Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986. 7 Stjóminál Frídagur sjómanna fari í lög Þrír þingmenn Alþýðuflokksins, þeir Eiður Guðnason, Karl Steinar Guðna- son og Stefán Benediktsson, leggja til að fh'dagur sjómanna verði lögbund- inn. I lagafrumvarpi þeirra segir að fyrsti sunnudagur í júnímánuði ár hvert skuli vera almennur frídagur íslenskra sjómanna. Sé fyrsti sunnudagur í júní hvítasunnudagur skuli næsti sunnu- dagur þar á eftir vera frídagur sjó- manna. Flutningsmenn segjast vera þeirrar skoðunar að með því að lögskipa sjó- mannadaginn sem frídag sé Alþingi fyrir þjóðarinnar hönd að sýna sjó- mannastéttinni heiður og virðingu, sem hefði átt að vera búið að gera fyrir löngu. -KMU Foreldrar fái tveggja ára frí án launa Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Kvennalista, hefur lagt fram laga- frumvarp um rétt foreldra til að taka sér launalaust leyfi frá störfum vegna umönnunar barna. „Foreldri, sem beiðist lausnar frá starfi sínu til þess að annast bam sitt, á rétt á að ganga aftur að sama starfi og sömu kjörum allt að tveimur árum frá fæðingu bamsins. Sé um fleirbura eða fötluð böm að ræða framlengist þessi réttur um eitt ár til viðbótar. Ákvæði þessara laga skerða að engu ákvæði gildandi laga um fæðingaror- lof,“ segir í frumvarpinu. I greinargerð segir að tilgangur þessa frumvarps sé að koma til móts við breyttar aðstæður foreldra ungra bama og gera þeim kleift að sinna störfum heimilis og bama fyrstu tvö árin á ævi bams án þess að raskað sé atvinnuöryggi þeirra. -KMU Krabbar, ígulker og önnur slík dýrverði könnuð Átta þingmenn Alþýðubandalagsins, með Hjörleif Guttormsson sem fyrsta flutningsmann, hafa flutt þingsálykt- unartillögu um rannsóknir á botnlæg- um tegundum á grunnsævi. Vilja þeir að slík mið verði kortlögð til að auð- velda veiðar, ekki síst inníjarða. í greinargerð segja þingmennimir að veiðar á hörpudiski og rækju hafi reynst mikil búbót. Stofnar þessara dýra séu nú nær fullnýttir á grunnslóð. Hins vegar þurfi að koma til rann- sóknir innfjarða og víðar á gmnnsævi til að skipulegar veiðar geti hafist á ýmsum öðrum botndýrum sem lítið eða ekkert hafa verið nýtt til þessa, svo sem trjónukrabba, beitukóngi, kúfskel, kræklingi, öðu, bámskel og ígulkeri. Tilraunaveiðar á nokkrum þessara tegunda lofi góðu. Hér sé „ónumið land“. -KMU SPRENGJU - BILASYNING Laugardag og sunnudag kl. 14-17 NI5SAN SUNNY ’87 verður algjör sprenging á bílamarkaðnum. Þeir eru loksins komnir og seljast eins og heitar lummur 3ja dyra, 5 dyra og 4ra dyra sedan. Nissan Sunny Hatchback LX 1,0 5 dyra 4 gíra....................................... 343.000,- Nissan Sunny Hatchback LX 1,3 5 dyra 5 gíra...................................... 364.000,- Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 3 dyra 5 gíra....................................... 394.000,- Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra 5 gira....................................... 399.000,- Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 3 dyra 5 gíra m.aflstýri ........................... 409.000,- Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra 5 gíra m. aflstýri........................... 414.000,- Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra sjáifsk...................................... 428.000,- Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra sjálfsk. m.aflst............................. 442.000,- Nlssan Sunny Sedan LX 1,3 4 dyra 5 gíra............................................ 364.000,- Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra 5 gíra........................................... 395.000,- Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra 5 gíra m.aflstýri................................ 410.000,- Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra sjálfsk.......................................... 424.000,- Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra sjálfsk. m.aflstýri.............................. 438.000,- Nissan Sunny Wagon LX 1,5 5 gíra................................................... 431.000,- Nissan Sunny Coupe LX 1,5 5 gira................................................... 430.000,- Nissan Sunny Coupe SLX 1,5 5 gíra ................................................. 465.000,- Komið og kynnist hinum frábæru NISSAN SUNNY INGVAR HELGASON HF Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simí 33560 ALLT AÐ AFSLATTUR AF FUAVARNARAEFNUM AFSLATTUR ALLT AÐ AF MALNINGU OPIÐ KL. 8-18 VIRKA DAGA KL. 10 - 16 LAUGARDAGA 2 góðar byggingavöruverslanir. Austast og vestast í borginni Stórhöfða, simi 671100 v/Hringbraut, sími 28600.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.