Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986. Fréttamenn koma Sovétáróðrinum fram Vilhjálmur Pétursson hringdi: Ég vil lýsa ánægju minni yfir dag- skrárbreytingu sjónvarpsins og breyttum sýningartíma þess. Þetta er allt annað og nú nýtist kvöldið mun betur og verður meira úr því öllu. Samkeppnin við Stöð 2 heíur strax sett svip sinn á dagskrá sjónvarpsins (stöð 1) og margar góðar breytingar leitt af sér. Ég er persónulega mjög ánægður með báðar sjónvarpsstöðvamar, af- ruglara hef ég þegar keypt mér og finnst Stöð 2 lofa góðu. Staðreyndin er sú að það er mun betra að hafa tvær sjónvarpstöðvar því þær bæta hvor aðra upp. Það sem eina stöðina vantar er hægt að sjá á hinni, eða við höfum núna alla vega valkosti hvað við viljum horfa á. Til dæmis finnst mér mjög gott og þarft framtak hjá stöð 1 að sýna fræðsluþætti og Bjami er alltaf bestur í íþróttalýsingunum, einnig finnst mér fréttir og umræðu- þættir þar mjög góðir. Aftur á móti finnst mér stöð 1 ekki hafa roð í Stöð 2 hvað varðar skemmtiþætti eða létt afþreyingarefhi. Sem sagt, ég er mjög ánægður með að núna skuli vera samkeppni milli sjónvarpsstöðva því þá er hægt að gera meiri kröfur til þeirra. er vandi með óþægilegar staðreynd- ir. En þeim tókst ekki að stinga þessari fregn undir stól því að fréttin barst að utan - frá Svíþjóð og Vest- ur-Þýskalandi og raunar fleiri löndum. En sem sagt fyrmefndur fi-éttamaður „bilaði ekki í Chemo- byl“. Nú brá svo við í sambandi við leið- togafundinn að Rússar töldu sig hafa aðstöðu til að koma áróðri sín- um á framfæri um heimsbyggðina á þægilegan máta með skriflegri ræðu við komuna til Islands og heimsókn konu leiðtoga þeirra. Hvort tveggja töldu fróðir menn vera brot á eins konar óskráðu samkomulagi við undirbúning fundarins. En hvað er um að tala að því er varðar „gentle- man’s agreement" á þeim bæ? Og fjöldi fréttamanna taldi að látið hefði verið leka til vissra aðila í tæka tíð varðandi þær flugelda- og skraut- sýningar. En broslegt var það i meira lagi er fréttamenn ríkisfjölmiðlanna töldu sig vinna mikla sigra í frétta- kapphlaupinu en virtust alls ekki átta sig á því að þeir vom einfald- lega notaðir til þess að koma Sovétáróðrinum á framfæri. Spumingin Lesendur Samkeppni sjónvarpsstöðva kemur sér vel „Betri skemmtiþættir og afþreyingarefni á Stöð 2.“ Hvernig finnst þér ríkis- stjórnin hafa staðið sig? Anna Steingrímsdóttir: Frekar vel það sem af er kjörtímabilinu, tel ég okkur til dæmis hafa mjög góðan lífs- standard nú. „Þreytandi framburður hjá Eddu.“ Sendið Eddu á lestramámskeið Sjónvarpsáhorfandi skrifar: Það er alveg makalaust hvað frótta- þulan Edda Andrésdóttir hefur sér- stakan framburð, það er eins og hún sé sífellt að bæta inn sérhljóðum fyrir framan orðin þannig að hún segir t.d. ekki „verður“ heldur „everður". Það mætti nefiia fleiri dæmi, en mér hefur fundist að hún setji þetta „e“ sitt fyrir framan orð sem byrja á samhljóða. Til lengdar er þetta ákaflega þreyt- andi og vildi ég óska þess að þulan yrði sett á iestramámskeið og reynt að venja hana af þessum ósið. Annars finnst mér sjónvarpsfréttim- ar hafa verið ágætar og fréttastofan staðið sig nokkuð vel að undanfömu og held ég að RÚV þurfi ekki að ótt- ast svo mjög samkeppni frá Stöð 2 til að byrja með. Sveinn Sveinsson skrifar: Eins og frægt varð skar einn fréttaskýrandi sig úr varðandi kjamorkuslysið í Chemobyl. Sá var auðvitað starfsmaður íslenska sjón- varpsins sem einn fréttamanna í öllum hinum vestræna heimi ræddi um - fijálslyndi - Sovétmanna í því „Rússar höfðu góða aðstöðu til að koma áróöri sínum fram.“ Halla Eggertsdóttir: Mér finnst hún hafa staðið sig hörmulega og þá sér- staklega í launamálum og á ég þá einkum við launamál kvenna. sambandi. Þótti flestum sem stungin væri tólgin í meira lagi þar að lút- andi þar sem Rússar höfðu reynt að þegja fregnina í hel eins og þeirra Eggert Kristinsson: Nokkuð vel, er ég sérstaklega ánægður með hvað þeir hafa keyrt verðbólguna niður og að vextirnir hafa lækkað. Það er þó ýmislegt sem þeir eiga eftir að gera sem þeir lofuðu og vona ég að þeir efni það. Ingibjörg Björnsdóttir: Bara nokkuð vel að mér finnst. Anna Einarsdóttir: Svona sæmilega, en það verður ekki meira sagt en það, mér finnst þeir mega gera meira fyrir fullorðna fólkið, einnig er ég mjög óhress með það ef þeir ætla fara hækka olíuna aftur. Ágúst Magnússon: Ríkistjórnin hef- ur staðið sig sæmilega þegar á heildina er litið. Mér líst samt mjög illa á hækkun olíunnar og tel að það leiði ekki gott af sér. HRINGIÐ í SÍIVIA 27022 IVHLLIKL. 13 OG 15 EÐA SKRIFIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.