Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
11
Fréttir
Nokkrir starfsmenn Sláturfélags Suðurfjarða virða fyrir sér verk dagsins.
Sláturfélag Suðurfjarða:
Þyngsti dilkurinn 28,8 kíló
Siguisteinn Melsteð, DV, Bieiðdalsvík:
Slátrun er nú lokið hjá Sláturfélagi
Suðuríjarða. Stóð hún frá 22. septemb-
er til 31. október. Slátrað var 9100
dilkum, 1500 fullorðnu fé, 80 nautgrip-
um og 9 hrossum.
Meðalfallþungi dilka var um 15 kíló,
um það bil einu og hálfu kílói meiri en
í fyrra. Þyngsti dilkurinn var frá Seli
í Breiðdal og vó hann 28,8 kíló.
Slátrað var öllu fé frá fjórum bæjum
á félagssvæðinu sem nær frá Hvammi
í Fáskrúðsfirði að Berunesi við Beru-
fjörð, auk íjár á nokkrum bæjum
sunnar.
Sláturhúsið er nýtt og vel tækjum
búið. Gæti það annað miklu stærra
svæði en nú er. Starfsfólk hússins er
um fjörutíu talsins.
Sláturhúsið er nýtt og vel tækjum búið.
DV-myndir Sigursteinn
Lánveitingar Húsnæðisstofnunar vegna eldri umsókna:
Afgreiðsla hefst í mánuðinum
erfiðleikar í innskriftinni vegna mik-
ils vinnuálags starfsfólks Húsnæðis-
stofnunar, en Sigurður bjóst við því
að þau mál leystust á næstu dögum.
Hins vegar gat hann þess að enn
væri ólokið undirritun flestra samn-
inga við lífeyrissjóðina, en á meðan
ekki hefði verið gengið frá þeim,
væri ekki hægt að gefa umsækjend-
um loforð fyrir lánum. Alls eru
lífeyrissjóðimir sem fengið hafa
samningsform frá Hússnæðisstofnun
86 talsins, en aðeins 6 eða 7 hafa
sent inn undirritaða samninga.
-ój
Lánveitingar Húsnæðisstofnunar
ríkisins samkvæmt nýju húsnæðis-
lánareglunum vegna umsókna sem
bárust fyrir 1. september hefjast í
þessum mánuði og fram til áramóta
verða veitt lán vegna bygginga eða
kaupa á yfir 500 íbúðum, samkvæmt
upplýsingum sem DV fékk hjá Sig-
urði E. Guðmundssyni, fram-
kvæmdastjóra Húsnæðisstofhunar
ríkisins.
Þau lán sem veitt verða fram til
áramóta eru vegna íbúða sem var
sótt um lán vegna, samkvæmt gamla
húsnæðislánakerfinu, en umsækj-
endum var gefinn kostur á að breyta
lánsumsókninni til samræmis við
hinar nýju reglur. Sagði Sigurður
að flestir umsækjendur hefðu viljað
fá hærri lánin, en einnig hefði nokk-
ur fjöldi viljað fá lán sín samkvæmt
gamla lánakerfinu og hefði fólki ver-
ið val um það í sjálfsvald sett.
Hvað varðar lánveitingar sam-
kvæmt nýja kerfinu á grundvelli
umsókna frá og með 1. september,
sagði Sigurður að nýlega væri lokið
gerð tölvuforrits vegna þeirra lána,
en enn væri verið að skrifa inn í
kerfið umsóknir fólks. Hefðu skapast
VERKAFÓLK
Okkur á Álafossi vantar duglegt starfsfólk, kon-
ur og karla til ýmissa starfa. Bónuskerfi. Starfs-
mannaferðir. Upplýsingar í síma 666300 strax.
DÖMUR!
í Árbæ og nágrenni. Laugardaginn 8. nóvember kl.
16.00 verður 1. ráð Landssamtaka málfreyja á Íslandi
með opinn kynningarfund á starfsemi sinni. Fundurinn
verður haldinn í félagsmiðstöðinni Árseli við Rofabæ.
LJtbreiðslunefnd 1. ráðs.
ÓDÝRI
SKÓMARKAÐURINN
Margs konar skófatnaður, selst ódýrt.
Skómarkaðurinn,
Hverfisgötu 89.
FÓSTRUR, ATHUGIÐ
Við leitum að fóstru fyrir leikskólann Barnabæ á
Blönduósi. Fóstran þarf að leysa forstöðukonu af um
að minnsta kosti 3ja mánaða skeið, frá 1. des nk.
Barnabær er nýlegur leikskóli, vel búinn, með 10 dag-
heimilispláss og 60 leikskólapláss.
Hafið samband við forstöðukonu í síma 95-4530 eða
undirritaðan í síma 95-4181 fyrir 15. nóvember nk.
Sveitarstjóri.
LYFTARAR ATH! Nýtt heimilisfang
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra raf-
magns- og dísillyftara, ennfremur snúninga- og
hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum
lyftara, flvtjum lyftara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.
Vatnagörðum 16, símar 82770-82655.
Fylgist með
qfmæUstilboðimum.
Breytilegay vörur
á qfhuelistUboðunum sem
standa allan þennan mánuð.
Afsláttur á ajmælistilboðum
alb að 30%.
Kjötborg, Ásvallagötu 19, Kjötborg, Stórholti 16,
símar 14925 og 15690. sími 23380.
HAUSTHAPPDRÆTTI
SJÁLFSTÆÐEFLOKKSINS
DREGIÐ A MÁNUDAG