Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986. Fréttir Þorvaldur Gytfason prófessor um fjármálastefnu ríkisstjómarínnar: Stuðlar að vaxandi þenslu og verðbólgu Þorvaldur Gylfason, prófessor í viðskiptadeild Háskólans, telur að fjármálastefna ríkisstjómarinnar, sem ffam kemur í ffumvörpum til fjárlaga og lánsfjárlaga, sé líkleg til að stuðla að vaxandi þenslu og verð- bólgu á næsta ári ef ekki verður gripið í taumana. Þetta kom ffam í erindi hans á ráðstefiiu Félags viðskiptaffæðinga og hagffæðinga um fjárlögin og efiiahagslífið sem haldin var á Hótel Sögu í gær. Tók Þorvaldur saman lánsfjárþörf opinberra og hálfopinberra aðila og sagði: „Þessi lánsfjárþörf, 12,4 milljarðar, sem nemur um 8% af áætlaðri lands- ffamleiðslu 1987, sýnir hversu langt útgjöldum opinberra aðila er ætlað að fara fram úr tekjum á næsta ári. Vegna þess að hún nær til opin- berra umsvifa í heild og ekki aðeins til hluta þeirra, gefúr lánsfjárþörfin miklu betri vísbendingu um fyrir- hugaðan halla á opinberum búskap heldur en hallinn á rekstri ríkisins. Þessi mikli greiðsluhalli opinberra aðila þarf þó ekki endilega að vera fyrirboði mikillar verðbólgu. Ástæð- an er sú að verulegur hluti þeirra útgjalda, sem þessum 12,4 milljörð- um er ætlað að standa straum af, veldur ekki þenslu í þjóðarbúskapn- um. Mestu máli skiptir í þessu sam- bandi að afborganir og vextir af erlendum lánum opinberra aðila eru taldar munu nema 8,6 milljörðum." Síðar sagði hann: „Eftir standa þá 3,5 milljarðar. Þessari fjárhæð munu opinberir að- ilar veita út í efriahagslífið umffam það sem þeir innheimta með skött- um, ef frumvörpin tvö verða að lögum og lögunum verður fylgt. Þessi 3,5 milljarða „þensluhalli“, sem líklega er best að kalla svo, nemur rösklega 2% af áætlaðri landsframleiðslu og virðist því ekki mjög mikill í sjálfúm sér. En hann er samt hættulegur að mínum dómi vegna þess að hann getur kynt undir verðbólgu og við- skiptahalla þvert ofan í ásetning ríkisstj ómarinnar. Og hann getur orðið mjög hættu- legur, ef §árlagafrumvarpið tekur þesskonar breytingum í meðförum Alþingis að fjárlögin sýna á endan- um mun meiri halla en frumvarpið gerir ráð fyrir, eins og næstum alltaf hefúr gerst á undanfömum árum. Þar að auki er margföld reynsla fyr- ir því að opinber útgjöld fara iðulega langt ffam úr fjárlögum. I ljósi reynslunnar er þessvegna hætt við því að þensluhallinn í bú- skap opinberra aðila verði miklu meiri en 3,5 milljarðar, þegar upp verður staðið í árslok 1987. Þannig virðist fjármálastefna rík- isstjómarinnar líkleg til að stuðla að vaxandi þenslu og verðbólgu á næsta ári, ef ekki verður gripið í taumana." -KMU Frá fundi starfsmanna á Rás 2 og yfirmanna Ríkisútvarpsins þar sem ákveðið var að taka upp sjálfsgagnrýni en lengja ekki dagskrána í samkeppninni við Bylgjuna. DV mynd KAE Rás 2: Dagskráin verður ekki lengd strax Dagskrá rásar 2 verður ekki lengd, alla vega ekki strax, en hún verður tekin til endurskoðunar og reynt að bæta hana sem kostur er til að mæta samkeppninni við hina nýju stöð Bylgjunnar. Þetta varð niðurstaða mikils fundar starfsfólks rásar 2 með Þorgeiri Ástvaldssyni, ffamkvæmda- stjóra rásarinnar, Markúsi Emi Antonssyni útvarpsstjóra, Elvu Björk skrifstofustjóra og Eiði Guðnasyni al- þingismanni, sem sæti á í útvarpsráði, í fyrrakvöld. „Hér var um gagnlegan fund að ræða og málefnalegan, þótt á stundum hvessti nokkuð. Við höfum lagt á það þunga áherslu að fá dagskrána lengda en það fékkst ekki. Útvarpsstjóri er því ekki hlynntur, ekki strax að minnsta kosti, en aftur á móti lýsti Eiður Guðnason þeirri skoðun sinni að lengja ætti dagskrána í 24 tíma á sólarhring," sagði Kristján Siguijóns- son, starfsmaður rásar 2, við DV. Kristján sagði að þeir Stefán Ólafs- son og Ólafur Harðarson frá Háskóla íslands hefðu komið á fundinn og út- skýrt niðurstöður hlustendakönnunar sem félagsvísindadeild framkvæmdi á dögunum. „Við starfsmenn lýstum því yfir að við vildum mæta samkeppninni við Bylgjuna með því að lengja dagskrána og bæta hana sem kostur er og sem fyrr segir varð niðurstaðan sú að við legðumst í sjálfsgagnrýni með það fyr- ir augum að bæta dagskrána en síðan yrði það skoðað hvort mögulegt væri að lengja hana,“ sagði Kristján Sigur- jónsson. -S.dór Tannlæknar hækka taxta sinn aftur - þeir hækkuðu taxtann í ágúst um 7,5% og nú um 3% „Það er rétt, við hækkuðum taxta okkar um 3% í byrjun október en það er sama prósentutala og al- menningur fékk á sína kauptaxta 1. september," sagði Sigurgeir Stein- grímsson, formaður Tannlæknafé- lags íslands, í samtali við DV. Hann sagði að engar samningavið- ræður hefðu farið fram milli tann- lækna og Tryggingastofnunar ríkisins síðan upp úr slitnaði í sum- ar. Nefnd, sem fór utan á vegum Tiyggingastofhunar til að kynna sér kjör tannlækna í nágrannalöndun- um, er nýkomin heim og er nú verið að vinna úr þeim gögnum sem hún aflaði í ferðinni, að sögn Helga V. Jónssonar, formanns samninga- nefndar ríkisins við tannlækna. Helgi V. Jónsson sagði það taka nokkrar vikur að vinna úr þessum gögnum. Hann sagðist búast við því að þegar gagnavinnslu lyki yrði reyndur samningafúndur með tann- læknum, þótt hann teldi litlar vonir um samninga. „Ef ekki nást samningar á ég von á því að fram verði lögð á vegum Tryggingastofnunar ný verðskrá, byggð á erlendu gögnunum," sagði Helgi. Eftir þessa 3% taxtahækkun eykst sá mismunur sem almenningur verð- ur að greiða milli taxta Trygginga- stofiiunar og taxta tannlækna sem þessari prósentutölu nemur. -S.dór. DV Ósáttir við Magnús Reyni „Við erum ósáttir við Magnús Reyni Guðmundsson og yfirlýsingar hans um Steingrím," sagði Magnús Bjömsson, formaður Framsóknarfélags Amfirð- inga, sem í fyrrakvöld sendi Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra svo- hljóðandi skeyti: „Fundur framsóknarmanna á Bíldudal styður heilshugar þá á- kvörðun yðar að gefa kost á yður í framboð í Reykjaneskjördæmi. Við teljum að þessi ákvörðun sýni best þá ábyrgðartilfinningu og samviskusemi sem ávallt hafa einkennt vinnubrögð yðar. Bílddælingar, jafiit sem aðrir Vestfirðingar, munu seint gleyma og seint fá fullþakkað þau miklu störf sem þér hafið unnið fyrir okkur. Megi þessi ákvörðun verða ykkur hjónunum og Framsóknarflokknum til heilla. - Framsóknarfélag Amfirðinga.“ -KMU Bylgjan norður - Kaupir Bylgjan Rás 2? Jón G. Hauksaan, DV, Akureyn; „Við höfum áhuga á að útbreiða Bylgjuna um landið eins og við getum. Við náum þegar til 70% þjóðarinnar. En við höfum áhuga á stöðum eins og Akureyri og erum rétt að byija að velta fyrir okkur hvað kosti að senda þangað," sagði Einar Sigurðsson, út- varpsstjóri Bylgjunnar í Reykjavík. Einar sagði ennfremur að þeir á Bylgjunni hefðu mikinn áhuga á þvi sem Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra hefði ýjað að á Alþingi um að Rás 2 yrði hugsanlega seld. „Við höfum áhuga á að vita nánar hvað verið er að ræða um, hvað eigi að selja. Á aðeins að selja tækin í Efstaleiti eða er verið að ræða um að selja allt endurvarpskerfi rásarinnar, sem er mjög fullkomið.“ Einar ítrekaði að þeir væm rétt að byrja að velta fyrir sér möguleikum á sendingum til Akureyrar en ennþá væri alls ekkert ákveðið í þeim efnum. Vallhólmur varnarlaus Fimm mánaða greiðslustöðvun gras- kögglaverksmiðjunnar Vallhólms hf. í Skagafirði, sem hlífði fyrirtækinu við gjaldþroti, rann út á sunnudag. Kröfu- hafrr geta nú gengið að fyrirtækinu. Búist er við gjaldþrotsúrskurði á næstu dögum. Gjaldþrot Vallhólms hf. er talið verða yfir 60 milljónir króna. Fyrirtækið er talið skulda 80 milljónir króna. Verðmæti eigna þess er hins vegar innan við 20 milljónir króna. Ríkissjóður er eigandi Vallhólms að þrem fjórðu. Langstærstu kröfuhafar em tvær stofnanir ríkisins, Ríkis- ábyrgðasjóður, með 44 milljónir króna, og Stofnlánadeild landbúnaðarins, með 10 milljónir króna. -KMU Sama gjald fyrir síma á öllu landinu Fimm þingmenn Alþýðubandalags- ins af landsbyggðinni, með Hjörleif Guttormsson i broddi fylkingar, hafa flutt þingsályktunartillögu um sama gjald fyrir símaþjónustu á öllu landinu. Vilja þeir að ríkisstjómin geri áætl- un um að jafna gjaldskrá símans í áföngum með það að markmiði að landið verði allt eitt gjaldsvæði innan fimm ára. Kostnaður vegna símtala við stjóm- sýslustofnanir verði hinn sami hvar sem er á landinu fyrir árslok 1987. Ráðstafanir verði gerðar til að gjald- skrárbreytingin verði ekki íþyngjandi fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.