Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Síða 15
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986. 15 Sameinumst um unglingageðdeild Kiwanishreyfingin á íslandi stend- ur fyrir fjársöfnun laugardaginn 18. október næstkomandi undir kjör- orðinu „Gleymum ekki geðsjúkum". Kiwainsmenn munu þá bjóða „K- lykilinn" til sölu á hveiju heimili í landinu. Skorað er á alla að taka vel á móti þeim og láta eitthvað af hendi rakna, en söfaunarfénu verður varið til styrktar unglingageðdeild. Ákvörðun hefur verið tekin um að stofiia unglingageðdeild í tengslum við geðdeild Landspítala og er ætl- unin að sú deild hefji starfsemi sína um næstu áramót. Nokkrar umræð- ur hafa farið fram á Alþingi á síðustu árum um geðheilbrigðismál og hafa þær umræður ekki síst snúist um geðræn vandamál bama og ungl- inga, þar með talin vandamál þeirra unglinga sem eiga við áfengis- og fíkniefhavandamál að stríða. Ljóst er að stuðningur er vio það í öllum þingflokkum að átak verði gert í þessum málum og er ánægjulegt að sjá að nú er stutt í það að unglinga- geðdeild taki til starfa. Því er ekki úr vegi nú að kanna hvaða aðilar og stofhanir sinna nú þessum vanda- málum unglinga. Þessi grein á ekki að vera tæmandi yfirlit, í henni er fyrst og ff emst stuðst við ársskýrslur þeirra stófnana sem fjallað er um. í lögum um vemd bama og ungl- inga ffá 1966 em ákvæði um að bamavemdamefndir geti falið öðr- um en foreldrum eða forráðamönn- um umsjá bama eða ungmennis ef ákveðnum atriðum í uppeldi eða aðbúnaði er ekki sinnt að mati bamavemdamefndar. Einnig em ákvæði um að bamavemdamefnd geti látið taka bamið af heimilinu og fá því góðan samastað ó heimili til umsjár eða á vistheimili eða upp- eldisstofnun, ef bamavemdarnefhd kemst að því að hegðun bamsins sé ábótavant - sem nánar er tiltekið í lögunum. Átt er við unglinga innan við 16 ára aldur. Unglingaheimili ríkisins Á grundvelli fyrmefndra laga hef- ur Unglingaheimili ríkisins starfað um árabil. Unglingaheimilið heyrir undir menntamálaráðuneytið og skipar menntamálaráðherra þriggja manna stjómamefhd en forstöðu- maður stýrir daglegum rekstri. Auk hans vinna tveir sálffæðingar í fullu starfi, tveir félagsróðgjafar í hálfu starfi svo og fimmtán uppeldisfull- trúar. Þess utan starfa þrír kennarar við skóla Unglingaheimilisins. Unglingaheimilið skiptist í eftirtald- ar deildir: KjáHaiinn Tómas Zoega geðlæknir 1. Unglingaráðgjöf. 2. Skammtíma- og rannsóknar- deild. 3. Uppeldisdeildir. Unglingaheimilið rekur einnig sambýli að Sólheimum 17 en þar búa hjón sem stýra rekstrinum. Þar dvelja allt að fimm unglingar í 2-3 ár. Sambýlið er heimili fyrir unglinga sem af einhveijum ástæðum geta ekki búið hjá for- eldrum sínum eða forráðamönn- um. í vaxandi mæli hefur verið reynt að vinna með foreldrum og forráðamönnum ungling- anna. Torfastaðir Tvær fjölskyldur reka heimili sem sjálfseignarstofiiun að Torfastöðum í Biskupstungum og taka sex ungl- inga í senn. Þetta heimili er styrkt beint af menntamálaráðuneytinu en vistim unglinga þangað er í samráði við Unglingaheimili ríkisins og heimilið starfar undir stjóm stjóm- amefndar Unglingaheimilis ríkisins. Hægt er að vista um 25 unglinga í einu á hinum ýmsu deildum Ungl- ingaheimilis ríkisins. Á árinu 1985 fékkst heimild hjá menntamálaráðu- neytinu til þess að ráðuneytið veitti fjárhagsaðstoð þeim sem vildu taka unglinga í vandræðum inn á eigið heimili. Á síðustu árum hefur verið ljóst að Unglingaheimilið ræður mjög illa við þá unglinga sem eiga við alvarleg áfengis- og fíkniefha- vandamál að stríða. Hér er um að ræða fáa unglinga þar sem stúlkur virðast vera í meirihluta, en ljóst er að heilbrigðis- og félagslegar að- stæður þessara unglinga em oft þannig að til langrar vistunar þarf að grípa ef von á að vera um ein- hvem árangur. Skóli Unglingaheimilisins Við Unglingaheimilið starfa þrír kennarar í fuilu starfi. Síðastliðið skólaór fékkst húsnæði í kjallara Vogaskóla og á sl. vetri vom þar sjö til tíu nemendur. Um er að ræða nemendur sem flestir hverjir hafa orðið utanveltu í venjulegu skóla- starfi, unglinga sem eiga við margvísleg vandamál að stríða og hafa ekki getað gengið í venjulegan gmnnskóla. Því miður fékkst ekki leyfi til að nota húsnæðið í Voga- skóla áfram og er verið að leita að húsnæði fyrir skólann þannig að skólastarf geti hafist með eðlilegum hætti ó haustmisseri. Starfsemi á vegum sveitarfé- Ipga og annarra Útideíld. Útideild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur hóf starfsemi sína sumarið 1976 og var tilefnið augljós þörf unglinga fyrir meiri og annars konar þjónustu en í boði var. Úti- deild var stofhuð fyrir tilstilli samstarsnefiidar félagsmálaráðs, æskulýðsráðs og fræðsluráðs Reykjavíkur. í byrjun var starf Úti- deildar miðað við unglinga sem búsettir vom í Breiðholti III. Góð reynsla reyndist af starfinu og fór starfið vaxandi og síðan 1979 hefur það heyrt undir Félagsmálaráð Reykjavíkurborgar og tilheyrir Úti- deild nú unglingadeild sem aftur er hluti af fjölskyldudeild Félagsmála- stofhunar. Stefnt er að því að vinna með þá unglinga sem þurfa á aðstoð að halda og enginn annar sinnir. Unglingadeild var stofhuð með það fyrir augum að samhæfa starf þeirra er vinna með unglinga á vegum Reykjavíkurborgar og auka ábyrgð og festu í þeim málum er varða ungl- inga. Nokkuð tíðar mannabreyting- ar hafa verið hjá starfsfólki Útideildar og fyrir liggur beiðni um að fó að ráða fagfólk við deildina. Útideild hefur afskipti af 8-9 nýjum unglingum í mánuði hverjum. Rúm- lega tvö hundmð afskipti alls í mónuði en ekki liggur fyrir hve mörgum einstaklingum Útideild sinnir þar sem sumir njóta aðstoðar mjög oft í mánuði hverjum. Á vegum Félagsmálastofhunar Reykjavíkur er rekið sambýli fyrir sex unglinga að Búðargerði 9. Þeir em í vinnu eða skóla að degi til, en ó kvöldin og nóttunni er í húsinu gæsla. Rauðakrosshúsið að Tjarnagötu 35 Hinn 14. desember 1985 opnaði Rauði kross íslands neyðarathvarf fyrir unglinga að Tjamargötu 35. Þar er sólarhringsþjónusta, hugsuð sem fyrsta hjálp fyrir unglinga sem eiga í vandræðum. Þeim er gefinn kostur á að ræða mólin og höfð er milliganga um frekari hjálp sem þörf er á. Á fyrstu fimm og hálfa mánuð- inum, sem starfsemin fór fram, var heildarfjöldi einstaklinga, er leituðu þangað, 73. Þar af fengu 38 ungling- anna næturgistingu og hafa stúlkur verið í miklum meirihluta. Komur tengjast oft skemmtunum og áfeng- isneyslu. Athygli vekur að einungis fimmtungur unglinganna býr hjá báðum foreldrum. Nærri jafnmargir eru heimilislausir og á flækingi. Flestir þeirra dvelja stutt, meirihlut- inn aðeins einn sólarhring. Rauði krossinn hefur ákveðið að reka neyðarathvarfið a.m.k. út þetta ár, reyna að meta þörf starfseminnar og taka ákvarðanir um framhald rekstursins síðar. Sáifræðideild skóla Innan Fræðsluskrifstofu Reykjavík- ur starfa sálfræðideildir skóla, sem skiptast í 3 deildir og starfa þrír sál- fræðingar og 1-2 félagsráðgjafar í hverri deild. Unnið er með einstökum bömum og unglingum ef upp koma vandamál er tengjast námi og hegðun í skólan- um. Oft er um að ræða veruleg félagsleg vandamál og stundum eiga ungmennin við geðræna erfiðleika að stríða. Leitast er við að hafa sem nánasta samvinnu við kennara, skólastjóra og forráðamenn ungling- anna og oft dugir það til að leysa vandann en stundum þarf að vísa á aðra aðila. Við nokkra skóla em svokölluð at- hvörf þar sem böm og unglingar, sem eiga í erfiðleikum og/eða búa við slæmar aðstæður, geta verið ut- an skólatíma. Dagdeildir og heimilið að Kleifar- vegi 15 em aðallsga notuð fyrir böm upp að 12 aldri, sem eiga við hina ýmsu erfiðleika að stríða. Niðurlag Til viðbótar við þá aðila, sem hér em taldir upp að framan, hafa ungl- ingar leitað sér hjálpar á bamageð- deild Bamaspítala Hringsins þar sem þeir hafa fengið göngudeildar- þjónustu. Einnig hafa unglingar fengið göngudeildaraðstoð á öðrum göngudeildum geðdeilda spítalanna. Oft á tíðum hefur þurft að leggja unglinga inn á fullorðinsgeðdeildir og oft em unglingar lagðir inn á ófengisdeild geðdeildar Landspítala og hjá SÁÁ. Unglingar hafa auk þess fengið aðstoð á einkastofum geðlækna og sálfræðinga. Greinilegt er að hinir ýmsu aðilar em oft að fást við sömu unglingana, jafnvel á sama tíma. Ekki er því hægt að gera sér grein fyrir hve stór sá hópur er sem á í vemlegum vand- ræðum. Rannsóknir hafa verið af skomum skammti og verður litið til unglingageðdeildar um að hafa for- ystu á því sviði. Ljóst er að margir aðilar vinna gott og þarft starf í þágu unglinga en samræming á störfum þessara aðila er fremur lítil þótt þeir leitist við að hafa sem besta samvinnu sín á milli. Enginn þessara staða er í raun í stakk búinn til að takast á við vandamál veikustu unglinganna, bæði þeirra sem eiga við alvarlegar geðtruflanir og þeirra sem eiga við mikil vandamál vegna neyslu áfeng- is og annarra vímueína að stríða. Því er að gleðiefhi að unglingageð- deild, bæði legudeild og göngudeild, tekur senn til starfa. Unglingageðdeild verður leiðandi aíl en brýn nauðsyn er á því að þeir aðilar, sem sinna unglingum og vandamálum þeirra, hafi með sér sem nánast samstarf, m.a. af þvi að hugmyndafræði meðferðaraðila er oft töluvert mismunandi, en það get- ur stundum komið af stað óheil- brigðri samkeppni milli stofnana sem getur komið niður á þjónustu við einstaklingana. Tómas Zoega. „Unglingageðdeild verður leiðandi afl en brýn nauðsyn er á því að þeir aðilar, sem sinna unglingum og vandamálum þeirra, hafi með sér sem nánast samstarf...“ Hvemig framtíð? I dæminu, sem stjómmálaflokkar framtíðar þurfa að reikna, eru m.a. þessir liðir: ★ Fjölmörg íslensk ungmenni bíða þess nú að setja sín fyrstu um- merki ó stjómmálin. Vegna lækkunar kosningaaldurs og stórra árganga munu líklega tutt- ugu þúsund ungir kjósendur taka í fyrsta sinn þótt í alþingiskosn- ingum á næsta ári. Þeir munu hafa afgerandi áhrif á mótun þessa samfélags fram ó næstu öld. ★ Úti um allt land em þúsundir fólks tilbúnar til að gera róttækar breytingar á stjómkerfi og að- ferðum þjóðfélagsins. Þetta fólk unir ekki valdaleysi sínu. Allar mikilvægustu ákvarðanimar um lífsbjörg þess em teknar víðs §arri heimahögum. Hugmyndir um þjóðfund og fylkjaskipan hafa á 3 árum öðlast nýtt líf og nýjan þunga. Aðferðir síðustu ára í sjáv- arútvegi og landbúnaði hafa opnað augu fólksins fyrir þvi að hér ríkir meiri miðstýring en á nokkm þeirra Vesturlanda sem við höfum til viðmiðunar í lífs- kjörum. í hvert skipti, sem lýst er yfir aukafjárveitingum til að rétta hag frystihúsa eða tilkynnt er um aukið fé til niðurgreiðslna Kjallarinn Guðmundur Einarsson alþingismaður á landbúnaðarvörum, er þessi fár- ánlega miðstýring að bíða ósigur. Fólkið í landinu er að bíða ósigur gegn forsjárhyggjunni. ★ Ibúar Suðvesturlandsins una því ekki lengur að hafa skert atkvæði til alþingiskosninga. Sjálfevirð- ingunni er misboðið með því að hver og einn þeirra hefur minni áhrif á samsetningu löggjafiir- samkomunnar heldur en fólk sem hefur aðra búsetu. Fólkið kýs þingmennina en fjöllin gera það ekki. Menn munu aldrei ná sam- komulagi og sóttum um byggð í landinu með því að beita ofbeldi ójafns atkvæðisréttar. Finnum samnefnarann Svörin við öllum þessum spuming- um verða að tengjast saman. Stjómmál unga fólksins verða að byggjast á jöfrium atkvæðisrétti og sjálfsstjóm hvar sem það býr. „Til að finna áttirnar og komast að niður- stöðu um stefnuna þarf stjórnmálasamtök nýrrar gerðar. Þau þurfa að vera víðsýn, umburðarlynd og kreddulaus.“ I efnahagsmálum þéttbýlis og dreifðrar byggðar verður fólk að ráða sér sjálft. Einstaklingurinn mun gera kröfur til þess að hafa úrslitaáhrif á verðlagningu vinnu sinnar, vöm og þjónustu. Hann mun gera kröfur til þess að embættismenn heima- og landstjómar minnist þjón- ustuhlutverks síns og stígi úr stóli herravaldsins. Okkur hefur verið tamt að ímynda okkur árið 2000 í órafjarlægð. En það er skammt undan. Börnin, sem fæðast í vor, mtrnu fermast um alda- mót. Þeir sem kjósa í fyrsta sinn í vor munu verða athafhamenn og leiðtogar fyrri hluta næstu aldar. Til að finna áttimar og komast að niðurstöðu um stefnuna þarf stjóm- málasamtök nýrrar gerðar. Þau þurfa að vera víðsýn, umburðar- lynd og kreddulaus. Þau þurfa að geta sameinað fólk í stað þess að sundra því. Þau verða að leita breiðrar samstöðu í stað þess að loka sig í homum ofsafenginnar sérstöðu. Þau þurfa að leita samnefnarans. I upphafi greinarinnar var því lýst að stjómmálaflokkur framtiðarinn- ar þurfi að gera sér grein fyrir þrem meginstraumum í þjóðlífinu, þ.e. kröfum um nútímalega stjómmála- stefhu, sjálfsstjóm á heimaslóð og jöfriun atkvæðisréttar. í Alþýðuflokknum gera menn nú djarfa tilraun til að finna þessum þungu straumum sameiginlegan far- veg. Guðmundur Einarsson. „Aðferðir síðustu ára i sjávarútvegi og landbúnaði hafa opnað augu fólks- ins fyrir því að hér ríkir meiri miðstýring en á nokkru þeirra Vesturlanda sem við höfum til viðmiðunar í lífskjörum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.