Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Side 28
40
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
Andlát
Kristín Anna Þórarinsdóttir leik-
kona lést 2. nóvember sl. Hún fæddist
í Reykjavík 26. október '1935. Hún
lauk burtfararprófi frá Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins 1954. Lengst
af lék hún með Leikfélagi Reykjavík-
ur. Eftirlifandi eigimaður hennar er
Kristján Amason. Þeim hjónum varð
þriggja barna auðið en það elsta dó
á fyrsta ári. Áður hafði Kristín Anna
eignast tvö börn. Útför hennar verð-
ur gerð frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30.
Helga Stephensen lést 30. október
sl. Hún fæddist 22. desember 1902.
Hún giftist Stefáni Árnasyni en hann
lést árið 1966. Þeim hjónum varð
tveggja barna auðið. Útför Helgu
verður gerð frá Fossvogskapellu í
dag kl. 13.30.
Ólafur F. Gunnlaugsson lést 31.
október sl. Hann fæddist í Ólafsvík
á Snæfellsnesi þann 23. júní 1921.
Að loknu námi í Verslunarskólanum
réðst Ólafur til starfa hjá Lands-
banka íslands og starfaði hann þar
óslitið í 42 ár. Eftirlifandi eiginkona
hans er Sigríður Einarsdóttir. Þeim
hjónum varð tveggja barna auðið.
Útför Ólafs var gerð frá Neskirkju í
morgun.
Ólafía Jochumsdóttir lést 29. okt-
óber sl. Hún var fædd í Reykjavík
17. september 1912, dóttir hjónanna
Diljár Tómasdóttur og Jochums
Þórðarsonar. Ólafía giftist Sigvalda
Stefánssyni, en hann lést árið 1973.
Þeim hjónum varð ekki bama auðið.
Útför Ólafar verður gerð frá Nes-
kirkju í dag kl. 15.
Dr. Hinrik H. Frehen biskup lést
31. október sl. Hann fæddist 24. jan-
úar 1917 í héraðinu Waubach syðst
í Hollandi. Að loknu námi í mennta-
skóla Montfortpresta í Schimmert
gekk hann í reglu þeirra og vann
regluheit sín 1937. Þá hóf hann nám
í heimspeki og guðfræði í prestaskóla
í Montfortpresta í Oirschot í Hol-
landi og meðtók prestvígslu 1943.
Hinn 18. október 1968 var Hinrik
Frehen útnefndur til biskups á ís-
landi og þáði vígslu 8. desemþer sama
ár. Sálumessa verður sungin í Dóm-
kirkju krists konungs, Landakoti, í
dag kl. 13.30. Jarðsett verður í graf-
reit Kristskirkju.
Gunnar Bachmann Guðmunds-
son, Fögruhlíð, Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkis-
hólmskirkju laugardaginn 8. nóv-
ember kl. 14. Bílferð verður frá BSÍ
kl. 9 og til baka.
Bjargey Steingrímsdóttir frá
Ekru, Eyjahrauni 9, verður jarð-
sungin frá Landakirkju, Vestmanna-
eyjum, laugardaginn 8. nóvember kl.
14.
Tilkyimingar
Ásgrímur Jónsson
5. nóvember 1986 kom út bók um
einn hinna miklu meistara í íslenskri
málaralist, Ásgrím Jónsson. Það eru
Listasafn ASÍ og bókaforlagið Lög-
berg sem gefa bókina út í samvinnu
við Ásgrímssafn.
„Saga Ásgríms Jónssonar listmála
er líkust ævintýri. Lítill drengur með
glampa í augum tekur sig upp úr
sveitinni til að freista gæfunnar í
kaupstað. Forsjónin er honum hlið-
holl og neistinn, sem með honum
býr, fær að glæðast á ami list-
hneigðra menningarheimila. Málar-
inn ungi heldur til náms í erlendum
borgum, og þegar hann snýr heim
fullþroska, færir hann með sér
bjarma af heimslistinni."
í bókinni eru rúmlega sextíu lista-
verk Ásgríms í vandaðri eftirprentun
og hafa mörg þeirra aldrei verið
prentuð áður. Hrafnhildur Schram
listfræðingur, núverandi forstöðu-
maður Ásgrímssafns, og Hjörleifur
Sigurðsson listmálari rita texta bók-
arinnar.
Ljósmyndun listaverka annaðist
Kristján Pétur Guðnason. Torfí
Jónsson sá um tilhögun bókarinnar
en prentsmiðjan Oddi h/f litgrein-
ingu, prentun og bókband. Olafur
Pálmason mag. art. var ráðgjafi við
útgáfuna.
Ásgrímur Jónsson er sjötta bindið
í ritröðinni íslensk myndlist en áður
eru komnar út eftirtaldEir* bækur:
Ragnar í Smára, Eiríkur Smith, Jó-
hann Briem, Muggur og Jóhannes
Geir.
Útvarp - Sjónvaip
Iðunn Bragadóttir, nemi í Verkmenntaskólanum á Akureyri:
Skilyrði að
horfa á fréttimar
Ég horfði ekkert á sjónvarpið í
gærkvöldi því við höftim ekki einu
sinni reynt að ná Stöð 2 hér á þessum
bæ. Venjulega horfi ég á sjónvarp
annað til þriðja hvert kvöld því hin
kvöldin er ég að vinna. Fréttimar
horfi ég alltaf á enda er það skilyrði
svo maður geti fylgst með því sem
er að gerast í kringum mann.
Ég horfi á sjónvarp mikið af
praktískum ástæðum, þ.e. reyni allt-
af að horfa á Peter Ustinov í Rússl-
andi þar sem ég er einmitt að læra
þá sögu í skólanum núna. Þýsku
þættina horfi ég á, Þann gamla og
Sjúkrahúsið í Svartaskógi, af þeim
er hægt að læra þýskuna ágætlega.
Af útvarpinu hef ég það að segja
að auðvitað hlusta ég alltaf á Rúvak
Iðunn Bragadóttir nemi.
og endrum og eins á rás 2 en Bylgj-
unni náum við ekki hér á Akureyri.
Uppáhaldsþættir mínir í sjónvarp-
inu þessa stundina eru Prúðuleik-
amir og Dóttir málarans (Mistrals
Daughter), það em einu þættimir
sem ég horfi á mér til afþreyingar
þegar ég hef tíma. Svo reyni ég að
horfa á Kastljós og Þingsjá og
íþróttir þegcn ég get, en ég horfi afar
sjaldan á bíómyndir. Ungt fólk á
mínum aldri hefur engan tíma til
útvarpshlustunar, hvað þá sjón-
varpsgláps. Enda er það yfirleitt í
tveim til þrem vinnum, hjá mér er
það skólinn og vinna á kvöldin og
svo ér ég formaður nemendaráðs
þannig að það er ekki mikill tími
aflögu.
FRIÐARÁR
1986
Fjörutíu ára aðild íslands að Sameinuðu þjóðunu
Fridarár 1986
Út er komið ritið Friðarár 1986 í tilefni
af íjörutíu ára aðild íslands að Sameinuðu
þjóðunum. Útgefandi er félag Sameinuðu
þjóðanna, ritstjóri og ábyrgðarmaður
Ragnar Friðrik Ólafsson. í ritinu er að
Finna greinar um friðargæslu, afvopnunar-
mál og framlag íslendinga til friðarmála
svo eitthvað sé nefnt. Einnig eru í Friðar-
ári 1986 nokkrar vangaveltur um störf
íslendinga og afstöðu á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna ásamt ýmsum athyglisverð-
um fróðleikspunktum um sitthvað er
tengist félaginu innanlands og á erlendum
vettvangi.
Nýtt eftir Sjón
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu ljóðabókin Drengurinn með
röntgenaugun eftir Sjón (Sigurjón
B. Sigurðsson).
Sjón er fæddur 1962 og var ekki
nema fimmtán ára þegar hann fór
að geta sér orð sem skáld. Verulega
athygli vakti hann 1979 þegar ljóða-
bókin Birgitta, hleruð samtöl kom
út, hún var líka það fyrsta sem hann
skrifaði sem súrrealisti. Um svipað
leyti varð súrrealistahópurinn Med-
úsa til.
Sjón hefur gefið bækur sínar út
sjálfur og þær eru ófáanlegar. I
Drengurinn með röntgenaugun
hefur hann safnað saman úrvali
ljóða úr elstu bókum sínum, en frá
og með Reiðhjóli blinda mannsins
(1982) eru bækurnar birtar heilar,
auk ljóða úr blöðum og tímaritum.
Ekki er algengt að skáld gefi út
heildarsöfn af þessu tagi svona ung,
en bæði er að Sjón er athyglisverður
fulltrúi nýrrar íslenskrar ljóðlistar
og ljóðabækur hans ekki aðgengileg-
ar almenningi fyrr en með þessu
safni. Listaverk eftir kanadíska súr-
realistann Jean Benoit skreytir bók
og kápu, en myndina af Sjón inni í
bókinni tók Robert Guillemette.
Teikn hannaði kápuna.
Bókin er 127 bls., unnin í prent-
smiðjunni Odda hf.
Kaffisala
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Kaffisala félagsins verður í safnaðar-
heimili kirkjunnar við Vesturbrún nk.
sunnudag 9. nóvember eftir messu kl. 14.
Allir velkomnir.
Afmæli
íslenskir sögustaðir
Norðlendingafjórðungur og
Austfirðingafjórðungur
Hjá Emi og Örlygi em komin út
lokabindin í hinu merka riti Islensk-
ir sögustaðir eftir Kristian Kálund
í þýðingu dr. Haraldar Matthíasson-
ar. Þessi tvö síðari bindi fjalla um
Norðlendingafjórðung og Áustfirð-
ingafjórðung en áður vom komin út
tvö bindi sem fjölluðu um Sunnlend-
ingafjórðung og Vestfirðingafjórð-
ung.
Dr. Haraldur Matthíasson ritar eft-
írmála þýðanda óg segir þar m.a.:
„Sögustaðalýsing Kálunds er því í
fullu gildi enn. Vart mun nokkur
fræðimaður fást svo við staðfræði í
íslendingasögum, að hann vitni ekki
til Kálunds, og einatt er það rit aðal-
heimildin. Sumir vitna jafnvel í það
í stað þess að skoða sjálfir.“
Við útkomu fyrri binda þessa mikla
ritverks komst Steindór Steindórs-
son frá Hlöðum m.a. svo að orði:
„Einstakt rit í sinni röð. Islands-
lýsing Kálunds er einstakt rit í sinni
röð, bæði að efnismagni og allri með-
ferð efnis enda hlaut það góða dóma
og nýtur þess álits enn í dag. Þor-
valdur Thoroddsen segir „að Islands
lýsingin sé samin af hinni mestu
nákvæmni og vandvirkni og þar
safnað afarmiklum fróðleik um
staðalýsingu og fomsögu íslands".
Jón Þ. Þór sagnfræðingur sagði af
sama tilefni m.a.: „Rit Kristians Ká-
lunds um íslenska sögustaði er eitt
af öndvegisritum útlendinga um ís-
lenska sögu.“ Islenskir sögustaðir
er að öllu leyti unnin í Prentsmiðj-
unni Odda hf.
60 ára er í dag, 7. nóvember, frú
Þóra Karitas Ásmundsdóttir, til
heimilis að Háaleitisbraut 38. Hún
verður ásamt eiginmanni sínum,
Jóni Þ. ísakssyni, að heiman í dag.
50 ára verður hinn 10. nóvember
Svala ívarsdóttir, Vogabraut 28,
Akranesi. Hún ætlar að taka á móti
gestum í Oddfellowhúsinu þar í bæn-
um milli kl. 18 og 22 annað kvöld,
laugardaginn 8. nóvember.