Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986.
Rokkspildan
„Við viljum fjalla almennt um þá
möguleika sem ungu fólki bjóðast
í dag. Markmiðið með útgáfunni
er ekki eingöngu umfjöllun um
tónlist. Tónlistin er miklu frekar
eins konar útgangspunktur, eitt-
hvað sem tengir ólík áhugasvið
saman. Við ætlum að reyna að
draga fram í dagsljósið sköpunar-
kraft ungs fólks, í öllum myndum,
og leyfa honurn að njóta sín á síð-
um blaðsins." •
Sameiningartákn
Tímaritið UNG leggur upp með
stórar hugmyndir. Tónlistartímarit
á íslandi hafa undantekningar-
laust dáið drottni sínum eftir lengri
eða skemmri tíma. Aðalatriðið hér
er hins vegar ungt fólk og áhuga-
mál þess. Og eins og kemur fram í
ofangreindum orðum tveggja eig-
enda blaðsins, Tómasar Jónssonar
og Ómars Baldurssonar, er tónlist-
in fyrst og fremst sameiningartákn.
Blaðið á að endurspegla þá
strauma sem eru í gangi hverju
sinni.
„Það er mjög erfitt að koma
svona blaði á laggimar. Það er við
margs konar vandamál að etja. En
við höfum lært geysimikið á þess-
ari fyrstu útgáfu. Blaðið kemur
alltaf til með að þróast meira og
meira eftir því sem frá líður.“
Skoraö á Bubba
Annað tölublað af Ung er í bí-
gerð. Guðni Rúnar Agnarsson
hefur verið ráðinn ritstjóri þess og
þeirra sem á eftir fylgja. Áætlað
er að það komi út seinni hluta
ágústmánaðar.
„Það kennir ýmissa grasa í öðru
blaðinu. Við birtum einkaviðtal við
Madness, gerum úttekt á tónlistar-
húsinu, athugum skapgerðarein-
kenni íslenskra trommuleikara og
Einar Öm skorar Bubba Morthens
á hólm í tónlistarmálum. Við mun-
um í þessari útgáfu leitast áfram
við að skerpa stíl blaðsins og gera
það ennþá hressilegra og fjöl-
breyttara. Hugmyndimar em ótal
margar.“
En dugar það til? Sagan sýnir
annað.
„Þetta snýst vitaskuld fyrst og
fremst um auglýsingar. Sá markað-
ur er mjög harður í dag. Við teljum
aftur á móti að blaðið sé að vissu
leyti nýr auglýsingamiðill. Þetta
er tímarit um tónlist og menningu
ungs fólks. Það er nýr vettvangur
fyrir auglýsendur.
Nokkrir aðstandenda Ung. Eigendurnir Tómas Jónsson og Omar Bald-
ursson, Sigga Vala Ijósmyndari og nýráðinn ritstjóri, Guðni Rúnar
Agnarsson.
Ung einskorðar sig heldur ekki
við tónlist. Efni blaðsins er hugsað
fyrir ungt fólk með ólík áhugasvið.
Við trúum að það höfði til fjöld-
ans.“
-ÞJV
Alls verða tónleikamir §órir. 1
kvöld leika Aston Reymers, Centaur
og Greifamir. Næsta föstudag koma
fram Bjami Tryggva, Fölu frum-
skógardrengimir og Aston Reymers
í annað sinn. Kvöldið eftir leikur
Röddin, Bubbi og Sielun Veljet.
Sannarlega dágóð dagskrá atama.
Gott partí
Að þessum hátíðahöldum standa
samtökin Culture project ísland ’86.
Framkvæmdastjóri þeirra er Reynir
Birgir Edvardsson. Hann átti jafn-
framt hugmynd að öllu saman.
„Þetta er auðvitað meiri háttar
framkvæmd. Það er ekki hægt að
neita því. Markmið N’art er að halda
gott partí í Reykjavík. Við sem að
þessu stöndum höfum góða trú á að
það geti tekist.“
Það hef ég líka. Þarna koma fram
allar helstu poppsveitir landans og
þar að auki ber alla tónleikana upp
á helgi. Fólk ætti því að hafa tíma
til að lyfta sér upp frá streði
hvunndagsins. Þetta er áhugaverð-
ara en nokkur tjaldútilega.
-ÞJV
Bláa tjaldið á heimavelli knatt-
spymufélagsins Léttis hefur vakið
athygli margra. Æfíngabúðir eða tí-
volí? Hvomgt. Þetta er tónleikatjald.
N’art hátíðahöldin hófúst í gær og
standa yfir alla næstu viku. Af ýms-
um ágætum dagskrárliðum hátíðar-
innar em nokkrir tónleikar með því
athyglisverðasta. í gærkvöldi vom
þeir fyrstu. Þuklið, Kukl mínus
Björk, Vunderfoolz og finnska rokk-
sveitin Sielun Veljet léku í bláa
tjaldinu. Sielun Veljet er önnur af
tveim erlendum sveitum sem sækja
okkur heim. Hin kemur frá Svíþjóð
og nefnist Aston Reymers.
Rðddin leikur á háskólavellinum á laugardagskvöldið
Græðgi
í Berlínar-
bollur
Manstu eftir Berlín bollan
ðín? Ekki? Tengjum-Hestinn
við Skriðjökla og þá ætti að
kvikna á perunni. Ja, nema hún
sé spmngin eða laflaus.
Þessi litla, bleika plata er rif-
in út um þessar mundir. Enda
er hún gefins. Skriðjöklar
reyna að deila brauðinu sam-
viskusamlega til allra. Meira
að segja stjórnmálamennirnir
fá sitt. Albert og Guðmundur
J. fengu eitt eintak, saman. Sjá-
iði fyrrum félagana fyrir ykkur
raula hestinn yfir skák? Sann-
kallaðir sáttasemjarar, Jö-
klamir. Þeim er alls ekkert
ómögulegt.
-ÞJV