Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Side 32
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986. 44 Sviðsljós Ólyginn sagði... Bob Dylan hefur mjög sérstæðan smekk - svo ekki sé meira sagt - og gengur á stundum gersamlega yfir hans nánustu. Bob skrapp inn í gjafabúð á dögunum sem ekki er í frásögur færandi. Þar inni eyddi hann hins vegar fimm mínútum og sjötíu og fimm þúsund krónum og kom út með lúffur sem ekki einu sinni amma hans hefði látið sjá sig með utan dyra - og þrjár hryllingsgrímur úr gúmmíi. Hver fékk svo her- legheitin fylgir ekki sögunni. 3 Dennis Weaver fer ekki ofan af því að jarðarþú- ar fái reglulegar heimsóknir frá öðrum hnöttum. Sjálfur hafi hann hitt einn gestanna. Því vinnur hann ötullega að rann- sóknum á FFH - fljúgandi furðuhlutum - og er sannfærður um að fyrr eða síðar verði mál hans sannað. Dennis þessi er einkum þekktur sem löggan McCloud úr sjónvarpinu og hefur svo vitað sé aldrei gengið með gleraugu. Margrét prinsessa er tekin og dáleidd með reglu- legu millibili. Allt er þetta gert með samþykki prinsessunnar sjálfrar því læknar hafa fyrir löngu skipað henni að hætta að reykja og drekka. Hún vill hvorugt missa en til þess að sýna einhvern lit er dáleiðari lát- inn vafstra við að eyða úr kerlu tóbakslönguninni. Nú reykir Magga ekki nema sex rettur á degi hverjum - en róar taugarn- ar með einum laufléttum inn á milli. Á bökkum voru íslenskar kræsingar og hér er einn framreiðslumanna að freista Sigurðar Ágústs Jenssonar og Hjörleifs Kvaran. DV-myndir KAE Klæðnaður i kokkteilnum var með fjölbreyttara móti enda margir útlend- inganna með fátt fatakyns í farangrinum - og jafnvel að koma beint úr volkinu fyrir utan Höfða. Mary Lou langar að fara að lifa lifinu. Mary Lou Retton er hætt keppni Fimleikadrottningin Mary Lou Retton hyggur nú á enskunám við háskólann í Texas. Hún ætlar jafn- framt að taka sér stöðu í klappliðinu sem fylgir fótboltaliði skólans. í því leikur kærastinn hennar. Máry Lou, sem nú er 18 ára göm- ul, hefur og tilkynnt að hún ætli að draga úr stöðugum fimleikaæfingum. Undanfarin ár hefur hún fátt annað haft fyrir stafni. Hún segist ætla að fara lifa sama lífi og langflestir jafn- aldrar hennar og rjúfa þá einangrun sem æfingunum fylgir. Samt sem áður hefur hún ekki sagt skilið við iþróttirnar. Hún ætlar að halda áfram að koma fram opinber- lega og sýna fimleika þótt trúlega verði ekki um fleiri keppnir að ræða. Þá hefur hún góða von um að verða kynnir á vegum NBC-sjónvarps- stöðvarinnar á ólympíuleikunum í Seoul árið 1988. Retton segir að hún hafi orðið að hætta venjulegu námi 12 ára gömul vegna fimleikanna. Nú sé kominn tími til að vinna upp allt það sem hún hefur orðið að neita sér um síð- an. „Pakkaðu niður, væni“ Leikkonan Heather Thomas kom á bleiku skýi frá tökum myndar- innar Death Stone á Sri Lanka - og byrjaði á því að segja eigin- manninum að pakka niður í snatri og láta sig endanlega hverfa. Hvað hann og gerði án tafar. Örfáum dögum síðar stóð annar maður á tröppunum með töskur, pinkla og pjönkur og fiutti inn til þess að fylla hið auða rúm eigin- mannsins. Þetta var þýski poppar- inn Christian Anders sem hún hafði fallið fyrir við upptökurnar í Indlandshafi. Eiginmaðurinn, Allan Rosenthal, er sálfræðingur og ráðgjafi á með- ferðarstofnun fyrir vímuefnasjúkl- inga. Þau hjónin kynntust þegar Heather leitaði hjálpar vegna eit- urlyfjaneyslu og giftu sig eftir aðeins tveggja mánaða kynni. Skömmu síðar fóru að koma brestir í sambandið og í Sri Lanka ferðinni virðist Heather hreinlega hafa tek- ið málin í sínar hendur. „Ég elska Christian og ætla að giftast honum. Hann er einmitt sú manngerð sem maður velur sér að barnsföður, segir leikkonan hverj- um sem heyra vill.“ Lítið hefur heyrst frá popparan- um um málið, nema helst lágvært taut um að fyrst verði konan að sækja um skilnað og ljúka fyrra hjónabandi. Vinir beggja segjast vona að þetta samband nái því að verða til frambúðar því bæði þurfi þau nauðsynlega á stuðningi að halda. Hver skal styðja hvern er' ekki á hreinu og hefur ekki flogið fyrir ennþá. Heather með nýju ástinni sinni - popparanum Christian Anders.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.