Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Side 5
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986. 5 Stjómmál Framsóknarflokkurinn 70 ára: Heitt þing um helgina? Það stendur mikið til hjá Fram- sóknarflokknum. í gærkvöld lagði hann Háskólabíó undir 70 ára af- mælishátíð. í morgun hófst 600 manna flokksþing á Hótel Sögu sem standa mun fram undir kvöld á sunnudag. Fyrir liggja drög að nýrri, ítarlegri stefhuskrá sem vitað er um fyrirfram að muni hita mönnum í hamsi. Þá er ætlunin að breyta lögum flokksins þannig meðal annars að flokksþing verði haldin annað hvert ár i staðinn fyrir á fjögurra ára fresti og að flokksþing kjósi stjóm flokksins í stað 115 manna miðstjórnar. Stefht er að því að þessi breyting gangi í gildi nú á þessu þingi, að sögn Guðmundar Bjamasonar, alþingismanns og ritara flokksins. -HERB Nafnar horfast í augu: framsóknarþingmennirnir Stefán Guðmundsson og Stef- án Valgeirsson. DV-mynd: KAE Undirskrrftasofnunin: ??Karlinn er brattur' Jón G. Hauksson, DV, Akureyit „Ég veit ekki hve margir eru búnir að skrifa undir en þetta gengur vel hér í Norður-Þingeyjarsýslunni," sagði Jóhann A. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri á Þórshöfn, aðspurður um undirskriftalistann þar sem skorað er á Stefán Valgeirsson að fara í sér- framboð. „Karlinn er brattur, hann er ekki vanur að gefast upp,“ sagði annar stuðningsmaður Stefáns Valgeirsson- ar. Undirskriftir á Akureyri hefjast að öllum líkindum um helgina. Sá sem stjómar aðgerðum á Akureyri er Har- aldur M. Sigurðsson en hann var sá fyrsti sem gekk út til Stefáns er hann yfirgaf fúndinn á Hótel Húsavík á sunnudaginn. H^5r 50-PÍ I5Í4-ÍNn/ Þá hefur hún slitið barnsskónum, Lada Samara, og sýnt að hún stend- ur upp úr í hópi framhjóladrifinna bíla. Þar haldast í hendur útlit henn- ar, eiginleikar og kostir. Rúmgóður og öruggur fjölskyldubíll sem er hannaður fyrir aðstæður sem við þekkjum allan ársins hring. Lada Samara, 4ra gíra, kostar aðeins 247 þúsund krónur með ryðvörn. Góð greiðslukjör. Sjálfstæðisþingmenn: Krefja Jón um kartöfluskýrslu Landbúnaðarráðherra, Jón Helgason, situr nú yfir beiðni niu þingmanna Sjálfstæðisflokksins, sem vilja skýrslu um áhrif verð- jöfnunargjalds á kartöflur á verð- lag og þar með kaupgjald hérlendis. Einnig vilja þeir að ráð- herrann nefni dæmi um óeðlilega verðfellingu erlendis á kartöflum og vörum unnum úr þeim. Þingmennirnir, undir forystu Friðriks Sophussonar, vísa til þess að með verðjöfnunargjaldinu frá því 24. júní hafi verið ætlað að jafna samkeppnisaðstöðu inn- lendra framleiðenda gagnvart erlendum, sem talið vár að beittu óeðlilegri verðfellingu. Jafnframt hafi forsætisráðherra sagt að gjaldinu yrði ekki beitt ef það yrði til þess að hækka framfærslu- kostnað heimilanna. Síðan hafi komið í ljós að kart- öflur hafi hækkað um 72% frá júlí til ágúst og valdið 0,31% hækkun framfærsluvísitölunnar. Sú vísi- tala hafi hækkað i ágúst um 1,13% sem var 0,38% fram yfir rauða strikið í síðustu kjarasamningum og þannig hafi komið til sérstakra launahækkana af þessum sökum. Þingmennimir segja að því hafi einnig verið haldið fram að engin óeðlileg verðfelling hafi átt sér stað erlendis. HERB Opið laugardag kl. 10-16. Skiftiborð Verslun 38600 39230 Verkstæði 39760 Söludeild 31236 Bifreiðar & Landbúnaöarvélar hf Suðurlandsbraut 14 rfjl, Fjölbreytt úrval af fallegum gjafavörum. Við útbúum fallegan jólapakka og sjáum um að hann komist til viðtakanda á réttum tíma. ^llafossbúðin VESTURGÖTU 2, SÍMI 13404 Sendum um ailan heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.