Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Qupperneq 32
44
FÖSTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1986.
Sviðsljós
DV
Ólyginn
sagði . . .
Greta Garbo
eyddi haustinu i Klösters í Ölp-
unum með sinni góðu vinkonu
Cecile de Rotschild barónessu.
Þær halda sig lítið í skíðabrekk-
unum en fara þess meira um
svæðið á sinum tveimur jafn-
fljótum og vilja síst blanda geði
við aðra gesti i fjallaþorpinu.
Greta lætur skíðastafina alveg
vera en styður sig oft við mynd-
arlegan göngustaf sem hún
síðan notar til þess að stugga
við Ijósmyndurum sem reynast
of ágengir. Stjarnan dularfulla
er þó alls ekki jafnaðgangshörð
og sá baráttuglaði Penn Ma-
donnubóndi en getur samt átt
það til að pota óþægilega fast
á viðkvæma staði láti menn sér
ekki segjast.
Zsa Zsa Gabor
lætur sér ekki nægja að búa í
friði og ró með áttunda eigin-
manninum, Frederic von
Anhalt. í Austur-Þýskalandi
leikur sú gamla í kvikmynd um
Jóhann Strauss og kvartar há-
stöfum yfir að búningahönnuð-
urinn geri. hana eins og
eldgamla frænku í útliti. Leik-
stjórinn hefur kveðið á um að
einmitt það sé hennar hlutverk
í myndinni - að vera eldgömul
frænka - en Zsa Zsa svaraði
honum með því að skvetta sjóð-
heitu kaffi yfir Friðrik áttunda
sem ekkert hafði til sakar unnið
annað en vera óþægilega ná-
lægt vígstöðvunum. Hann veltir
víst fyrir sér skilnaði um þessar
mundir.
Priscilla Presley
er búin að fá nóg af því að leika
rokkekkju og hefur ákveðið að
renna inn í hjónaband með tví-
fara Presleys- Marco Garibaldi.
Hann er bæði yngri og hressari
en fyrri vinir Priscillu og nú er
svo komið að hún ætlar að gift-
ast elskhuganum um jólaleytið.
Hjónaleysin ættu ekki að þurfa
að kvíða baráttunni fyrir dag-
legu brauði því rokkarinn Pres-
ley skildí eftir sig sand af seðlum
fyrir fyrrum eiginkonuna og
dóttur þeirra.
Elisabet tapaði aldrei þjálfuðu brosinu þrátt fyrir óþægindin sem fylgdu Það var helst að brosið hyrfi þegar kennslustund í matprjónameðferð
hinum masandi eiginmanni. stóð yfir.
Kínaheimsókn Elísabétar drottn-
ingar Bretaveldis varð sögufræg
mjög - ekki síst fyrir misgáfulegar
athugasemdir eiginmannsins,
Philips, sem hann var óspar á hvar
sem þau komu. Undir lokin voru
gullkornin á allra vörum, erlendar
fréttastofur hoppuðu af kæti og
forsíðufrétt margra heimsblaðanna
varð sú hræðsla karlsins að ef of
lengi yrði dvalið í heimsókninni
gæti farið svo að þau hjónin kæmu
skáeygð heim til Bretlands. Þetta
þótti engum fyndið og siðameistar-
ar og blaðafulltrúar hallarinnar
stóðu í miklu stappi við að fínna
einhverjar undankomuleiðir fyrir
drottningarmanninn - en útskýr-
ingarnar þótti hver annarri vafa-
samari.
Elísabet er í góðri líkamlegri
þjálfun og vakti mikla aðdáun þeg-
ar hún valhoppaði léttilega þessa
tvö hundruð og fimmtíu metra upp
Kínamúrinn. Hún er þar mun fim-
ari en evrópskir þjóðhöfðingjar er
þangað hafa komið áður og forset-
arnir Reagan og Nixon þóttu mun
þungstígari en drottningin.
Myndir af þeim hjónunum sýna
kerlu með sólgleraugu og ljós-
myndavél á maganum minnir
sterklega á ýmsar túristakerlingar
bandarískrar ættar. Philip prins er
greinilega ekki í essinu sínu enda
nýbúinn að fá fyrirskipun um að
halda sér saman í margmenni og
framkvæma bókstaflega talað alls
ekki neitt af sjálfsdáðum. Færni
þeirrar bresku Betu í matprjóna-
meðferð vakti hrifningu mikla
meðal Kínverja og Deng Xiaoping
þakkaði henni kærlega fyrir að
nenna að kíkja inn hjá gamalmenni
eins og honum. Heim héldu hjónin
með fjölmargar filmurúllur er sýna
helstu atburði í hinni opinberu
heimsókn og talið er að strax dag-
inn eftir hafi drottningarmaðurinn
orðið að byrja að sækja endur-
menntunarnámskeið fyrir hefðar-
dúllur sem eiga í erfiðleikum með
að hemja tjáningarþörfina við við-
kvæm tækifæri.
Of sætur í sumt
Það er margt mannanna bölið. Núna hrjáir það Don Johnson einna helst
að hann er allt of sætur i sum hlutverk, einkum og sér í lagi þau sem
hann sjálfan langar að spreyta sig á. Annars er hann ekkert að kvarta,
segist hafa ágæt laun miðað við hina bóndastrákana frá Missouri. Að ætt
og uppruna er svo Donny Wayne Johnson að einum fjórða Cherokee-
indíáni sem að hans sögn skýrir hvers vegna hann varð svo auðveldlega
alkóhóli og eiturlyfjum að bráð. „Það er háskalegt að afhenda indíánum
eldvatn," segir súperlöggan Don Johnson þurrlega.
¥
Robert Wagner er þriggja stúlkna faðir og sú staðreynd heldur honum
víst örugglega ógiftum enn um sinn. Ekki þannig að kvenfólk setji ómegð-
ina eitthvað fyrir sig heldur neita dæturnar alfarið að fá einhverja
aðkomukerlingu inn á heimilið. Elsta dóttirin Kate, sem Robert átti með
Marion Marshall, segist hreinlega mundu flytja að heiman ef hann hefði
í frammi tilburði í hjónabandsátt. Stjúpdóttirin, Nastasha, tekur í sama
streng með áköfum stuðningi Courtney sem Robert eignaðist með Nat-
halie Wood. Robert Wagner er því einstæður faðir númer eitt í Hollívúdd
og litlar líkur eru á einhverri breytingu á þeirri staðreynd næstu árin.