Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
Útlönd
Anctvígir konum
í predikunar-
stólnum
Lúterska kirkjuráöið í Finnlandi
gengur til atkvaeða í dag um, hvort
kvenprestum skuli leyft að þjóna
prestaköllum, og er búist við því
að það verði samþykkt þótt margir
þjónandi presta (að vísu minni-
hluti) hafi lagst gegn því.
Deilur um það, hvort kvenfólk
skuli þjóna sem prestar. hafa á
stpndum verið mjög ofsafengnar í
Finnlandi en seinni árin hefur
dregið úr ofsanum og margirhinna
íhaldssamari prestanna telja orðið
að sú breyting verði ekki lengur
umflúin.
Niðurstaða kirkjuráðsins verður
síðan send finnska þinginu og for-
seta landsins, en það er sjaldan að
löggjafinn hafi gengið gegn vilja
ráðsins.
Meirihluti finnsku þjóðarinnar
er lúterskir mótmælendur en
kirkjusókn er dræm nema á helstu
stórhátíðum.
Strokufangi
stal þyriu
Strokufangi, sem slapp úr Pleas-
anton-fangelsinu (60 km suðaustur
af San Francisco) í síðustu viku,
rændi þyrlu og notaði hana til
þess að írelsa vinstúlku sína úr
s;una fangelsi.
Ronald Mclntosh, sem sat inni
fyrir að svikja fé út úr fólki og er
annálaöur bragðarefur, tók á leigu
þyrlu undir þvi' yfirskyni að hann
væri fasteignasali sem vildi skoða
sig um. Loks kastaði hann sauð-
argærunni, ógnaði þyrluflug-
manninum með skammbyssu og
neyddi hann til að lenda og yfir-
gefa þvrluna en flaug henni sjálfur
til fangelsisins.
Þar virtist Samantha Dorinda
Lopez, vinstúlka hans, hafa átt von
á honum því að hún beið tilbúin
uppi á fangelsisþakinu þar sem
Mclntosh kippti henni upp í þyrl-
una í gær og hefur ekkert sést til
þeirra eða þyrlunnar síðan.
Áfengisútsöiu-
veikfall á
enda í Noregi?
Bjorg Eva Eriendsdóttir, DV, Osló;
Nú líður senn að lokum eins
umdeildasta verkfalls er átt hefur
sér stað í Noregi. í nokkrar vikur
hafa áfengisútsölur í Osló og ná-
grenni staðið tómar vegna verk-
falls.
Verkamenn við framleiðslu- og
töppunarstöð ríkisins í Osió fóru í
verkfall vegna þess að trúnaðar-
manni þeirra var sagt upp störfum.
Mál trúnaðarmannsms, Hakans
Höst fór fyrir dómstólana en hann
tapaði málinu.
Ákvörðun stjómar áfengisútsöl-
unnar um að reka manninn var
dæmd góð og gild. Verkfallið var
dæmt ólöglegt.
En verkamennirnir neita að
beygja sig fyrir þessum dómi og
nú í vikunni ákváðu þeir að halda
verkfallinu áfram ótrauðir þó að
dómurinn félli þeim í óhag.
Stjóm áfengisverslunarinnar
svaraði með því að gefa verka-
mönnunum vikufrest til þess að
skipta um skoðun og mæta til
vinnu.
Þeim sem ekki verða komnir til
vinnu í dag, fóstudag, verður sagt
upp.
En verkamennimir hafa enn
ekki látið neinar hótanir hafa áhrif
á sig.
Ef svo fer sem horfir verður nær
tvö hundruð manns sagt upp eftir
helgina en sjálfir halda verka-
mennimir fi-am að svo marga sé
ekki hægt að reka án þess að starf-
semi töppunarstöðvanna leggist í
rúst.
Sokolovs saknað
á grafhýsi Leníns
Sérfræðingar i málefnum Kremlverja boilaleggja nú ákaft yfir hugsanlegri skýringu á fjarveru Sergei Sokolovs, varnar-
málaráðherra Sovétrikjanna, við hersýningu á Rauða torginu í morgun í tilefni 69 ára byltingarafmælis Sovétrikjanna.
Sérfræðingar í máleínum Kreml-
veija bollaleggja nú ákaft yfir hugsan-
legri skýringu á fjarveru Sergei
Sokolovs, sjötíu og fimm ára vamar-
málaráðherra Sovétríkjanna, frá
hátíðahöldum í Moskvu í morgun í
tilefni af sextíu og níu ára byltingaraf-
mæli Sovétríkjanna í dag.
Sokolov vamarmálaráðherra var
ekki á meðal æðstu embættismanna
Sovétríkjanna á Kremlarmúr við
Rauða torgið í morgun til að fylgjast
með umfangsmikilli hersýningu í til-
efhi dagsins.
Fjarvera vamarmálaráðherrans er
hugsanlega talin benda til þess að
Sokolov eigi við vanheilsu að stríða
og hafi ekki treyst sér á Kremlarmúra
í morgun.
Pyotr Lushev hershöfðingi tók í við
kveðju hermanna Rauða hersins á
Rauða torginu í morgun, í fjarveru
Sokolovs, en Sovétmenn halda árlega
upp á byltingardaginn, sjöunda nóv-
ember, með miklum hátíðahöldum, þar
sem hæst ber umfangsmiklar hersýn-
ingar á Rauða torginu.
Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovét-
ríkjanna, stóð ásamt Andrei Gromyko
og öðrum æðstu valdamönnum lands-
ins á grafhýsi Leníns og fylgdist með
hersýningunni í morgun.
Mesta þyriuslys sögunnar
Fjörutíu og fimm olíustarfsmenn
fórust með þyrlu sem hrapaði í gær
með þá í Norðursjó undan strönd
Skotlands. Er það mesta þyrluslys sem
sögur fara af. Lifðu ekki slysið af nema
tveir menn, aðstoðarflugmaður og
starfsmaður af olíupalli. Björgunar-
þyrla náði þeim upp úr sjónum.
Um borð í flutningaþyrlunni, sem
var af Chinook-gerð (tveggja hreyfla),
höfðu verið 47 menn, þriggja manna
áhöfn þyrlunnar og olíustarfsmenn.
Hafði þyrlan verið á leið með þá frá
Brent-olíusvæðinu til Shetlandseyja.
Bræla var á þessum slóðum og stór-
sjór.
Sex þyrlur og leitarflugvél tóku þátt
í leitinni og höfðu fundist nítján lík,
þegar hætta varð leit í myrkri í gær-
kvöldi. Áfram var þó leitað af sjó.
Það þótti mesta mildi að tvímenn-
ingarmr skyldu komast af. Einskær
tilviljun olli því að þyrla strandgæsl-
unnar var í eftirlitsflugi á þessum
slóðum. Menn í henni sáu álengdar
olíuflekk á sjónum og gáðu nánar að.
Komu þeir þá auga á mennina tvo í
sjónum. Voru þeir lagðir inn á sjúkra-
hús í Aberdeen eftir hrakninginn, en
í morgun var sagt að líðan þeirra
væri eftir atvikum góð.
Um tildrög slyssins er ekkert vitað
enn. Mennimir, sem fundist hafa til
þessa, hafa allir verið í björgunarvest-
um, en þau óuppblásin, sem bendir til
þess að slysið hafi borið snöggt að.
Mesta þyrluslysið fram að þessu
varð á suðvesturhluta Bretlandseyja
1983, en þá fómst tuttugu menn.
Mannfrekari þyrluslys hafa orðið í
hemaði. 84 létu lífið í herþyrlu, sem
hrapaði í Nicaragua 1982. 46 fórust
með bandarískri herþyrlu, sem var á
leið til flugsýningar í V-Þýskalandi
1982. Það var raunar einnig þyrla af
Chinook-gerð.
Chinook-þyrlumar, sem smíðaðar
em af Boeing-verksmiðjunum, em
hannaðar með tilliti til þess að þola
hin erfiðustu veðurskilyrði. Þær vom
mikið notaðar í Víetnamstríðinu.
Forráðamenn fyrirtækisins, sem
stendur að olíuleitin á Brentsvæðinu,
segjast ekki ætla að nota í bili aftur
Chinook-þyrlur, á meðan rannsakað
verður, hvað olli þessu slys.
Ekkert neyðarkall barst frá þyrl-
unni. Tvennum sögum fer af því,
hvemig slysið hafi borið að. Segja
sumir að þyrlan hafi liðast í sundur í
loftinu í um 150 metra hæð yfir sjón-
um. Aðrir segja að hún hafi hrapað
og verið í heilu Iagi, þegar hún kom
niður í brotsjóina, en fljótlega sokkið
og brotnað. Líkum þeirra sem fómst
og braki úr þyrlunni hafi síðan skotið
upp á yfírborðið.
Þrjátíu og níu
logreglumenn
féllu á bílprófi
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupm4iöfn;
Af fjömtíu og þrem dönskum lög-
regluþjónum er þreyttu nýtt
ökupróf í Danmörku, er tók gildi
fyrsta október síðastliðinn, féllu
þrjátíu og níu.
Ekki þykir þetta sérlega vel af
sér vikið hjá dönsku lögregluþjón-
unum, enda rauð andlit undir
kaskeitunum að prófi loknu.
Nýja ökuprófið hefur verið sam-
hæft af dönskum dómsmálayfir-
völdum fyrir allt landið svo tryggt
sé að allir gangist undir sama próf-
ið.
Formaður danska ökukennara-
félagsins segir að ómögulegt sé að
ná prófinu án þess að hafa farið í
gegnum umferðarfræðslutima.
Lögð sé áhersla á nýjan hugsana-
gang þar sem skynsemi og öryggi
situr í fyrirrúmi í stað páfagauka-
lærdóms nemenda í lagabálkum
og reglugerðum.
Nemendumir fá að sjá tuttugu
og fimm skuggamyndir úr sex
hundruð mynda safrii. Eru þær af
alls kyns kringumstæðum úr um-
ferðinni og eiga nemendur að
svara játandi eðaneitandi spum-
ingum er lagðar em fyrir þá um
leið og myndimar em skoðaðar.
Ef fleiri en fímm spumingum er
svarað rangt fellur nemandinn.
Auk lögreglumannanna féllu allir
tuttugu nemenda er þreyttu prófið.
Ástæðan fyrir hinu nýja prófi er
mikill mismunur fallprósentu víðs
vegar um Danmörku vegna mis-
munandi kennslu.
í nýja ökuprófinu felast einnig
akstursæfingar á þar til gerðum
æfingabrautum.
Tugmilljón ára gamlir
steingervingar
á Suðurskautslandi
Jarðfræðingar frá Nýja-Sjálandi
hafa fundið tugmilljón ára gamla
steingervinga í borkjömum á Suður-
skautslandinu, að því er talsmaður
stjómvalda í Wellington, höfuðborg
Nýja-Sjálands, sagði í morgun.
Að sögn jarðfræðinganna er unnið
hafa að rannsóknarstörfum á Suður-
skautslandinu undanfama mánuði
hafa komið upp steingerðar leifar lauf-
blaða og ýmissa smálífvera, sem talin
eru allt að 42 milljón ára gömul.
Fundust steingervingamir eftir að
vísindamennimir höfðu borað niður á
518 metra dýpi, en fram að þessu hafa
vísindamenn ekki borað svo djúpt á
Suðurskautslandinu.
Haft er eftir foringja nýsjálensku
leiðangursmannanna að afrakstur til-
raunanna hefði farið fram úr þeirra
björtustu vonum, en búist er við að
þær standi fram í miðjan nóvember,
en þá fer að hlýna á Suðurskautsl-
andinu og erfiðara verður um vik fyrir
vísindamennina að athaína sig.
Bítlasonurinn
tekinn fyrir hnupl
Hinn nítján ára gamli sonur Ringo
Starr, bítlatrymbilsins fræga, var í gær
dæmdur til sektar fyrir rétti í London
eftir að hann hafði játað sig sekan um
þjófhað á hljómflutningstækjum úr
bifreið. Það hafði hann gert í ölæði
eftir sukkkvöld með félögum sínum.
Lögreglan kom að Jason Starkey, eins
og hann heitir, þar sem hann lá í ölv-
ímu á gólfinu í sendibifreið fyrir utan
heimili sitt í London. Þýfið lá á gólfinu
hjá honum. Starkey stundar hvorki
skóla né vinnu.