Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1986, Page 33
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986.
45
menn
fagna
Leiðtogahelgin er liðin og víst er
að margir varpa öndinni léttar -
fegnir hvíldinni. Sú stétt manna,
sem einna stærsta bauga hafði und-
ir augum þegar leiðtogarallið stóð
sem hæst, eru fréttamenn. Ekki var
laust við að þreytumerki sæjust á
mönnum í kokkteilboði borgar-
stjóra að Kjarvalsstöðum að kvöldi
sunnudagsins.
Þar mættu einnig fulltrúar ann-
arra stétta sem ekki höfðu heldur
átt náðuga daga og var mál manna
að ekki væri mikið verra að atið
væri að mestu yfirstaðið - þótt
varla leiddist þeim að standa mitt
í hita leiksins. Erlendir fjölmiðla-
menn voru svo óðum að tygja sig
til brottfarar þótt allmargir gæfu
sér tíma til þess að koma við í veisl-
unni.
Eftir stendur minningin um frem-
ur ótrúlega helgardaga og stað-
reyndir eins og að húllumhæið er
íslandi hálfra fjárlaga virði í um-
fjöllun erlendra fjölmiðla - sam-
kvæmt niðurstöðum helstu
sérfræðinga í auglýsingum. Engin
skiptimynt úr þeirri áttinni því töl-
urnar hljóða upp á eina tuttugu
milljarða íslenskra króna!
Davíð Oddsson borgarstjóri var gestgjafinn á staðnum Fulltrúar ráðuneyta, borgarinnar, hinna ýmsu framleið-
og blandaði geði jafnt við heimamenn og aðkomna. enda og seljenda mættu samviskusamlega til teitis -
Blaðafulltrúi sjálfrar ríkisstjórnarinnar hefur varla átt Gamalkunn andlit úr fjölmiðlum - Pétur Sveinbjarnar-
náðuga helgi fremur en aðrir. Magnús Torfi Ólafsson son og Árni Bergmann.
gaf sér samt tima til að spjalla við Ævar Kjartansson.
Hluti duglegra og vaskra blaðbera DV á Akureyri í Lautinni á dögunum. Liðið nýbúið með hamborgarana. Og það megið þið vita: þetta er snaggaralegt lið!
DV-mynd JGH
DV-blaðberar fá sér borgara
Jón G.Hauksson, DV, Akureyri:
DV hefur á að skipa duglegum og
vöskum blaðberum á Akureyri sem
annars staðar. Nýlega var fjölgað í
liðinu sem ekur DV-bunkunum til
blaðberanna sem að sjálfsögðu láta
sitt ekki eftir liggja og koma blaðinu
fljótt og örugglega til lesenda sinna.
í nógu hefur verið að snúast hjá
blaðberunum að undanförnu og þeir
staðið í ströngu. Þeir brugðu sér því
í Lautina á dögunum og brögðuðu á
hamborgurum, kakói með rjóma,
flatkökum með hangikjöti - og öllu
hinu líka.
Það leyndi sér ekki - þetta er
snaggaralegt lið, hvarvetna og
hvernig sem á stendur.
Sviðsljós
Ólyginn
Frank Sinatra
hefur ekki fengið yngingarsp-
rautur að eigin sögn - og hefur
meira að segja bréf upp á
ósköpin. Amerískur dómstóll
felldi þennan stórmerka dóm og
jafnframt að svissneskt heilsu-
hæli skyldi greiða söngvaranum
hundrað og tuttugu milljónir
króna í skaðabætur fyrir að hafa
notað nafn hans í auglýsinga-
skyni fyrir slíkan töfrakúr á þeirra
snærum.
Linda Gray
á til sínar góður hliðar og sýnir
þegar henni hentar. Hún bauð
hundrað og fimmtiu þúsund
krónur fyrir leikfang á uppboði •
- og gaf það nærstaddri smá-
stelpu á staðnum. Barnið hafði
staðið og sagt að þetta vildi það
eignast framar öllu í lífinu en
faðir hennar gat ekki boðið
hærra en sextán þúsund krónur.
Tommy Steel
segist lifa á grænmeti, leika squ-
ash og hlaupa í tvo til þrjá
klukkutima á degi hverjum.
Þetta er eflaust lykillinn að því
að söngvarinn virðist nákvæm-
lega eins í útliti ennþá og hann
var þegar stjarna hans skein sem
skærast. Lesendum til glöggv-
unar skal það tekið fram að liðin
eru lítil þrjátíu ár síðan þannig
að sá strákslegi Steel verður
fimmtugur í desember.
Tina Turner
ætlar að vera í sviðsljósinu i þrjú
ár ennþá og er svo sest endan-
lega í helgan stein. Ein kvik-
mynd og ein hljómleikaferð og
þá hef ég nægilegt handa á
milli til þess að sjá fyrir fjölskyl-
dunni fram að fimmtugu!