stinga allvel upp hausnum. Þama er óvenjuleg bíla- braut, en bflamir em bollar og undirskálar. Þegar myrkrið er skollið á upp- hefst stórfengleg skrúðganga. í henni taka þátt nærri allar hugsan- legar teiknimyndapersónur Disneys, aka eftir aðalgötunni í upplýstum skrautvögnum og er leikið taktfast undir. Dagurinn endar svo á því að „óskadísin" úr ævintýrinu um Pétur Pan er skotið úr efeta tindi Matter- homs og síðan hefet flugeldasýning sem sennilega á ekki sína líka í víðri veröld. Foreldrunum leiðist ekki Disneyland var stofnað 1955. Sag- an segir að snilhngurinn Walt Disney hafi fengið hugmyndina að skemmtigarðinum eftir að hann fór með dætur sínar í skemmtigarða á laugardögum. Honum leiddist sjálf- um óhemjumikið á meðan bömin vom að leika sér. Því var það sem honum datt í hug að búa til skemmti- garð þar sem foreldrunum þyrfti ekki að leiðast á meðan bömin léku sér. Og 17. júlí 1955 var Disneyland opnað. Árið 1971 var opnaður annar garð- ur, Disneyworld í Orlando Flórída. Hann er ekki síður vinsæll og frá opnun og til síðustu áramóta höfðu nær 200 milljónir manna heimsótt Disneyworld í Flórída. Nú er einnig komið Disneyland í Tokyo og til stendur að opna enn einn skemmti- garð í París. -A.BJ. Ferðapunktar A hjóli um eyðimörk Þýsk ferðaskrifetofa, sem sérhæfir sig í ferðum til Sahara-eyðimerkur- svæðisins, býður nú upp á sérstakar Augniinsur í háloftunum f flugvélum er, eins og flestir kann- ast við, mjög þurrt loft. Þetta þurra loft veldur oft óþægindum í augum fólks, ekki síst þeirra sem nota augnlinsur. Hér koma nokkur góð ráð til þeirra sem nota augnlinsur og hyggjast ferðast í flugvélum: *Hreinsið linsumar vel fyrir flugtak. *Reynið að lesa mikið. Lestur veldur því að fólk blikkar minna augunum en ella. *Takmarkið kaffi- og áfeng- isneyslu. *Takið linsumar úr augunum ef þið ætlið að blunda. *Smyrjið linsumar oft meðan á flugi stendur. *Forðist að sitja á reykinga- svæði. Ef þurra loftið veldur enn óþæg- indum er eina ráðið að taka þær bara úr sér. Það er einnig rúðlagt að nota frekar gleraugu en linsur ef um langt flug er að ræða. -RóG. ferðir, það eru hjólreiðaferðir um eyðimörkina. Það er ekki hægt að segja annað en hér sé um sérkenni- legar ferðir að ræða. Hver ferð mun taka þrjár vikur og kostar hún með öllu, fæði innifalið, um 45.000 ís- lenskar krónur. Nánari upplýsingar fást hjá: Sahara Spezial Reisedienst, Bachstrasse 10, 6331 Hohenahr 5 og er síminn 06446/2334. -RóG. ..Thesixties1 íParís Þeir sem verða á ferðinni í París í sumar ættu ekki að verða sviknir af heimsókn í Cartierlistamiðstöð- ina. Þar er verið að rifja upp í máli, myndum og tónum, hið eina og sanna „sixties tímabil. Lífi er kveikt í persónur eins og De Gaulle, Kennedy, Mary Quant, Twiggy og Warhol, þegar þær vom upp á sitt besta. Bflar, tíska og tónlist skipa að sjálfeögðu veigamikinn sess á sýningunni og verða meðal annars' haldnir tónleikar og tískusýningar svo sem best megi ná fram einkenn- um þessa tímabils. Einnig verður heilt hús búið tískuhúsgögnum þessa tímabils svo eitthvað sé nefht. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl 11-19. Cartierlista- miðstöðin er við 78350 Jouy-en- Josas, sími 39564646. Gúmmíhamarinn nauðsynlegur Þegar haldið er í tjaldútilegu er nauðsynlegt að hafa meðferðis gúmmíhamar til þess að reka niður tjaldhælana. Það getur verið erfitt verk þar sem jarðvegur er lítill sem enginn, eins og er á nokkrum tjald- stæðum hér á landi. -A.BJ. Veiði í lækjum, vötnum og pollum „Við borgarbúar yrðum mjög þakkl- átir bændum ef þeir leyfðu okkur og krökkunum okkar að renna fyrir fisk í ám og vötnum sem nú eru ekki nýtt sem stangaveiðisvæði," sagði fjöl- skyldumaður af mölinni, áhugamaður um ferðalög, í samtali við DV. „Þegar verið er í útilegu með bömin era rigningardagamir tilvaldir „veiði- dagar“ og krakkar hafa alveg óhemju gaman að því að renna fyrfr fisk. Það þyrfti ekki að gera miklar til- færingar, aðeins að tilkynna að leyfi- legt sé að renna fyrir fisk. Enginn ætlast til þess að fa þetta ókeypis. Fólk greiddi fúslega fyrir veiðina sanngjama greiðslu, 200-300 kr.,“ sagði ferðamaðurinn okkar. Hann benti á að til dæmis fyrfr aust- an flall eða í Ámes- og Rangárvalla- sýslum væra fjölmörg vötn, pollar og lækir sem í væri urriði sem ekki er nýttur. Veiðiræktarmenn hafa sagt að til þess að fiskurinn nái að þroskast sé nauðsynlegt að veiða hann hæfi- lega. Ferðaþjónusta er ekki aðeins fólgin í að hýsa fólk og gefa því að borða. -A.BJ. ri“ á. vænn urriði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.