Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1986, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986.
45
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . .
Jóakim
hinn danski
fékk stfangar áminningar frá for-
eldrunitm hálfa leið yfir hnött-
inn. Prinsinn var Ijósmyndaður
í Ástraliu þar sem hann nú dvel-
ur til þess að læra um land-
búnað og á myndinni var hann
reykjandi sígarettu eins og ekk-
ert væri þýðingarmeira en að
ná sem stærstum smók úr nagl-
anum. Þetta gekk yfir foreldrana
sem skilja ekkert í því hvernig
drengnum gat komið þetta til
hugar. Ef til vill er þar slæmum
áhrifum um að kenna þvi
Margrét drottning og Henrik
eiginmaður hennar eru bæði
yfirgengilegir stórreykingamenn
og fást ekki fyrir nokkurn mun
til að leggja ósiðinn niður.
Margrét
drottning
á svo von á því að verða heilm-
ikið á ferðinni næsta árið. Hún
byrjar á opinberri heimsókn til
Ástralíu þar sem komið verður
við hjá hinum reykjandi Jóakim.
Þar næst liggur leiðin gegnum
Bandaríkin og til Tahiti þar sem
eiginmaðurinn Henrik tekur þátt
í siglingakeppni. Á heimleiðinni
rennir kerla yfir Nýja-Sjáland og
Japan þar sem hristar verða
nokkrar innfæddra hendur og
brosað breitt til beggja hliða.
Danir verða því mikið til þjóð-
höfðingjalausir á heimavíg-
stöðvum en þó halda þeir eftir
einum úr kóngaliðinu, Friðrik
prins er kominn í herþjónustu á
heimavelli þar sem auðvelt er
að krækja i kauða ef ríkið þarf
snögglega á slíkri hefðardúllu
að halda.
Bill Cosby
er blíðlyngur og góðhjartaður
bæði á skerminum og utan
hans. Því var hann ekkert að
tvínóna við hlutina þegar hann
frétti af góðum vini sem átti i
brösum við að borga skattana
sína. Hann mætti með nokkrar
milljónir til leiks og sagði þeim
skattaða að hafa ekki áhyggjur
af endurgreiðslunni fyrr en fjár-
hagurinn væri kominn á sæmi-
legan kjöl að nýju. Góður kall
Cosby og við gætum notað
nokkra svona hérlendis líka.
Tvær úr sýningarhópnum sem virtust hafa verið lengi í læri hjá módelsam-
tökum - Guðbjörg Sveinsdóttir og Guðríður Ólafsdóttir.
Þátttaka i svo sem eins og einni tískusýnignu vefst ekki mikið fyrir herra-
mönnunum Einari K. Eiríkssyni og Eiríki E. Kristjánssyni.
sýning
aldraðra
Tið nýja dvalarheimili aldraðra í
ireiðholti - Seljahlíð - tók upp þá
íýbreytni að fá verslunareigendur
il þess að mæta á staðinn með fatn-
ið til þess að gefa vistmönnum kost
i að kaupa sér flíkur án þess að
eggja í strembnar bæjarferðir. Frá
/erðlistíinum og Kvenfatabúðinni
;omu fot af ýmsu tagi, Hattabúð
leykjavikur sýndi hatta og skófatn-
iðurinn fékkst frá Skóseli og
Skóverslun Steinars Waage.
Að fötunum fengnum flaug starfs-
mönnum á Seljahlíð það í hug að
kominn væri ágætur grundvöllur
fyrir tískusýningu á staðnum og í
skyndi voru æfðir upp nokkrir vist-
menn i sýningarstörfin. Að sögn
forstöðumannsins, Maríu Gísladótt-
ur, mæltist nýjungin vel fyrir og féll
þessi fyrsta tískusýning í frjóan jarð-
veg.
íslenskir skór eru ekki til alls brúklegir og þvi mátar Ingveldur Stefáns-
dóttir leðurskó verksmiðjuættar. DV-myndir BG