Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Blaðsíða 14
14 LAUGARDÁGUR 19. JÚLÍ 1986. Jasssumarið mikla ‘86: Fremstu jassbassaleikarar Norðurlanda á Háskólavellinum Óvenjumikil gróska virðist vera í listalífinu hér á landi um þessar mundir. Ekki fara jassgeggjarar var- hluta af þessu og má ætla að sumarsins verði minnst sem jasssum- arsins mikla 1986 þegar fram líða stundir. í kjölfar Listahátíðar, þar sem Herbie Hancock og kvartett Daves Brubecks glöddu jasshjörtun, er norræn listahátíð að hefjast um þessa helgi. Meðal atriða, sem boðið er upp á, er spilverk jasskvintettsins Masqualero, sem norski bassaleikar- inn Arild Andersen stýrir og tónleik- ar tríós íslandsvinarins danska, Niels-Henning Örsted Pedersen. Masqualero kvintettinn leikur í tjaldi á Háskólavellinum annað kvöld, sunnudaginn 20. júlí, en Tríó Niels-Henning verður á sama stað viku síðar. Norskur úrvalsjass Norðmaðurinn Arild Andersen er einn fremsti jassbassaleikari Norð- urlanda. Hann kom hingað til lands fyrir tæpum áratug á vegum Nordjazz með kvartett sinn og hélt tvenna tónleika. Þá var Arild að öðlast frægð, enda starfaði hljóm- sveit hans á vegum hins upprennandi þýska útgáfufyrirtækis ECM sem var í mikilli uppsveiflu á þeim tíma. Enn starfar Arild fyrir ECM og, hefur Masqualero kvintettinn gefið út eina plötu á ECM merkinu, auk þess sem norska jasssambandið hefur gefið út aðra skífu með þeim félögum. Arild hefur starfað með mörgmn þekktustu jassleikurum heims auk þess að vinna mikið með norskum félögum sínum. Jon Christensen trommari er nokkru þekktari en Arild í jass- heiminum, enda hefur hann verið í hljómsveit saxófónleikarans Jan Garbarek, fyrir utan að leika með Qölda heimsfrægra snillinga. Kröft- ugt samspil þessara gömlu félaga hefur löngum heillað þá er á hafa hlýtt og verður örugglega gaman að sjá þá magna jassseiðinn saman. Veröffentlichung der Botschaft der Bundesrepublik Deutschland in Reykjavik Hinweise fur Deutsche zur Wahl zum Deutschen Bundestag. Am 25. Januar 1987 findet die Wahl zum Deutschen Bundestag statt. Deutsche, die aufierhalb der Bundesrepublik Deutschland einschliefilich des Landes Berlin leben und dort keine Wohnung mehr innehaben, können bei Vorliegen der sonstigen wahlrechtlichen Voraussetzungen an der Wahl t< ilnehmen, wenn sie 1. — in den Gebieten der iibrigen Mitgliedstaaten des Europcrates leben (d.h. auch in Island) oder —'in anderen Gebieten leben, sofern seit dem Fortzug aus der Burtdesrepublik Deutschland und bis zum Wahltag nicht mehr als zehn Jahre verstrichen sind, und vor ihrem Fortzug mindestens drei Monate ununterbrochen in der Bundes- republik Deutschland einschliefilich des Landes Berlin gewohnt oder sich sonst gewöhnlich aufgehalten haben; 2. in ein Wáhlerverzeichnis in der Bundesrepublik Deutschland eingetragen sind. Diese Eintragung erfolgt nur auf Antrag. Der Antrag ist auf einem Formblatt zu stellen; er soll bald nach dieser Bekanntmachung abgesandt werden. Einem Antrag, der erst am 03.01.1987 oder spáter bei der zustándigen Gemeindebehörde eingeht, kann nicht mehr entsprochen werden. (§ 18 Abs. 1 der Bundeswahl- ordnung). Antragsvordrucke (Formblátter) sowie informierende Merkblátter können — bei der Botschaft dcr Bundesrepublik Deutschland in Reykjavik, — beim BundeswahUeiter, Postfach 55 28, D-6200 Wiesbaden, oder — beim Oberstadtdirektor der Stadt Bonn, Stadthaus, Berliner Platz 2, D-5300 Bonn 1, angefordert werden. Weitere Auskiinfte erteilt die Botschaft der Bundesrepublik Deútschland Adresse: Túngata 18; 101 Reykjavik Postanschrift: POB7400, 121 Reykjavik Tel.: 91-19535/19536 Píanistinn Jon Balke, sem með þeim starfar í Masqualero, var forðum tíð í kvartetti Arilds. Jon Balke kom hingað til lands fyrir 8 árum og hélt sólótónleika í Norræna húsinu. Þar naut hinn ljóðræni norræni stíll Balkes sín einkar vel. Blásararnir tveir, sem skipa kvartettinn, eru Ni- els Petter Molvaer, sem leikur á trompet, og saxófónleikarinn Tore Brumborg. Nafn sitt dregur kvintettinn af samnefndu lagi eftir Miles Davis. Arild Andersen og Jon Christensen eru mjög þekktir utan heimalaads síns og hafa báðir hlotið margvísleg- félagar leiki einhver lög af henni sunnudaginn 27. júlí. Trompetleikar- inn Palle Mikkelborg er allt eins þekktur sem tónskáld og hljómsveit- arstjóri. Hann hefur til að mynda stjómað stórsveit danska Ríkisút- varpsins og samið fiöldann allan af styttri og lengri jassverkum. Mikkel- borg er hátt skrifaður meðal jass- manna um víða veröld og er eitt fremsta jasstónskáld Evrópu um þessar mundir. Samstarf hans og Niels-Henning hefur staðið í mörg ár og verið með margvíslegum hætti. Þótt Niels-Henning hafi komið hing- að oftar en nokkur annar erlendur jassmaður hafa þeir Palle Mikkel- Arild Andersen. ar viðurkenningar, í Evrópu sem og í Bandaríkjunum. Snillingurinn NHÖP Niels-Henning Örsted Pedersen þekkja allir íslenskir jassunnendur. Hann er ávallt aufúsugestur hér á landi, enda hefur hann átt drjúgan þátt í hinni miklu jassvakningu sem hér hefur verið síðustu árin. Má með réttu halda því fram að í hvert sinn sem Niels-Henning bregður sér hing- að til lands og leikur á hið óþjála hljóðfæri, kontrabassann, kvikni jassneisti í bijóstum óteljandi margra Islendinga. Niels-Henning handleikur bassann eins og sá sem valdið hefur og framkallar slíka tóna að undrum sætir. Meðreiðarsveinar hans að þessu sinni eru Danimir Kenneth Knud- sen, sem leikur á píanó, og Palle Mikkelborg sem blæs í trompet. Þeir Niels-Henning og Kenneth Knudsen gáfu út dúóplötuna Pictures fyrir 10 árum sem inniheldur tónsmíðar Knudsens og 2 eftir NHÖP. Þessi hugljúfa plata er í miklum metum 'hjá mörgum aðdáendum Niels- Henning og má búast við að þeir borg og Kenneth Knudsen aldrei áður leikið hér á landi. Það er því vel til fundið að fá þá til að leika á N’ART ’86 hátíðinni með Niels- Henning Örsted Pedersen. Enn og aftur... Það hefur flogið fyrir að stórsveit trommuleikarans Buddy Rich sé jafnvel væntanleg til hljómleika- halds hér á landi innan skamms. Ef af þeirri ferð þessa magnaða trommuleikara verður má segja að jassgeggjarar geti vart óskað eftir fleiri jassveislum í sumar. Og þó. Alltaf má á sig krásum bæta. Jafnvel þótt Buddy Rich verði senn 69 ára • og verði þar með kominn í hóp ellilíf- eyrisþega er engin ellimerki á honum að finna. Fáir trommuleikarar þyrla jafnlétt og leikandi og Buddy Rich gerir. Er því öruggt mál að margir sveiflumenn, og ekki síður konur, bíða í ofvæni eftir frekari fréttum af samningamálum við Buddy Rich og stórsveit hans. Hvað um það, þetta er nú þegar orðið mesta jasssumar íslandssög- unnar. - Jónatan Garðarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.