Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
Sljómmál
Þingsátyktunartíliaga:
Finnur Ingólfsson um komandi prófkjör framsóknarmanna:
Vilja
úttekt á
skoðana-
könnun-
um hér
á landi
Tveir þingmenn, þeir Halldór
Blöndal og Guðmundur H. Garð-
arsson, leggja til á Alþingi að
menntamálaráðherra láti gera
úttekt á skoðanakönnunum hér
á landi.
Vilja þeir fá vitneskju um það,
hvemig þær standist að gæðum
og hvert forsagnargildi þær hafi.
Þeir leggja áherslu á að íjallað
verði um kannanir um fylgi
stjómmálaflokka og meðferð
þeirra í skólum. Þá vilja þeir fá
svar við því, hvort æskilegt sé
að setja reglur um framkvæmd
og birtingu skoðanakannana.
Þingmennimir vísa til deilna
um framkvæmd og gildi ís-
lenskra skoðanakannana. Þeir
segja slíkar deilur eðlilegar enda
sé nauðsynlegt að geta gert
greinarmun á góðum og lélegum
könnunum.
HERB
Peningamarkaður
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar 8-9 Lb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lta. Vb.Sp
6 mán. uppsögn 95-15.00 Ib
12mán. uppsögn 11-14.5 Úb
18 mán. uppsögn 15.5—16.0 Ib
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað í 3-5 mán. &-13 Ab
Sp. i 6 mán. og m. 9-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3 4 Lta.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 (Ib.Vh
6mán. uppsögn 2.5-4 Úb
Innlán með sérkjörum 8.5-17
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-7 Ab
Sterlingspund 8.75-10 Ab
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskar krónur 7.5-9 Ib.Vb
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv-) 15.25-16. 25 Ib
Viðskiptavixlar(forv.)(1) 19.5 eða kge
Almenn skuldabréf(2) 15.5-18 Úb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hiaupareikningar(yfirdr.) 15.25-18. 00 Úb
Útlán verðtryggð Skuldabréf(2)
Að2.5árum 4-7 Úb
Til lengri tima 5-7 Úb
Utlán til framleióslu(3)
isl. krónur 15-16.25 Ib
SOR 8
Bandarikjadalir 7.5
Sterlingspund 12.75
Vestur-þýsk mörk 6.25
Húsnæðislán 3.5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 1517 stig
Byggingavisitala okt.-des. 281 stig
Húsaleiguvisitala Haekkaði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbankinn kaupir viðsk.víxla
m.v. 19.5% vexti. (2) Vaxtaálag á skulda-
bréf til uppgjörs vanskilalána er 2%
bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán.
(3) Iðnaðarbanki og Verslunarbanki
leggja 1.5% á vexti Iána í erlendri mynt.
Skammstafanir: Ab=Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Otvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Spari-
sjóðirnir.
Eldri menn sem
ýttu á Guðmund
- „Þessi ákvörðun Guðmundar er hans mál,“ segir Haraldur Ólafsson
„Ég hef ekkert um þetta að segja,“
sagði Haraldur Ólafsson, alþingis-
maður Framsóknarflokksins í
Reykjavík, í samtali við DV þegar
álits hans var leitað á þeirri ákvörð-
un Guðmundar G. Þórarinssonar að
gefa kost á sér í prófkjör flokksins
í Reykjavík og stefna þar á það sæti
sem Haraldur nú skipar.
„Ég gef kost á mér í fyrsta sætið
sem ég skipa nú og þessi ákvörðun
Guðmundar er hans mál. Hann verð-
ur að meta það sjálfur hvað honum
finnst rétt að gera í þessum mál-
um,“ sagði Haraldur.
Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra og fúlltrúi
yngri kynslóðarinnar í prófkjörinu,
sagði, aðspurður um sama mál, að
Guðmundur hefði sagt það sjálfur
um eigið framboð að á það bæri ekki
að líta sem vantraust á Finn. „Það
er sjálfsagt af honum að gefa kost á
sér fyrst áhugi hans á stjómmálum
hefúr vaknað aftur," sagði Finnur.
Finnur Ingólfsson sagði ennfremur
að ýmsir eldri menn hefðu ýtt mjög
á Guðmund að taka þátt í prófkjör-
inu og kvaðst hann telja að þessir
menn væru með því að lýsa yfir van-
trausti á sig og um leið væru þeir
að beijast gegn endurýjun í þingliði
flokksins. Jafnframt væm þeir að
reyna að koma í veg fyrir að Finnur
hlyti fyrsta sætið í prófkjörinu.
Sagði Finnur að á sínum tíma hefði
barátta gegn því að ungir menn
kæmust til áhrifa i flokknum kostað
útgöngu svokallaðrar Möðmvalla-
hreyfingar úr Framsóknarflokknum.
Spumingu um það hvort til slíks
kynni að koma í kjölfar áhrifa kom-
andi prófkjörs svaraði Finnur
þannig: „í mínum huga kemur það
aldrei til greina.“-
Haraldur Ólafsson ræðir hér léttur i lund við Stefán Vaigeirsson eftir að sá síðarnefndi var „tekinn af“ á kjördæm
isþingi framsóknarmanna fyrir norðan. Skyldu hliðstæð örlög bíða Haraldar i prófkjöri framsóknarmanna
Reykjavik? DV-mynd: KAE
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Blokk gegn Ásmundi
Unga fólkið og stuðningsmenn Ólafs Ragnars ætla að tryggja Guðrúnu Helgadóttur 2. sætið
„Við komum saman í fyrrakvöld, 25
félagar úr hópi ungs fólks og stuðn-
ingsmenn Ólafs Ragnars, og þar var
ákveðið að slá skjaldborg um Guðrúnu
Helgadóttur til að tryggja henni 2.
sætið á listanum. Við viljum komast
hjá því að sjá hagfræðing í því sæti,“
sagði einn af frammámönnum í hópi
ungs fólks í Alþýðubandalaginu í sam-
tali við DV. Hann fullyrti að þessi
hópur ætlaði að koma í veg fyrir að
Ásmundur Stefánsson næði 2. sætinu
á listanum.
Hópurinn kom saman á Hótel Borg
í fyrradag. Þar voru mættir m.a. Össur
Skarphéðinsson, ritstjóri Þjóðviljans,
sem mun vera hvatamaðurinn að
þessu öllu saman, Ömólfur Thorsson
bókmenntafræðingur, Halldór Guð-
mundsson hjá Máli og Menningu,
Bjami Jónsson hjá Svörtu á hvítu,
Ami Óskarsson, Guðmundur Bjam-
leifsson rennismiður, Páll Valsson
Stuðningsmenn Ólafs Ragnars og ungt fólk í Alþýðubandalaginu í Reykjavik
ætla að slá skjaldborg um Guörúnu Helgadóttur og tryggja henni 2. sætið í
forvalinu til að koma í veg fyrir að Ásmundur Stefánsson nái þessu sæti.
bókmenntafræðingur og Páll Baldurs-
son.
Þessi hópur telur sig hafa óskoraðan
stuðning alls ungs fólk í AB í Reykja-
vík sem og allra stuðningsmanna Ólafs
Ragnars, svokallaðrar „lýðræðiskyn-
slóðar". Viðmælandi DV sagði að
Svavar Gestsson yrði studdur í 1. sæti
listans af þessum hópi og eins væri
stuðningur við Olgu Guðrúnu Áma-
dóttur, sem boðið heíúr sig fram í
forvalið. „Það er þónokkuð síðan við
skipulögðum mjög vel smurða kosn-
ingavél fyrir Ólaf Ragnar en nú, þegar
hann hefur ákveðið að fara á Reykja-
nesið, ætlum við að einhenda okkur
að því að tryggja Guðrúnu sætið
sagði viðmælandi DV.
Það er því ljóst að ákvörðun Ólafs
Ragnars að gefa kost á sér á Reykja-
nesi hefur ekki leyst allan vanda ÁB
í Reykjavík.
-S.dór.