Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Blaðsíða 30
30-
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986.
Hali í Suðursveit:
„Þá varð
Þórbergur
vonsvikinn
og aigur“
„Ég var nú eiginlega á leið í sil-
ungsveiði," sagði Torfi Steinþórsson
á Hala í Suðursveit þegar DV leit
inn hjá honum fyrir skömmu. Hali
í Suðursveit hefur öðlast nokkra
sérstöðu í gegnum skrif Þórbergs
Þórðarsonar en hann var föður-
bróðir Torfa. Nú búa á Hala Torfi
og synir hans tveir sem stunda hefð-
bundinn búskap auk þess sem þeir
eru með um 70 refalæður. Torfi hefur
verið skólastjóri við Hrollaugsstaða-
skóla síðastliðin 40 ár en nú er
tengdadóttir hans tekin við því
starfi.
„Það var alltaf gaman þegar Þór-
bergur kom héma, hann var svo
bráðskemmtilegur og svolítð sérvit-
ur þótt sérviskan hafi nú að mestu
verið hálfgerð látalæti. Til dæmis
allt þetta tal um drauga. Einu sinni
man ég eftir því að við vorum með
bát austur með Teigabökkum og var
um 40 faðma langur kaðall notaður
sem stjóri. Einn góðan veðurdag
hvarf svo stjórinn úr stafhi bátsins
„Undir þaö síðasta sá Þórbergur ekkert annað en Suðursveitina, sem ég skil
sagði Torfi Steinþórsson á Hala í Suðursveit.
svo sem vel. Hér er gott að búa,“
Mynd-KAE
og fannst ekki fyrr en nokkrum dög-
um síðar, 3 kílómetrum vestar. Þetta
fannst Þórbergi ekki ónýtt og sagði:
„Ja, þama sjáiði. Stjórinn hefur
greinilega aflíkamast og farið á þetta
flakk.“ Nokkrum dögum síðar kom
fram strákur sem hafði séð kú með
kaðalhönk á homunum og þar var
auðvitað komin skýringin á flakki
stjórans. Þá varð Þórbergur helduf
vonsvikinn og argur en neyddist til
að viðurkenna þetta. Hann gat þó
ekki stillt sig um að tauta: „Ja, hvem
andskotann var strákurinn líka að
þvælast þama?“ -S.Konn.
Víðidalsá:
Veiöin í Laxá i Aðaldal gengur vel og munu vera komnir á land um 950 laxar og margir stórir, þar af tveir 25 punda.
DV-mynd G. Bender.
Stóriaxar,
sá stærstí
28 pund
Útlendingamir, sem em við veiðar
í Víðidalsá þessa dagana, hafa heldur
betur sett í þá stóra o6 landað. William
Morrow veiddi 28 punda hæng á Neðri
Laufásbreiðu á fluguna Black and
Blue nr. 6 en morguninn áður hafði
félagi hans, John Fisk, veitt 26 punda
hæng á sama veiðistað.
John Fisk þurfti þó ekki að kvarta
því á sama tíma og félagi hans glímdi
Veiðivon
Gunnar Bender
við þann stóra veiddi hann tvo laxa,
24 og 22 punda. Útlendingar hafa því
vinninginn á þeim stærsta ennþá en
líklega breytist þetta því stórir laxar
em í mörgum veiðiám og fást vonandi
til að taka agnið næstu daga, til þess
er leikurinn gerður. Veiðst hafa 320
laxar í Víðidalsá. Vatnsdalsá hefur
gefið 256 laxa og hefur verið þokkaleg
veiði þar.
G. Bender
DV á Vopnafirði:
Fuglinn í fjörunni heitir torfæruhjól
Jón G. Haulcssan, DV, Akuieyit
„Það er svo mjúkt að lenda í
sandinum,“ svaraði Þorsteinn Sig-
urðsson á Vopnafirði, eigandi
tveggja torfæruhjóla, um það hvers
vegna hann notaði ekki hjálm þegar
hann tryllti um í fjömnni á Vopna-
firði.
Þorsteinn er sá eini á Vopnafirði
sem á torfæruhjól, annað er þrfhjól,
Honda, hitt fjórhjól, Suzuki.
„Það kom á götuna í dag. Ég er
að prufúkeyra það hér í fjörunni en
þessi hjól em bönnuð á vegum.“
Að sögn Þorsteins fara þrí- og fjór-
hjólatorfærumótorhjól yfir allt.
„Þau em langbest í harðfenni, alveg
ótrúlega góð.“
Nýja Suzukihjólið, sem verið var
prufúkeyra, kostar 224 þúsund krón-
ur. „Ég fór átta túra á Brettingi á
Vopnafirði og safnaði fyrir því.“
Þorsteinn þenur nýja Suzukifjórtijólið sitt i fjörusandinum I Vopnafirði. Án
hjálms, Þorsteinn, enda „svo mjúkt að lenda í sandinum."