Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
Fréttir
Sjúkrahús Keflavíkur:
Þvotturínn var
fímmfalt dýrari
Eins og kunnugt er áf fréttum DV
er komið upp viðamikið fjársvikamál
við sjúkrahúsið í Keflavík en þar
mun Þvottahús Keflavíkur hafa fals-
að nótur fyrir þjónustu sína undan-
farin ár og náð þannig milljónum
króna af sjúkrahúsinu.
Græna Ijósið lét
á sér standa
Einn af Fokkerum Flugleiða
lenti í erfiðleikum í aðflugi að
Reykjavíkurflugvelli er Ijós í
mælaborði vélarinnar gaf til
kynna að nefhjól hennar hefði ekki
gengið niður. Af þeim sökum var
vélinni beint til Keflavíkurflug-
vallar þar sem fullur viðbúnaöur
var hat'ður fynr lendingu. í lend-
ingunni gekk allt eðlilega fyrir sig
og sýndi mæiaborðið grænt ljós á
nefhjólið er véiin snerti brautina.
Ástæður þess að Ijósið kviknaði
ekki yfir Reykjavík voru þær að
hnappur í hjólabúnaði, sem átti að
gefa merkið, var frosinn fastur.
-FRI
Gandi með
nótina í
skrúfanni
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúösfiröi:
Höfrungur ii GK kom fyrir helgi
með Ganda frá Vestmannaeyjum í
togi til Fáskrúðsfjarðar. Hafði
Gandi fengið hluta síldamótarinn-
ar í skrúfuna er hann var að
síldveiðum utan við Eyri í Fá-
skrúðsfirði.
Froskkafari var fenginn til að
skera úr skrúfunni. Gandi hefur
fengið um 300 torrn af síld-það sem
af ér þessari vertíð.
Rukkunarhefti
DVtapaðist
Ungur drengur varð fyrir því
óláni að tapa DV-rukkunarhefti
með ca 6-700 krónum í Suður-
hlíðahverfi. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa samband í
síma 30757 eða við áskriftardeild
DV, sími 27022. Fundarlaun.
I nýútkomnum Víkurfféttum er
fiallað um þetta mál og þar er sagt
að er verðið á þjónustu þvottahúsins
var kannað hafí komið í ljós að
sjúkrahúsið borgaði fimmfalt verð á
hvem legudag miðað við sjúkrahú-
sið á Akranesi.
„Málið er leyst, stjóm Landhelgis-
gæslunnar og stjóm Sjómannafélags
Reykjavíkur fóm í sameiningu yfir
málin í gær og það verður gert upp
við umbjóðendur okkar eins og við
kröfðumst." sagði Guðmundur Hall-
varðsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur í samtali við DV í morg-
un.
Sjómannafélag Reykjavíkur sendi í
fyrradag skeyti til forstjóra Land-
Stjóm sjúkrahússins verst allra
frétta af málinu enda hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hvemig
stjómin hyggst snúa sér í því. Fyrir
nokkrum árum mun svipað hafa
komið upp og fékk þvottahúsið þá
áminningu fyrir of háa reikninga.
helgisgæslunnar þar sem tilkynnt var
að undirmenn á varðskipinu Tý fæm
ekki út með skipinu né mundu gegna
störfum fyrr en fullnaðaruppgjör færi
fram fyrir störf þeirra í október.
Að sögn Guðmundar stóð deilan um
það að undirmenn á Tý og Óðni fengu
ekki greidda þá yfirvinnu sem þeim
bar fyrir störf í kringum leiðtogafund-
inn .
Gunnar Bergsteinsson, forstjóri
Sjúkrahúsið hefur nú hætt við-
skiptum við þvottahúsið og var
þvottur frá því í gær sendur til
Reykjavíkur.
-FRI
Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali
við DV að undirmenn hefðu fengið
hluta yfirvinnunnar frá því í október
greidda strax en sumt væri ekki kom-
ið til uppgjörs. „Það kom mér mjög á
óvart að fá skeytið frá Sjómannafélag-
inu þar sem ég taldi að samningavið-
ræður stæðu yfir. “ sagði Gunnar.
-SJ
Verkalýðsleiðtogar:
Var
nettað um
vegabréfs-
árttun
til Suður-
Afríku
,,Við fengum boð frá tveimur
stærstu verkalýðssamtökum
svartra í Suður-Afnku um að
heimsækja landið og það var búið
að skipuleggja ferð fyrir okkur á
tímabilinu 2. til 9. desember og
koma á fundum með helstu for-
ystumönnum svartra í landinu.
Við áttum að hitta fólk eins og
Tutu, Mandela og Boesak en nú
hefur okkur verið neitað imi vega-
bréfsáritun," sagði Ásmundur
Stefánsson, forseti Alþýðusam-
bands íslands, í samtali við DV.
Þeir sem fengu boð um að fara
til landsins, auk Ásmundar, voru
forystumenn verkalýðshreyfingar-
innar á Norðurlöndum, það er að
segja í Noregi, Danmörku, Svíþjóð
og Finnlandi auk íslands.
Ásmundur sagði að umsókn um
vegabréfsáritun hefði verið lögð
inn í sendiráð Suður-Afríku í Sví-
þjóð í ágústmánuði síðastliðnum
og ekkert svar hefði borist fyrr en
nú þótt margsinnis hefði verið leit-
að eftir svari. Sagði Ásmundur
augljóst að stjómvöld ætluðu ekki
að hleypa þeim inn í landið og bjóst
hann ekki við að ósk um endur-
skoðun á þessari neitun myndi
breyta neinu enda þótt sjálfsagt
væri að reyna að fá þessum úr-
skurði hnekkt.
Sagði Ásmundur að tilgangurinn
með þessu boði hefði verið sá að
sýna svörtum íbúum Suður-Afriku
þá samstöðu sem málstað þeirra
væri sýnd á Norðurlöndum og
einnig væri tilgangurinn að leyfa
verkalýðsleiðtogum Norðurlanda
að kynnast málum í Suður-Afríku
af eigin raun og flytja reynslu sína
af ferðinni með heim.
„En stjómvöld í Suður-Afh'ku
vilja hindra þetta hvort tveggja og
reyna að halda samtökum svartra
manna í landinu í einangrun og
má segja að þessi málsmeðferð sýni
Ijóslega hræðsiu stjómvaída þama
við tengsl svartra við erlenda að-
ila. En við látum þetta verða okkur
hvatning til að taka á málum Suð-
ur-Afríku af meiri hörku og ég
treysti því að íslensk stjómvöld
muni taka samskiptin við landið
til endurskoðunar," sagði Ás-
mundur Stefánsson.
-ój
Skipverjar um borð i Tý virða fyrir sér afrit af skeytinu sem sent var til Gunnars Bergsteinssonar, forstjóra Land-
helgisgæslunnar. Þar var honum tilkynnt að þeir muni ekki fara út með skipinu nema fullnaðaruppgjör launa fyrir
októbermánuð hafi farið fram. Málið ieystist síðan daginn eftir að forstjórinn fékk skeytið.
DV-mynd KAE
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Hótaði að stoppa Tý
- náði fram kröfum um endurmat á launagreiðslum fyrir október
Hver „myrti“ Stefán Benediktsson?
Fimmtán hófðu vttneskjuna
„Ég veit ekki við hvem ég er að
berjast þó ég hafi mínar grunsemdir
þar um. Þetta er einfaldlega pólitískt
morð,“ sagði Stefán Benediktsson
alþingismaður í samtali við DV á
miðvikudaginn. Jafriframt lýsti hann
þeirri skoðun sinni að umfjöllun fjöl-
miðla um fjármál sín frá fyrri árum
stæði í beinu sambandi við baráttu
þá sem nú stendur yfir á stjóm-
málasviðinu. Enn sem komið er
hefur enginn viljað gangast við þeim
uppljóstrunum sem leiddu til yfírlýs-
ingar Stefáns um að hann væri
hættur þátttöku í stjómmálum eftir
næstu kosningar.
„Ég hef ekki minnstu hugmynd
um hver stendur hér að baki, það
koma margir til greina," sagði Krist-
ín Kvaran, fyrrum þingmaður BJ og
núverandi sjálfstæðiskona. „Ætli
það hafi ekki verið um 15 manns sem
var kunnugt um þessar lánveitingar
til Stefáns á sínum tíma, þingmenn-
imir, starfmenn BJ og nánustu
stuðningmenn okkar. Ég man að
þetta olli töluverðri ólgu í herbúðum
Bandalags jafnaðarmanna en ég hélt
sannast sagna að málið væri grafið
og gleymt. Það er svo langt um lið-
ið. En svo springur þetta allt í einu
núna.“
Félagi Stefans, Guðmundur Ein-
arsson alþingismaður, sagði í
samtali við DV að hann vildi ekki
ræða þessi mál flokksfélaga síns.
Guðmundi var fullkunnugt um hina
umdeildu meðferð fjár Bandalags
jafnaðarmanna á sínum tíma sem
og öðrum þingmönnum flokksins en
aðhafðist ekkert. Nú stefhir Guð-
mundur í framboð fyrir Alþýðu-
flokkinn á Austurlandi en formaður
flokksins hefur lýst sig samþykkan
ákvörðun Stefáns Benediktssonar
um að draga sig í hlé vegna þessa
máls.
- Er það ekki tvískinnungur að
þegja þunnu hljóði er málið kom upp
en bjóða sig síðan fram í nafni flokks
sem telur athæfi Stefáns ekki sam-
rýmast skyldum þingmanns?
„Ég vil ekkert segja," sagði Guð-
mundur Einarsson.
- Hvers vegna þögðu þingmenn
BJ er ljóst varð hvað gerst hafði?
„Ég segi ekkert."
- Finnst þér ekkert athugavert við
þetta?
„Ég vil ekkert segja,“ sagði Guð-
mundur enn og aftur.
-EIR