Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986. Hvers konar maður er það sem lætur fláráða flugu í höfðinu teyma sig yfir land og sjó upp á þau býti að standa upp á endann í heila þrjá daga í ókunnu landi, lúbarinn af regni og öðrum refsivöndum veðurguðanna? Masókisti? Veðurfræðingur? Ó, nei, betur ef satt væri, þvi slíkum mönnum má fyrirgefa. Hér er við snaróðan pilt- ung að eiga sem gengið hefur sjálf- viljugur í ánauð tónlistargyðjunnar og vill hvergi annars staðar vera. Sjálf- skipaður þræll, það hlýtur að vera auðvirðilegasta stig heimskunnar, því hvað er það annað en heimska að henda 15.000 krónum í flugmiða yfir hafið til að sækja saurlífissamkundu þar sem öllum helgustu hugsjónum borgaralegs lífemis er gefið langt nef og seiðkarlar lágmenningar dansa hringdans undir hljómfalli djöflatón- listar? Góðir landsmenn! Hér á eftir fer skýrsla þessa ógæfumanns. Látið hann ekki kasta ryki í augu ykkar með skrúðmælgi og fogrum lýsingum. Sið- menningin er í veði. Stærsta rokkhátið Evrópu Hróarskelduhátíðin í Danmörku var nú haldin í 15. skipti og hefur hróður hennar vaxið að því marki að nú er hún almennt viðurkennd sem stærsta tónleikahátíð Evrópu. Hróarskelda er lítil borg vestur af Kaupmannahöfn og var allt til ársins 1972 einkum þekkt fyrir að geyma jarðneskar leifar af velflestum meðlimum hins danska kóngaaðals gegnum aldir. En frá 1972 hefiir Hróarskelda tengst tápi og fjöri, iðandi mannlífi og hágæðatónlist samtímans. Kinks oe Family komu fram á fyrstu hátíðinni en síðan hafa fylgt í kjölfarið m.a. Procol Harum, . Bob Marley, Santana, Talking Heads, U2, Simple Minds, New Order og í fyrra m.a. Clash, Cure, Leonard Cohen og Style Council. í fyrra bar mest á oddvitum pönksins og nýbylgjunnar en í ár var um fjölbreyttari blöndu að ræða þar sem m.a. gat að heyra í helsta gítargoði sjöunda áratugarins, gáfu- mannapoppara þess áttunda og eld- heitum hugsjónamanni er notið hefur vaxandi athygli síðustu misseri. Tónlistarflutningur fer fram á þrem- ur misstórum sviðum, Orange sviðinu, sem er þeirra stærst, Græna sviðinu, sem áður hét Ryþmatjaldið, og loks Blóa sviðinu en þar er þjóðlagatónlist gert hátt undir höfði. Auk þessa má svo nefna 4 minni tjöld þar sem tónlist er flutt og má af þessu sjá að það er ekki fyrir óvélknúinn tvífætling að meðtaka allt það sem athyglisvert ge- rist ó hótíð sem þessari. Frískur Sharkey Formleg setningarathöfn var síð- degis á föstudegi en kvöldið áður höfðu danskir listamenn þjófstartað fyrir þá forsjálu ferðamenn er mættir voru á svæðið til að tryggja sér gæfuleg tjald- stæði. Allur þorri hátíðargesta lét þó sjá sig um miðjan föstudag með bak- poka og tjald á öxlum og bjórkassa í fanginu. Unglingar voru að sönnu í miklum meirihluta, hvaðanæva úr Evrópu, en fertugir jafnaldrar meist- ara Claptons létu sig ekki muna um að stíga upp úr skrifetofustólunum og endurupplifa tónlist þess tíma er vafa- laust hefur tengst hugsjónum um betri heim, hugsjóniun er reyndust tálsýnir einar, eða geymdust þær bara í skrif- borðsskúffunni? írski gæðasöngvarinn Feargal Sharkey, fyrnun meðlimur nýbylgjusveitarinnar Undertones en nú vinsæll sólópoppari, kom fram á Græna sviðinu kl. 17.30 með fríðan flokk sér til fulltingis. Efnisskráin samanstóð af vinsælum lögum fyrstu sólóplötu hans: A good heart, You little thief, auk gamalkunnugra rokk- laga, s.s. It’s all over now og Watch that man sem David Bowie flutti á plötu sinni, Aladdin sane, árið 1973. Sharkey var feikifrískur ó sviði, flutn- ingurinn kröftugur og samband við áhorfendur mjög gott. Meðreiðar- sveinar hans eru lítt þekktir en stóðu vel fyrir sínu, einkum tvær holdugar blökkukonur er sungu bakraddir. Vatnadrengir slá í gegn Waterboys, stórgóð rokksveit frá Skotlandi, hóf leik á stóra sviðinu meðan Sharkey lauk sér af og var þátt- ur þeirra í einu og öllu frábær. Waterboys njóta vaxandi virðingar á heimaslóðum enda er tónlist þeirra mjög gjöful þeim er á hlustar, hvort sem litið er á tóna eða texta. Hljóm- sveitin hefur starfað í rúm þrjú ár, ævinlega undir handleiðslu Mike Scott, söngvara, gítarleikara og aðal- lagasmiðs sveitarinnar. Sú fimm manna sveit, sem kom fram í Hróars- keldu, hefur þá aðeins starfað saman í örfáa mónuði en Scott er ekki í vafa um að hann hafi fundið hina einu sönnu Waterboys, þar sem allir starfa að einu markmiði. Þessi afetaða endur- speglaðist í frammistöðu Waterboys í Hróarskeldu, spilamennskan heil- steypt og leikgleði mikil sem smitaði áhorfendur. Waterboys fluttu einkum lög af nýjustu plötu sinni: This is the sea en auk þeirra vöktu athygli nýja lagið Fisherman’s blues (óútgefið) og tvö Dylanlög, Maggie’s farm og Death is not the end, en Dylan er eitt helsta átrúnaðargoð Scotts. Hópunktur tón- leikanna var þó er Waterboys fléttuðu saman Patti Smith lagið Becouse the night og eigið lag, The pan within, af nýjustu plötunni í eina magnaða rokk- útgáfu. Kóngurinn kemur Önnur helsta stjama hátíðarinnar, Elvis Costello kom fram á Græna svið- inu um kl. hálftíu og voru þessir tónleikar þeir fyrstu er hann hélt með hljómsveit sinni, The Attractions í heila 18 mánuði. Costello kom mörgum á óvart í Hróarskeldu því lítið var um lög af nýjustu plötum hans. Megin- hlutinn var hressileg popplög hans: Red shoes, You belong to me, Pump it up, Watching the detectives, Clu- bland og hið öfluga Lipstick vogue. Aðeins tvö lög voru af nýju plötunni, Lovable og svo auðvitað Don’t let me be misunderstood, sem féll í góðan jarðveg. Nokkur ný lög flutu með og tók ég einkum eftir sterku rokklagi sem nefiidist Uncomplicated. Eftir tylft laga kvaddi vinurinn en múgurinn sleppti honum ekki lausum fyrr en gamla einkennislagið hljómaði í tjald- inu, Olivers army, og tjaldið nötraði. Costello endaði svo hressilegt pró- gramm á fríðarsöngnum,- What’s so funny’bout peace love and understand- ing?, og maður getur ekki annað en furðað sig á því að þessi snillingur skuli ekki löngu orðinn súperstjama, heimalingur á toppum vinsældalist- anna. Billy Bragg lét mörg fögur orð falla um Costello á blaðEimannafundi ,daginn eftir og sagði m.a.: „Elvis Co- .stello er hinn fullkomni „showman". Hann setur efnisskrána saman af slíkri natni og mannþekkingu að maður get- ur ekki annað en dáðst að. Að mínu viti er Costello besti lagasmiður sem yrkir á enska tungu í dag.“ Guðdómiegt Það kom mörgum á óvart að Co- stello skyldi ekki leika á aðalsviðinu en ástæðan var ofur einföld, þar var fyrir annar kóngur með hirð sína, sjálf- ur Eric Clapton og hljómsveit hans sem samanstóð af þeim Phil Collins (trommur), Greg Phillinganess (hljóm- borð) og Nathan East (bassi). Clapton réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, opnunarlagið var Crossroads og í kjölfarið fylgdi annað ódauðlegt Cream-lag, White room, síðan After midnight, I shot the sheriff og hið leið- inlega viðeigandi Let it rain. Clapton fór á kostum, dyggilega studdur af frá- bærri hljómsveit, og sú líkamlega þreyta, sem var afrakstur daglangrar stöðu í mannþröng, gleymdist sem armasta fánýti. Best þótti mér meistar- anum takast upp í Badge, laginu sem þeir sömdu saman, Clapton og George Harrison. Flutningur Claptons á þessu lagi var hreint himneskur og mögnuð sviðslýsing undirstrikaði frábæran gít- arleikinn. í miðju prógrammi steig Clapton skyndilega til hliðar og hleypti félög- um sínum í sviðsljósið. Phillinganess söng þá poppsmell sinn frá síðasta ári, Behind the mask, og Collins tók sér sæti á stólpa fyrir ofan trommusettið oe söng þaðan sitt besta lag, In the,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.