Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Page 15
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986. 59 Bílar Franskir bílar hafa haft hægt um sig á bílamarkaðinum hér undanfarið ef Citroen er undanskilinn. Nú hefur heldur orðið breyting á. Kristinn Guðnason hf. kynnti um síðustu helgi það helsta sem er á boðstólum frá Renault og sömu helgi birtust helstu bílar frá Peugeot á sýningu sem nýi umboðsaðilinn, Jöfur hf., hélt í Kópavoginum. Á sýningu Kristins Guðnasonar á Renault gaf að líta bæði Renault 5, „súperfimmuna", sem nú loks er kominn hingað, og eins hinn nýja Renault 21 sem kynntur var í fyrsta sinn á bílasýningunni í Genf á liðnu vori ásamt ferðabílnum Espace 2000-1. R21 er með áhugaverðari bílum í sínum stærðarflokki sem fram hafa komið á þessu ári. Hér er haldið áfram á þeirri línu sem lögð var með Renault 25 semér fiaggskipið í lín- unni. Fljótt á litið er erfitt að setja R21- bílinn á ákveðinn bás mcðal þeirra bíla sem hér eru á markaði. Þó er það ljóst að það er viss hópur jap- önsku bílanna sem hér fær ákveðna samkeppni. Þetta byggist meðal ann- ars á þeirri staðreynd að R21 verður fáanlegur frá verksmiðju í átta mis- munandi gerðum og með mismun- andi vélum. í aðalatriðum verður þó um að ræða tvær vélarstærðir, 90 og 120 hestöfl. Það sem veku’r athygli í þessum bíl er að minni vélarnar eru þverstæðar í bílnum en þær stærri snúa langsum, nokkuð sem ekki hef- ur sést í sömu bílgerð áður. Annars eru vélarstærðir þessar: 1,7 lítra bensín (76 hö.), 1,7 lítra bensín (90 hö.), 2,0 lítra bensín (120 hö.), 2,1 lítra dísil (67 hö.) og 2,1 lítra turbo dísil (88 hö.), allar með fimm gíra kassa. Mikil snerpa Mér gafst kostur á stuttum reynsluakstri á einni gerð R21, RX með tveggja lítra vél. Af nýrri bílum Renault hafði ég aðeins reynt „súp- erfimmuna" svo beinn samanburður var ekki fyrir hendi. 1 stuttu máli kom bíllinn mér á óvart. Sérstaklega var það krafturinn sem er yfirdrifinn. 120 hestafla vélin skilar þessum 1095 kílóa bíl ótrúlega vel áfram. Þessi gerð bílsins er búin gírkassa með sérlega vel heppnuðu gírhlutfalli sem gerir sitt til að auka snerpuna. Gír- skiptingar eru góðar, nema helst yfir Renault 21RX - arltaki Renault 18 sportlegur fjölskyldubíll með mikið vélarafl og góða aksturseiginleika. DV-myndir Gunnar V. Andrésson Reynsluakstur Renault 21RX: Sportlegur fjölskyldubíll i fimmta gírinn, þar þarf að fylgja vel eftir til að tryggja hnökralausa skiptingu. Þetta kom mér á óvart því nú fékk Volvo gírkassann í 480-bíl- inn hollenska frá Renault, þótt innmaturinn væri hannaður hjá þeim, en þar er skiptingin í fimmta gírinn alveg hnökralaus. RX-billinn er hannaður fyrir þá sem vilja fá sportlega eiginleika jafn- framt notagildi venjulegs fjölskyldu- bíls. Hér nýtist framhjóladrifið vel og eykur á aksturseiginleikana. Snerpan sést best á því að RX er aðeins 9,7 sekúndur frá 0 upp í 100 km hraða og hér er hámarkshraðinn 200 km. Mikið innanrými Það fyrsta sem vekur athygli þegar sest er undir stýri í Renault 25 er hve innanrými er mikið. Nóg pláss er jafnt fyrir farþega í framsæti sem aftur í, útsýni er bjart og inn- og útstig með ágætum. Víkjum nú að vinnuaðstöðu öku- mannsins. RX-bíllinn er hannaður með sportleg einkenni í huga og það sést strax þegar sest er undir stýri. Stýrishjólið er orðið sportlegra, mælaborðið veitir allar þær upplýs- ingar sem þarfnast er, mælar eru skýrir og góðir aflestrar. Ljósarofi er innfelldur í stefnuljósastöng. Er henni snúið til að kveikja ljósin, nokkuð sem er farið að sjást í fleiri bílum í dag. Stjórnrofi fyrir þurrkur er í stöng hægra megin í fingurfjar- lægð. Hnappar til að kveikja á þokuljósum og afturrúðuhita eru til hliðar við mælaborðið. Umgjörð mælaborðsins er dálítið gamaldags og í anda fyrri bíla-frá Renault. Sérstaklega fannst mér að stjórntæki fyrir miðstöð hefðu getað verið betur hönnuð. Hillan, sem mælaborðið myndar, er lág og þar með er hanskahólfið komið of neðar- lega fyrir minn smekk. Ýmislegt smálegt er til að auka þægindi ökumanns og farþega. Hægt er að stilla halla og hæð á sæti öku- manns að óskum hvers og eins. Sérstakt ljós til kortalesturs er við hlið inniljóssins. Það kom mér á óvart að það þarf að fara upp í dýrustu gerðirnar til að fá hallastillanlegt stýri og úti- spegil farþegamegin. Hvort tveggja er nokkuð sem ætti að vera staðal- búnaður í bíl í þessum gæðaflokki ásamt vökvastýri. Góðir aksturseiginleikar Aksturseiginleikar eru betri en ég átti von á. Um snerpuna hefur verið fjallað hér að framan en fjöðrunin á sinn þátt í að gera aksturinn ánægju- legan. Fyrst þegar ég ók af stað fannst mér bíllinn vera í stífara lagi, ójöfnur á veginum komu fram í stýr- inu sem mér fannst í þyngra lagi. En þetta kemur ekki að sök því þrátt fyrir stífnina er nægileg mýkt í fjöðr- uninni til að svara hvaða vega- ástandi sem er. Að framan er McPhersongormafjöðrun en að aftan eru langstæðir sveifluarmar með jafnvægisstöng. Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum gefur gott veggrip og lipurð í stýri. Höggin í stýrinu voru á sínum stað en eru það lítilfjörleg að þau koma ekki að sök og þótt ekið sé á grófum malarvegi aukast þau ekkert. Með vökvastýri hverfur þessi tilfinning trúlegast alveg. Vélaraflið er svo yfirdrifið að það verður að varast að láta bílinn spóla í akstri, sérstaklega á malarvegi. Vélin er búin rafeindastýrðri beinni innspýtingu eldsneytisins sem gerir það að verkum að hún svarar vel við Að aftan er látlaust yfirbragð helsta einkennið. Farangursrými opnast alveg niður að stuöara og gefur þar með ágætan aðgang. hvaða aðstæður og álag sem er. Verðugur arftaki Renault 18 R21-bílnum er ætlað að vera arftaki Renault 18. Hann fylgir í fótspor R25 og fær margt þaðan, þar á meðal heildarlínuna í útlitinu sem er býsna vel heppnuð. Loftmótsstaða er lítil sem sést á því að Cd-gildi er aðeins 0,29 sem er ágætt á bíl í þessum stærðarflokki. Þetta náðist með lög- un fram- og afturstuðara ásamt frágangi glugga og hurða. Farangursrými er ágætt og opnun inn í það ágæt. Notagildið er síðan aukið með því að hægt er að leggja fram bak aftursætisins 40/60 og þar með fá aukið rými fyrir fyrirferðar- mikla hluti. Niðurstaða Renault 21 RX er alhliða fjöl- skyldubíll með mjög mikla sportlega eiginleika. Aksturseiginleikar eru góðir og vinnuaðstaða ökumanns ágæt. Vélaraflið er yfirdrifið en gerir sitt til að ná því besta út úr bílnum. Hins vegar á bíll í þessum gæða- flokki að vera með vökvastýri, útispegla og stillanlegan halla stýr- ishjóls. Einnig kemur spánskt fyrir sjónir að þurfa að nota sérstakan lykil á hurðarlæsingar. Miðað við verð, sem í dag er 625 þúsund krónur, er þetta vel sam- keppnisfær bíll á markaði hér. GTS-gerðin, sem er með 90 hestafla vél og ekki eins vel búin, kostar hins vegar um 536 þúsund krónur sem vel mætir bílum í svipuðum stærðar- og gæðaflokki. Stýri, mælar og önnur stjórntæki eru ágæt en frágangur mælaborðsins i heild, sérstaklega stjórntæki fyrir miðstöð, eru fullgamaldags og halda i fyrri hefðir frá Renault. Inn- og utstig er gott bæði að framan og aftan og frágangur á innréttingu og sætum góður. Þó er grip innan á hurðum fullveigalitið að mínum dómi. Umsjón: Jóhannes Reykdai Vélin í RX er tveggja litra, 120 hestöfl, með beinni innspýtingu. Hér er vél- in langstæð í bílnum en minni vélarnar eru hins vegar þverstæðar. RENAULT 21RX: Lengd: 4465 mm. Breidd: 1715 mm. Hæð: 1414 mm. Þyngd: 1095 kíló. Vél: Fjögurra strokka, langstæð, 1995 rúmsm, 120 hestöfl (86,5 kW) með beinni innspýtingu. Gírkassi: Fimm gíra. Stýri: Tannstangarstýri (vökva- stýri fáanlegt sem aukabúnaður). Snúningsradíus: 10,55 m. Hjól: 185/65R14H. Farangursrými: 490 upp í 840 lítrar. Bensíneyðsla: 90 km meðalhraði: 5,8 1/100 km. 120 km meðalhraði: 7,11/100 km. Innanbæjar: 10,7 1/100 km. Verð í nóv. 1986: Kr. 625.081.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.