Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 17. OKTÖBER 1986.
Útlönd
Ef þú dvelur hér lengur
kemurðu skáeygður til baka
Ummæli breska drottningarmannsins valda uppnámi í opinberri heimsókn í Kína
Elisabet Englandsdrottning er nú í þann mund að Ijúka sex daga opinberri heimsókn í Kínverska alþýðulýðveld-
inu. Niðurlægjandi ummæli eiginmanns hennar um Kina og Kinverja hafa þeytt upp miklu pólitísku moldviðri og
verið harðlega fordæmd í Bretlandi.
Fæna flóttafólk til Danmerkur
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmaimahöfri;
í danska þinginu er meirihluti fyrir
strangari lögum um flóttamenn og
munu þau væntanlega þýða töluverða
fækkun flóttamanna er leita hælis í
Danmörku. Eru það jafhaðarmenn er
tryggja lagabreytinguna sem, auk tak-
mörkunar á flóttamannastraumnum,
leggur áherslu á jafna landfræðilega
dreifingu þeirra flóttamanna sem fyrir
eru í Danmörku.
Ef hin nýju lög verða samþykkt í
núverandi mynd þýðir það að hægt
verði að vísa flóttamönnum burt við
landamærin ef viðkomandi kemur frá
svokölluðu öruggu landi, til dæmis
Þýskalandi. Það verður hins vegar
ekki hægt ef til dæmis írani kemur
beint frá íran eða Tyrklandi þar sem
hætta er á að hann verði sendur aftur
til írans.
Hjá Sameinuðu þjóðunum eru menn
í vafa um réttmæti þessara laga er
gætu stangast á við ákvæði Samein-
uðu þjóðanna um flóttafólk frá 1977
sem Danir hafa fylgt nákvæmlega síð-
an. Dómsmálaráðherra segir þó enga
hindrun vera fyrir samþykkt laganna
en sérfræðingar eigi eftir að kíkja í
saumana á málinu.
Fóttamönnum hefur fækkað undan-
farið og þykir því ástæða til að fara
sér hægt og vanda lagasetninguna. í
síðustu viku báðu 274 flóttamenn um
hæli í Danmörku, það er um 40 á dag.
En í síðari hluta september komu að
jafnaði 134 flóttamenn á dag.
Filipus prins, eiginmaður Elísabetar
Englandsdrottningar, sætir hörðu
ámæli í breskum blöðum í morgun
fyrir ummæli er höfð eru eftir honum
í Kínverska alþýðulýðveldinu þar sem
eiginkona hans er nú í opinberri heim-
sókn.
Bresku blöðin fúllyrða í morgun að
drottningarmaðurinn hafi valdið
miklu uppnámi á meðal breskra
stjómarerindreka í Peking með um-
mælum sínum að undanfömu og lýst
ótta stjómarerindreka við að ummæli
prinsins kunni að hafa slæm áhrif á
viðkvæm samskipti Bretlands og Kín-
verska alþýðulýðveldisins.
Peking skelfileg
Haft er eftir breskum námsmanni í
Xian héraði í gær eftir fúnd hans með
Filipusi að drottningarmaðurinn hafi
kallað Peking skelfilega borg og að
prinsinn hafi sagt við námsmanninn
breska að ef hann dveldi lengur í
landinu kæmi hann skáeygður til
baka.
Ummæli drottningarmannsins vekja
mikla athygli i breskum blöðum í dag
og em víða í stríðsfyrirsögnum á for-
síðu.
Michael Shea, blaðafulltrúi Buck-
inghamhallar, gagnrýndi umíjöllun
fjölmiðla í morgun og kvað ummæli
prinsins hafa verið tekin úr samhengi
og hafi hann ekki ætlað að lítillækka
Kína né Kínveija á neinn hátt.
Pólitískt moldviðri
Breska blaðið Today sagði í morgun
að embættismenn og stjómarerindrek-
ar í föruneyti drottningar væm frá sér
numdir af reiði og haft er eftir Guar-
dian að ummæli prinsins hafi þeytt
upp miklu moldviðri sem erfitt verði
að lægja. í Daily Telegraph segir i
morgun að ummæli drottningar-
mannsins séu niðurlægjandi og geti
haft alvarlegar afleiðingar, auk þess
sem blaðið fúllyrðir að ummælin hafi
án efa vakið reiði kínverskra leiðtoga.
Danmork:
Lógreglan í verkfall
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmannahöfri;
Danskir lögreglumenn hafa nú í
augljósum hótunum um að fara í verk-
fall ef þeir fá ekki umtalsverðar
launahækkanir við kjarasamninga
vetrarins. Verður það í fyrsta skipti
sem danska lögreglan fer í verkfall.
Lögreglumenn um alla Danmörku
hafa sagt að nú sé mælirinn að verða
fullur, hafi þeir dregist verulega aftur
úr og séu laun iðnaðarmanna orðin
mun hærri eftir að hafa verið svipuð
fyrir nokkrum árum. Lögreglufélagið
biður meðlimi sína um að bíða til hins
síðasta með að grípa til verkfallsað-
gerða en ef svo fer þá eru til nægir
peningar til að fjármagna verkfallið.
Lögreglan hefur verið með auglýs-
ingaherferð í blöðunum að undan-
fömu þar sem hollusta lögregluliðsins
er undirstrikuð en um leið að hún
kosti líka eitthvað. Hefur lögreglan í
hyggju að hefja samstarf með hjúkr-
unarfræðingum varðandi fjármögnun
verkfalla. „Við berjumst fyrir því
sama,“ segir lögreglufólk.
Hjá fjármálaráðuneytinu segir full-
trúi að lögreglufólk brjóti embættis-
mannalögin ef það fer í verkfall og því
muni það verða dregið fyrir embættis-
mannaréttinn, þar sem lögreglufólk
muni fá aðvaranir eða sektir. Venju-
legur lögreglumaður á Kaupmanna-
hafnarsvæðinu þénar nú um 72.500
íslenskar krónur á mánuði.
Komið upp um njósnahring
Lögreglan í Punjab á Indlandi til-
kynnti í morgun að komið hefði verið
upp um njósnahring sem veitti Pak-
istönum upplýsingar um hemaðarleg
leyndarmál í skiptum fyrir vopn. Haft
er eftir embættismönnum að komið
hafi verið upp um njósnarana eftir
handtöku meintra öfgamanna á mið-
vikudaginn.
í Amritsar hafa lögregluyfirvöld til-
kynnt um handtöku tveggja lögreglu-
þjóna og læknis vegna morðsins í
síðastliðnum mánuði á leiðtoga kom-
múnista sem mótfallinn var kröfum
aðskilnaðarsinna sikka.
Þegar undirbúningsfundur breyttist í alvörufund
Ólafur Amaraon, DV, New York:
Nú, tæpri viku eftir að Reagan
forseti og Gorbatsjov aðalritari
skildu á íslandi eftir fúnd er virtist
vera nærri því að leiða til tímamóta-
samninga um afvopnunarmál, eru
embættismenn og aðrir enn í leit að
svörum við mörgum lykilspuming-
um er enn er ósvarað eftir leiðtoga-
fundinn.
Spyija menn nú að því hér í
Bandaríkjunum hvemig fundur, er
báðir aðilar sögðu að ætti aðeins að
vera undirbúningsfundur undir al-
vöm leiðtogafund, hafi breyst í
mikilvægar samningaviðræður þar
sem öll ágreiningsefni stórveldanna
vom á dagskrá og hvort ríkisstjóm
Bandaríkjanna hafi í raun verið
undirbúin fyrir slíka dagskrá, auk
þess sem spurt er að því hvort sam-
komulag hafi verið fyrir hendi
fyrirfram í ríkisstjóminni í Was-
hington um afstöðu til helstu mála.
Efasemdir em einnig um það hér
í Bandaríkjunum hvort sú takmörk-
un er Sovétmenn kröfðust á frekari
rannsóknum í geimvamaráætlun
Bandaríkjanna hefði í raun gengið
af áætluninni dauðri eins og tals-
menn forsetans fullyrtu í Reykjavík
eftir að slitnaði upp úr viðræðum
Reagans og Gorbatsjovs.
Sovétmenn kröfðust þess, sem
kunnugt er, að frekari rannsóknir
Bandaríkjamanna á svokallaðri
stjömustríðsáætlun yrðu eingöngu
bundnar við tilraunir í rannsóknar-
stofum en á það gat Reagan forseti
ekki fallist.
Þýðingarmestu spuminguna telja
margir þá hvort bandarísk stjóm-
völd hafi skýrt nægilega greinilega
frá því hvemig geimvamaráætlunin
á að virka sem allsheijarvöm fyrir
Bandaríkin og bandamenn þeirra í
veröld án kjamorkuvopna, í veröld
þar sem Sovétmenn hefðu yfirburði
á sviði hefðbundins vopnabúnaðar.
George Shultz utanríkisráðherra
reyndi að svara nokkrum þessara
spuminga í nýlegu viðtali í stór-
blaðinu New York Times en viðtalið
var algerlega helgað leiðtogafundin-
um í Reykjavík.
Shultz og fleiri bandarískir emb-
ættismenn hafa eytt þeim dögum er
liðnir em frá Reykjavíkurfundinum
í það áð reyna að fé almenning til
að leggjast á sveif með þeirri afstöðu
er Reagan tók í Reykjavík og um-
deild er orðin. Shultz sagði í upphafi
að niðurstaða Reykjavíkurfúndarins
væri mikil vonbrigði en er leið á
vikuna fór tónn utanríkisráðherrans
að mildast og á miðvikudag var haft
eftir Shultz að ýmsar mikilsverðar
vonir hefðu vaknað í Reykjavík og
þar hefðu aðilamir tveir í fyrsta
skipti orðið sammála um mikinn
samdrátt í fjöida kjamavopna.
Nú hafa stórveldin á nýjan leik
hafið reglulegar afvopnunarviðræð-
ur sínar í Genf og haft var eftir
talsmanni bandarísku sendinefndar-
innar í gærmorgun að fundurinn í
Reykjavík væri nú á óvæntan hátt
orðinn ákaflega árangursríkur og
væri jákvætt skref í átt til afvopnun-
ar.
Shultz utanrikisráðherra og bandarískir embættismenn hafa í vikunni lagt
á það gífurlega áherslu að kynna afstöðu Reagans í Reykjavik er ágreining-
ur um stjömustriðsáætlun Bandaríkjanna gerði samningaumleitanir stór-
veldanna að engu. Á myndinni sést utanrikisráðherrann á meðal
samstarfsmanna sinna í aðalstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brussel í
byrjun vikunnar er hann kynnti gang íslandsviðræðnanna fyrir bandamönn-
um Bandaríkjanna i Atlantshafsbandalaginu.