Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Side 27
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
39
Erla B. Axelsdóttir - Blússan eina, pastelmynd, 1985.
Stólað á stflinn
Sýning Eriu B. Axelsdóttur að Kjarvalsstöðum
Nú líður vart sú vika að ekki komi
fram áður óþekktur íslenskur lista-
maður. Þetta er auðvitað gott fyrir
listina í landinu en' kannski ekki
eins gott fyrir listamennina. Og er-
fitt er það fyrir okkur gagnrýnendur.
Nú orðið fáum við sjaldnast ráðrúm
til að gaumgæfa listsýningar af
þeirri kostgæfrii sem flestar þeirra
verðskulða heldur verðum að stikla
á stóru bæði í skoðun og umfjöllun.
Með þessu áframhaldi er fyrirsjá-
anlegt að svo margar sýningar verði
í gangi á einum og sama tíma að
íslensk blöð verða að taka upp á því
sama og stórblöðin úti í heimi, það
er að birta ekki nema nokkrar bnur
um hverja sýningu nema þá stærstu
myndlistarviðburði.
Við skulum vona í lengstu lög að
til slíkra neyðarúrræða þurfi ekki
að koma, meðal annars vegna þess
að hér finnast ekki listatímarit til
að hlaupa í skarðið fyrir dagblöðin
með gaumgæfilegri listgagnrýni og
listmiðlun.
Erla B. Axelsdóttir er nýtt nafn
fyrir mér fyrir utan nokkur málverk
á Reykjavíkursýningunni.
MyndJist
Aðalsteinn Ingólfsson
Þau voru gerð af talsverðri íþrótt
og skörtuðu björtum, smekklega
samræmdum litum. Viðfangsefnið,
tjöld í Laugardal, var ekki alveg
venjulegt og bar vott mátulega
metnaðarfullu hugarfari.
Að þessu sinni sýnir Erla 52 pastel-
myndir í vesturgangi Kjarvalsstaða.
Þar kemur fram að hún er jafnvíg á
olíulit og pastel og tekst að mestu
leyti að viðhalda „flæði“ olíunnar í
pastelmyndum sínum.
Myndefhið er áfram fremur þröngt
afmarkað, af litlum gróðurreitum í
landslaginu eða griðastöðum á
heiminu, svona ekki ósvipað því sem
nokkrir grcifíklistamenn sérhæfðu
sig í á tímabili.
Þannig dregur Erla til dæmis upp
litríkar myndir af skyrtum, axla-
böndum og ýmsu öðru sem liggur á
glámbekk á flestum heimilum.
Síðan gerir hún myndir af fólki,
uppstilltu í nærmynd, einnig að leik
og starfi. Listakonan er tæplega í
stakk búin að gera sannfærandi and-
litsmyndir en tekst oft að fanga
hópstemmningar eins og þegar hún
skissar upp myndir af fólki á strönd-
inni.
I heildina séð er sýning Erlu geð-
þekkur samsetningur en þó er heldur
mikill stílæfingabragur á mörgum
myndum hennar. Hún mætti gera sér
far um að taka viðfangsefhi sín
fastari tökum. Þannig mundi hún
ekki bara opinbera það hún sér,
heldur einnig hvað henni fmnst um
það sem hún sér.
-ai
Þegar
íshjartað slær
Þýskt bókmenntarit helgað íslenskum nútímabókmenntum
Die Horen heitir virt þýskt tímarit
um menningarmál sem gefið hefur
verið út í Hannover í 31 ár. Útgefend-
ur hafa fyrir sið að taka fyrir bók-
menntir ákveðinna landa og gera þeim
rækileg skil með því að leggja allt ri-
tið undir þær.
Timarit
Aðalsteinn IngóHsson
Þriðja hefti þessa árs er einmitt helg-
að íslenskum nútímabókmenntum og
hefur ekkert verið til sparað að gera
það vel úr garði.
Þeir Franz Gíslason, Sigurður A.
Magnússon og Wolfgang Schiffer hafa
ritstýrt þessu tölublaði, sem ber heitið
„Þegar íshjartað slær“. í því eru ítar-
legar greinar um ísland og íslenskar
bókmenntir eftir Wolfgang Schiffer,
Guðberg Bergsson, Sigurð A. Magnús-
son, Jón Viðar Jónsson og Helgu
Sigurður A. Magnússon - íslenskur
ritstjóri timaritsins.
Kress, ljósmyndir og grafíkmyndir eft-
ir íslenska og þýska aðila og svo
auðvitað skáldskapur.
Þama eru ljóð eftir þrjátíu og fimm
nútímaljóðskáld, frá Snorra Hjartar-
syni til Gyrðis Elíassonar, í þýðingu
Jóns Laxdal, Peturs Behrens, Wolfs
Kuhnelt, Gunther Wigand og Franz
Gíslasonar og óbundið mál eftir fjórt-
án höfunda, frá Indriða G. Þorsteins-
syni til Vigdísar Grímsdóttur, þýtt af
Jóni Laxdal, Jurgen von Heymann,
Ingo Wershofen, Susanne Erika Beug,
Gudrun Hanneck-Kloes og Coletta
Burling og loks kaflar úr leikritum
eftir Guðmund Steinsson, Ólaf Hauk
Símonarson, Hrafh Gunnlaugsson og
Odd Bjömsson.
Tímaritið er alls 224 blaðsíður og
fæst meðal annars hjá aðalútgefand-
anum, Kurt Morawietz, Letterstrasse
9, 3000 Hannover 21, V- Þýskalandi,
fyrir tæp 13 þýsk mörk.
-ai
nöMUR 0G HERRAR ATH.
Höfum breytt opnunartíma okkar í vetur.
Mánudaga - miðvikudaga frá kl. 9-5
fimmtudaga frá kl. 9-8
föstudaga frá kl. 9-7
laugardaga frá kl. 10-2.
Tímapantanir í síma 21732.
ctfáxsifn
V (^/REYN
REYNIMEL 34
SÍMI 21732
TIL SÖUJ
Toyota Crown Super saloon árg.
’82, ekinn 42.000 km, Ijósbrúnn.
Verð 595.000,-
Toyota Coaster árg. ’81, 19 manna
rúta, ekinn 160.000 km, hvít/blá.
Verð 500.000,-
Toyota Tercel 4x4 árg. ’86, grænn/
tvílitur, ekinn 10.000 km. Verð
540.000,-
Toyota Cressida disil, ekinn 160.000
km, grænn. Verð 460.000,-
Toyota LandCruiser STW árg. ’82,
disil beige, ekinn 67.000 km. Verð
810.000,-
Toyota Tercel árg. ’83, ekinn 34.000
km, grænn. Verð 295.000,-
BMW 316 árg. '82.
Honda Prelude árg. ’81.
BMW 518 árg. ’81.
Ford Escort árg. '84.
Mazda 626 árg. '82.
Mazda 626 2000 GLX árg. ’83.
Renault sendibill, árg. ’81.
Toyota Cressida árg. '80.
Opið virka daga 9-1
i oyota Corolla árg. ’77, rauður, fall-
egur bíll. Verð 120.000,-
Toyota Corolla árg. '80, ekinn
80.000 km, rauður, fallegur bíll.
Verð 190.000,-
Toyota Hi-Ace dísil árg. ’82, blár,
ekinn 100.000 km. Verð 420.000,-
Toyota Corolla DX árg. '85, eklnn
26.000 km, rósgrár. Verð 350.000,-
Toyota Corolla liftback árg. ’84, ek-
inn 37.000 km, grár. Verð 370.000,-
Toyota Camry GL árg. ’83, ekinn
42.000 km, beige. Verð 420.000,-
Volvo 244 GL árg. ’79.
Fiat Uno 45 S, árg. ’84.
Datsun Cherry árg. ’83.
MMC Galant árg. '82.
Daihatsu Charade árg. '81.
Toyota Hi-Ace húsbíll, árg. '82.
Toyota Cressida árg. '81 og '82.
. Laugardaga 13-18
Höfum ýmsar tegundir bifreiða á söluskrá
IV
ð SKertFArJ
5
P. SAMUELSSON & CO. HF.
SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVlK SÍMI (91) 687120