Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Side 30
42
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
sM 4
f'S
GULLKORN VIKUNNAR
Elvis Costello -
I Want You (IMP)
Fallegri en þetta gerast lög
varla held ég. Þetta er af-
skaplega rólegt en tilfinn-
ingin og fegurðin er slík
að ég er viss um að jafnvel
verstu freðýsur myndu
þiðna við að hlusta á þetta
nokkrum sinnum.
ÖNNUR GÓÐ KORN
Smiths - Ask
(ROUGH TRADE)
Smiths verða bara léttari
og léttari með árunum en
ekki er slakað á gæða-
klónni fyrir því, hér leikur
þetta í höndunum á þeim í
léttum og hressum takti,
og vinsældirnar láta ekki á
sér standa. Afköstin eru til
fyrirmyndar.
PETER GABRIEL &
KATE BUSH -
Don’t Give Up (CHARISMA)
Mikið var það vel til fundið
hjá Peter Gabriel að fá
Kate Bush til að syngja
með sér í þessu fallega lagi,
hún lyftir laginu upp um
nokkra klassa og Peter
Gabriel á ekki síður hrós
skilið fyrir að hafa samið
þetta magnaða lag.
RED BOX -
For America (WEA)
Skondið lag með jóðli og
tilheyrandi. fjöri, maður
fellur fyrir þessu þegar við
fyrstu áheyrn og það eiga
vafalaust margir eftir að
dansa við þetta lag. Skil-
yrðislaus smellur.
ARETHA FRANKLIN &
KEITH RICHARDS -
Jumpin’ Jack Flash (AR-
ISTA)
Það þarf ekki að taka það
fram að lagið er gamall
klassíker eftir þá Stones
fóstbræður. Og hér í með-
förum Arethu Franklin er
það í góðu lagi, hún hefur
magnaða rödd og gefur lag-
inu þá tilfinningu sem þarf
fyrir lag af þessu tæi.
STRANGLERS -
Always The Sun (EPIC)
Glettilega gott lag frá
Stranglers, það er létt yfir
strákunum hér, skemmti-
legir kórar og laglínan
viðfelldin, þetta á eftir að
heyrast mikið.
CUTTING CREW -
l’ve Been In Love Before
(SIREN)
Ekki jafnsterkt og (I Just)
Died In Your Arms enda
erfitt að fylgja jafnágætum
smelli eftir. Cutting Crew
fellur samt ekki í þá gryfju
að endurtaka sig, þetta er
ljúfasta ballaða en minnir
óþægilega á Rough Boy
með ZZ Top. -SþS-
A-ha - Scoundrel Days
Stórt skref í rétta átt
Þegar norsku hljómsveitinni A-ha
skaut skyndilega upp á stjömuhimin-
inn í fyrra vom margir sem sögðu að
þetta væri dæmigerð skyndihljóm-
sveit, sem ætti einn smell og síðan
ekki söguna meir. En norsku strák-
amir vom ekki á þeim buxunum að
gefa sig og hefúr þeim tekist að við-
halda áunnum vinsældum og gott
betur en það.
Þess vegna var ekki laust við að
annarrar plötu hljómsveitarinnar eftir
gegnumbrot væri beðið með nokkurri
eftirvæntingu, því mörg em dæmin
um hljómsveitir sem farið hafa of vel
af stað og aldrei náð að fylgja góðri
byrj un eftir.
A-ha tekst hins vegar að mínu mati
bærilega að sneiða framhjá þessum
vandræðum og gera jafnvel betur því
ég tel að þessi plata sé á sinn hátt
betri en sú sem á undan fór.
Vissulega er greinilegt að hljóm-
sveitin er nokkuð leitandi í stílbrögð-
um en tekst samt að halda góðri
heildarmynd á því sem hún er að gera
á þessari plötu.
Ahrifin koma úr ýmsum áttum og
strákamir blanda þeim smekklega
saman og þeir hafa greinilega mikið
til brunns að bera sem lagasmiðir
(sérstaklega Pál Waaktaar). Þá kemur
söngvarinn Moten Harket sérstaklega
sterkur út á þessari plötu, stórgóður
söngvari.
Þegar hefur eitt lag af þessari plötu
náð vinsældum - I’ve Been Losing
You. Það lag er nokkuð í anda lag-
anna af Hunting High And Low en
fleiri lög af þessari plötu tel ég vera
vænlega til vinsælda, svosum einsog
The Swing Of Things og Looking For
The Whales.
Mér finnst í hæsta máta tilefni til
að óska frændum vorum í A-ha til
hamingju með þessa nýju plötu, þeir
afsanna með öllu spár um skyndivin-
sældir og skipa sér í fremstu röð léttra
poppsveita í dag. -SþS-
George Benson - While The CHy Sleeps
Lrtil tilþríf
Eftir nokkra lægð sendi George
Benson frá sér í fyrra ágætisplötu
20/20 þar sem hann fór á kostum í
nýjum sem gömlum lögum og naut þar
aðstoðar margra ágætra tónlistar-
manna. Það voru því nokkur von-
brigði eftir hlustun á While The City
Sleeps að heyra hversu máttlaus sú
plata er.
George Benson, sem á árum áður
var einn besti jassgítarleikari vestan-
hafs og sjálfeagt enn ef hann tæki nú
upp á því að hætta að syngja og fara
að spila eingöngu, hefur á undan-
fómum árum getið sér gott orð sem
soulsöngvari og sem slíkur nýtur hánn
vinsælda.
Á fyrstu plötum sínum sem söngvari
sameinaði hann gítarleik sinn og söng
á nokkuð skemmtilegan hátt og kom
margt góðra verka frá honum á þess-
um árum. Má nefna sem dæmi útsetn-
ingu hans á slagaranum On Broadway
sem fékk heldur betur andlitslyftingu
í meðförum hans.
Sú þörf hans að sýna snilld á gítar-
inn er því sem næst að hverfa, ef tekið
er mið af While The City Sleeps. Til
að mynda er þetta, að því er ég held,
hans fyrsta plata þar sem ekkert lag
er eingöngu spilað og þegar lögin í
heild em ekki betri en þau átta sem
eru á While The City Sleeps þá er
Benson ekki nógu sterkur söngvari til
að geta haldið áhuga manns á plöt-
unni.
Lögin átta eru frekar róleg soullög
í hefðbundnum útsetningum. Höfúnd-
ar eru ýmsir og hefur Benson nær
alveg skipt um lið frá síðustu plötu,
ekki til batnaðar. Best tekst honum
upp í rólegum ballöðum eins og Kisses
In The Moonlight, Love Is Here To-
night og Too Many Times. Hraðari
lögin eru aftur á móti meðalmennskan
uppmáluð. Þó verður að taka það fram
að platan er þrátt fyrir vonbrigði þægi-
leg hlustun og ekki svo slæm ef á
annað borð er ætlunin að spila af-
slappandi tónlist. En aðdáendum
gítarsnillingsins George Benson er
bent á eldri plötu hans.
HK
Talking Heads - True Stories
I sögusafn aðdáendanna
True Stories er nafh á kvikmynd sem
höfuðpaur Talking Heads, David
Byme, leikstýrir. Tme Stories er enn-
fremur nafn á plötu sem inniheldur
tónlist úr myndinni. Sem fyrr er David
Byme allt í öllu. Tónlistin á plötunni
er öll eftir hann.
Það er engum blöðum um það að
fletta að Byme er ákaflega hæfileika-
ríkur maður. Tónlist Talking Heads á
liðnum árum ber þess fagurt vitni.
Byme hefur ennfremur sýnt að hann
kann ýmislegt fyrir sér á sviði kvik-
myndagerðar, eins og fjöiskrúðug
myndbönd sveitarinnar bera með sér.
Platan Tme Stories er ekkert tíma-
mótaverk á ferli Talking Heads.
Tónlistarlega séð er hún rökrétt fram-
hald af því sem sveitin var að fást við
á síðustu plötu sinni, Little Creatures.
Tme Stories er poppaðasta plata sem
Talking Heads hefur sent frá sér. Það
er í sjálfu sér gott og gilt. Gallinn er
hins vegar sá að Byme hefur oftast
tekist betur upp hvað varðar laga-
smíðar. Tónlistin er á heildina litið
nokkuð keimlík og platan þar af leið-
andi frekar flatneskjuleg.
En Byme bætir það upp með ein-
staka gullkomum. Wild Wild Life er
til að mynda eitt allra skemmtilegasta
lag sem Talking Heads hefur spilað.
Laglínan er grípandi og viðlagið við
allra hæfi. Svona eiga dægurlög að
vera. Hin Ijúfa ballaða, Dream OperaL
or, stendur því ekki langt að baki.
Byme syngur þar um drauma okkar
mannanna sem verða að engu þegar
við vöknum upp að morgni. Þessi tvö
lög em stjömur plötunnar.
Aðrar lagasmíðar em mjög í anda
þess sem Talking Heads hefúr áður
gert. Þær líða fyrir svipaðar útsetning-
ar og ekki nægilega sterkar laglínur.
Verst þykir mér takast til í laginu
People Like Us, þar sem áhrif Country
& Westem tónlistar em ómæld.
Tme Stories er ágæt í sögusafn Talk-
ing Heads aðdáenda þó hún sé ekki
með því besta sem sveitin hefur sent
frá sér. Þegar Byme og félagar eiga í
hlut gerir maður bara svo miklar kröf-
ur. Aðeins það besta nógu gott.
ÞJV
ar Kate Bush, sem við
sögðum frá í síðustu viku,
reyndíst þegar allt kom til
'8.1
um er að ræða plötu med
samsafni af bestu lögum
Bush, Eitt nýtt lag flýtur þó
með, ..Experiment IV”, og i
nýiegu blaðí Billboard getur
blaðamaður nokkur vart
vatni haldið yfir þessu nýja
lagi, sem hanti kallar meisl-
Journey hélt hljómleika i
New York á dögunum sem
ekki er beint i frásögur fær-
andi nema hvað að samtimis
tóuleikunum fór fram stór-
boltanum og undtr lok
tónleikanna mátti vart á
milli sjá hvort áheyrendur
a tónlistinm eða lysmgu a
leíknum sem ntargir þeirra
nokkrum dögum siðar á tón-
leikum hjá Lionel Richie
um við og við á rnilli laga,
Samt er sagt að margir tón-
leikagestir hafi ekkí tekið
er nu að smala saman fólki
til að spila á næstu sóló-
plötu sitmi og hefur þegar
ráðið gitarleikarann góð-
kunna Jeff Beck og trommu-
leikarann Omar Hakim.. .Á
innar REM er gamalt lag frá
1968 sem heitir Suoerman
í sjóttvarpi. Honum leist svo
vel á meðferð REM á laginu
að hann dreíf sig á næstu
ar og þat uppá svtð og tók
Miehael Jackson hefurbeðið
fönkarana í Run-O.M.C. aó
semja fyrir sig lag á næstu
plötu sitta og á texti laysins
að vara ungmenni víð eitur-
lyfittu crack. . .Qg það eru
fleiri sem hafa áhuga á Run-
Stevie Wonder hefur farið
þess á leit vtð piltana að
þeir verði sér innan Itandar
á næstu plötu sinní. . .bless