Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986.
í
■
Bandaríkjamaðurinn Nick de Firmian tapaði fyrir Nikolic i síðustu umferð á Reykjavíkurskákmótinu og sneri
heim snauður maður. Nú getur hann tekið gleði sína á ný, því að hann varð einn efstur á World Open skák-
mótinu og hlaut hátt i 900 þús kr. i verðlaun. Nick de Firmian er á miðri myndinni sem var tekin á Reykjavík-
urmóti 1982.
Hér er íjörug skák frá Fíladelfíu.
Hvítt: Frias (Chile)
Svart: Margeir Pétursson
Slavnesk vörn.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3
dxc4 5. a4 Bg4
Hefðbundin slavnesk vöm er á
borðinu eftir 5. -Bf5 en textaleikur-
inn er ágæt tilbreytni.
6. Re5 Bh5 7. g3 e6 8. Bg2 Bb4 9. 0-0
Rd5 10. Dc2 a5 11. Rxc4 Be7
í skák Jóhanns Hjartarsonar og
Yrjöla á Norðurlandamótinu í Gjö-
vík í fyrra var leikið 11. -Rb6.
Hugmynd Margeirs er ekki óþekkt.
Hann hyggst svara 12. e4 með 12.
-Rb4 og hertaka „holuna“ með
riddaranum.
12. Hdl 0-0 13. f3 f5!
Hindrar framrás e-peðsins, því að
eftir uppskipti á peðum yrði hrók-
urinn á dl í uppnámi.
14. Db3! Ha7
Einhverju sinni kímdi Kasparov
er Margeir lék svipuðum leik gegn
honum. Svartur sætti sig við tíma-
bundna ólánsstöðu hróksins. Eftir
14. -Dc7 15. Rxd5 cxd5 (ekki 15.
-exd5 16. Bf4 dxc4 17. Dxc4+ Bf7
18. Dxf7 + Hxf7 19. Bxc7 og hvítur
hefur unnið peð) 16. Re5 á hvítur
ívið þægilegra tafl.
15. Bd2 Rd7 16. Bel Kh8 17. Bf2 Dc7
18. Hacl Haa819. e3 Rb4 20. Ra2 Rd5
21. Rc3 Rb4 22. e4!?
Hvítur tekur þá stefnu að hleypa
taflinu upp í stað þess að þráleika
með tilliti til þess að umhugsunar-
tími Margeirs var farinn að styttast
ískyggilega.
22. -fxe4 23. Rxe4 Rd5 24. Hel?
Rétt var 24. Rc5! og möguleikar
hvíts virðast betri. Nú nær svartur
að endurskipuleggja varnimar.
24. -Bb4 25. He2 Hae8 26. Rc5 Hfl6
Með tvísýnni stöðu. Næsti leikur
hvíts er hins vegar beinn afleikur.
Betra er 27. Rxd7 ásamt Rc4-e5.
27. Rd2? Rxc5 28. dxc5 Hef8 29. Bd4
Hann treysti á þetta framhald,
því að annars væri f-peðið dauðans
matur. Svartur hótaði 29. -Bxd2
og 30. -Bxf3. Vitaskuld væri 29. g4?
glapræði vegna 29.~Rf4 og vinnur
lið.
29. -Bxd2 30. Be5
Ef nú 30. -Dd7 31. Hxd2 H6f7 32.
f4 ætti hvítur sómastöðu. Sennilega
bjóst hann við að vinna skákina
létt, því að Margeir átti aðeins um
mínútu eftir af umhugsunartíman-
um.
30. -Bxf3! 31. Bxc7 Bxe2
í ljós kemur að svartur fær meira
en nóg lið fyrir drottninguna.
32. Hal
Skárra var 32. Be5 Bxcl 33. BxfB
HxfB 34. Dxb7 en eftir 34. -Be3 +
35. Khl Bxc5 ætti svartur að vinna.
32. -Rxc7 33. Dxb7 Rd5 34. Dxc6 Bf3
35. h4 Re3 36. Bxf3 Hxf3 37. Dd6 Rfl
37. Ha3 Be3+ 39. Kg2 Hf2+ 40. Kh3
h5 - Og hvítur gafst upp.
þrír hjartaslagir. Vestur spilaði síð-
an laufi sem sagnhafi drap í blindum
á kónginn. Nú kom spaðadrottning,
kóngur, ás og þegar tían kom frá
vestri var spilið unnið.
Á hinu þorðinu glímdi Daninn
Schaltz við fjóra spaða sem byggjast
á sömu innri-svínun. Hann spilaði
hins vegar upp á spaðakónginn rétt
ög tapaði spilinu.
Það sama skeði einnig í leik ís-
lands og Svíþjóðar. Jón Baldursson
og Svíinn Brunzell voru báðir í fjór-
um spöðum en hvorugur beitti
innri-svínun og spilið féll.
Norðmaðurinn Aabye beitti hins
vegar þessu makalausa bragði og
krækti sér í 12 impa þegar Færeying-
urinn á hinu borðinu spilaði upp á
kónginn réttan.
í báðum kvennaleikjunum var inn-
ri-svínun ekki í notkun og spilið því
tíðindalaust.
Bikarkeppnin1986:
Dregið hefur verið í 3. umferð bik-
arkeppni Bridgesambands Islands.
Eftirtaldar sveitir spila saman:
Sveit Pólaris, Reykjavík, gegn sveit
Stefáns Pálssonar, Reykjavík.
Sveit Sigfúsar Arnar Ámasonar,
Reykjavík, gegn sveit Sigmundar
Stefánss./Delta, Rvík.
Sveit Inga St. Gunnlaugssonar,
Akranesi, gegn sveit Jóns Haukss.,
Vestm.,/Guðm. Þórðarsyni, Rnes.
Sveit Samvinnuferða/Jóhannesar
Sig. gegn sveit ísaks Amar Sigurðs-
sonar, Reykjavík.
Sveit Gríms Thorarensen, Kópavogi,
gegn sveit Ásgríms Sigurbjömsson-
ar, Siglufirði.
Sveit Aðalsteins Jónssonar, Eski-
firði, gegn sveit Sigtryggs Sigurðs-
sonar, Reykjavík.
Sveit Ásgeirs P. Ásbjömssonar í
Reykjavík gegn sveit Gylfa Pálss.,
Eyjafj.,/Hörður Pálss., Akran.
Sveit Valtýs Jónass., Siglufj.,/Jón
Hjaltason, Rvík., gegn Guðjóni Ein.,
Self./Kristiáni Guði.. Akurevri.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Þessum leikjum skal vera lokið
fyrir 13. ágúst nk. Upplýsingar um
leiki og andstæðinga veitir Hermann
Lámsson á skrifstofu BSÍ í fjarveru
Ólafs Lámssonar vegna EM í Búda-
pest. Enn skal minnt á að allmargir
fyrirliðar eiga eftir að koma greiðslu
vegna þátttöku í bikarkeppni til
BSÍ. Senda má greiðslu til BSÍ í póst-
hólf 156, 210 Garðabæ. Ferðakostn-
aður sveita verður ekki gerður upp
nema full skil verði á þátttökugjaldi.
Evrópumót yngri spilara 1986:
Evrópulandslið íslands í yngri
flokki 1986 heldur utan til Ungverja-
lands nk. fimmtudag til keppni við
18 aðrar þjóðir á Evrópumóti lands-
liða í yngri flokki. Liðið skipa eftir-
taldir spilarar: Anton Reynir
Gunnarsson, Reykjavík, Jakob
Kristinsson, Akureyri, Júlíus Sigur-
jónsson, Bolungarvík, Karl Logason,
Reykjavík, Ragnar Magnússon,
Reykjavík, og Svavar Björnsson,
Reykjavík. Fyrirliði er Ólafur Láms-
son, Reykjavík.
Eins og áður sagði mun liðið keppa
við 18 aðrar þjóðir á mótinu. Spiluð
verða 20 spil í hverjum leik, allir
v/alla og þrír leikir á dag að jafnaði.
Spilamennska hefst laugardaginn 19.
júlí og lýkur laugardaginn 26. júlí.
Spilað er í Búdapest í Ungverjalandi.
Frá Bridgesambandi íslands
I tilefhi 50 ára afinælis finnska
bridgesambandsins hefur borist boð
til Bridgesambands Islands að senda
4 pör á veglegt afinælismót sem hald-
ið verður á Hótel Marski í Helsing-
fors dagana 6.-7. september nk.
Á laugardeginum verður spilaður
barometertvímenningur frá kl. 11-19.
Um kvöldið verður aftnælishóf oe
daginn eftir sveitakeppni (með eins
konar Sviss-fyrirkomulagi) frá kl.
10-17.
Gisting á hótelinu kostar 190
finnsk mörk (sem er kr. 1400 ca.) fyr-
ir tveggja manna herbergi á mann
og er morgunmatur innifalinn í
verði. Ekkert þátttökugjald er fyrir
þátttakendur frá fslandi. Ferða-
kostnaður er áætlaður ca kr. 15.000
á mann til Helsingfors. Alls er því
pakkinn í kringum 20.000 kr.
Bridgesamband íslands auglýsir
hér með eftir þátttöku (umsóknum)
á þetta afinælismót finnska bridge-
sambandsins. Umsóknir skulu berast
til skrifstofu BSÍ (Ólafs Lárussonar)
fyrir 1. ágúst nk., skriflega vegna
fjarveru Olafs út af Evrópumótinu,
eða til stjómarmeðlima Bridgesam-
bandsins fyrir 1. ágúst.
Sigmar og Hulda efst
Spilað var í sumarbridge deildar-
innar þriðjudaginn 8. júlí.
Hæst skor fengu:
A-riðill
1. Ragnar Bjömsson -
Sævin Bjarnason 2. Guðrún Hinriksdóttir - 259
Haukur Hannesson 247
3. Gísli Steingrímsson - Guðmundur Thorsteinss. 4. Esther Jakobsdóttir - 242
Anna Þóra Jónsdóttir 238
B—riðill
1. Hjörtur Cýrusson -
Cýms Hjartarson 2. Ármann Lárusson - 65
Helgi Viborg 3. Óskar Karlsson - 55
Garðar 50
Efst að stigum eru þá: Sigmar Jónsson 11
Hulda Hjálmarsdóttir 11,5
Þórarinn Andrewsson 10,5
Guðrún Hinriksdóttir 8
Haukur Hannesson Meðalskor A 210 Meðalskor B 50 8
Spilað er á þriðjudögum í Drangey,
Síðumúla 35.
35
' »
Lokað vegna sumarleyfa
Lokað vegna sumarleyfa dagana
21. 07. til og með 4. 08. 1986.
Bitstál sf.
Hjarðarhaga 45. símar 16350 og 16351. 107 Reykjavík
Umboðsmaður
óskast á Þórshöfn.
Upplýsingar hjá Heiðrúnu
Óladóttur. Sími 96-81154.
Umboðsmenn um
land allt.
S JON V ARPSDEILD
Skipholti 7 - Símar 20080 og 26800.
SEUUMNÝJA
OG NOTAÐA
BÍLA
Tegund
BMW 732i automatic 1981
BMW 728i automatic 1980
BMW 528i automatic 1981
BMW 520i automatic 1982
BMW 520 automatic 1981
BMW 518 1982
BMW 323i 1982
BMW 320i 1983
BMW 320 1982
BMW 318i 1982
BMW 318i 1981
BMW 316 1982
Renault 18 TS automatic 1981
Renault 9 GTS 1982
Renault 5 TL 1982
Opið laugardag 1 —5.
KOMIÐ SKOÐÍÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 686633.
4