Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1987, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987.
Utlönd
Nýárið byrjar með
róstum í S-Afríku
Nýárið byrjaði hrottalega í S-Afríku
þegar þrír blökkumenn voru brenndir
til bana í Soweto á nýársdag en ellefu
meiddust og einn var drepinn í róstum
sem urðu í örtröð á orlofsstöðum þar
sem blökkumenn gengu berserksgang.
Hið opinbera greinir frá þvi að
blökkumaður og blökkukona hafi
brunnið til bana þegar 20 manns gerðu
að þeim aðsúg í Emdeni-hverfinu í
Soweto. Brennumenn eru í þessum
fréttum kallaðir svartir róttæklingar.
Önnur kona var brennd til bana í
hvítra-hverfi í Soweto af 90 blökku-
mönnum sem veist höfðu að henni.
Lögreglan fann enn einn blökkumann
með brunasár en það var í Kwanobu-
hle. - Þetta minnir á ..hálsbandamorð-
in" eins og þau eru kölluð sem nokkur
brögð hafa verið að síðustu þrjú árin.
Hjólbarði, fylltur bensíni, er settur um
háls fómardýrinu og síðan kveikt í.
Algengustu fómardýr þessa hrotta-
lega hálsbands hafa verið blökkumenn
sem róttæklingar gruna um að vera
undirþægir hinum hvítu yfirvöldum.
Hópar blökkumanna gengu ber-
serksgang á baðströndum við Ind-
landshafið á nýársdag. Hafði þó
lögreglan töluverðan viðbúnað á þess-
um stöðum í Natal-strandhéraðinu
eftir óeirðimar um jólin þar sem sex
meiddust alvarlega. Þá gerðu blökku-
menn aðsúg á nýársdag á Durban-
baðströnd. hröktu sundverði og
lokuðu sig inni í búningsklefum. Bar
lögregluna að þegar skríllinn hafði
ráðist að matsölustað í nágrenninu en
þá mætti 'henni gijóthríð sem hún
svaraði með haglaskotum (fuglahögl-
um) og særðust níu af höglunum.
Umsjón: Guðmundur G. Pétursson
1987 hófst með óeirðum i S-Afríku.
Skemmdatverk á 100
NATO-skriðdrekum
Spellvirki voru unnin á nær hundrað
bandarískum skriðdrekum. sem hafðir
vom í vörslu í herbúðum NATO í
Luxemburg.
Ekki er vitað hvenær skemmdar-
verkin hafa verið unnin en það gætu
verið nokkrir dagar eða jafrivel vikur
síðan þvi að skriðdrekamir hafa ekk-
ert verið hreyfðir í nokkrar vikur.
Hafði verið fiktað við rafeindabúnað
skriðdrekanna en þessi búnaður teng-
ist stjómun þeirra og eins miðunar-
búnaði fallbyssanna.
í Sanem-herkampnum í suðvestur-
hluta Luxemburg em tvö hundmð
manns, aðallega héraðsmenn ráðnir
þar til starfa.
Skriðdrekamir em bandarísk-smíð-
aðir af gerðinni M-60, sem er einn
aðalskriðdreki Bandaríkjahers, vegur
56 smálestir og ber flögurra manna
áhöfn. - í Sanem-kampnum em nokk-
ur hundmð skriðdrekar, sem sjaldan
yfirgefa kampinn nema fyrir meiri-
háttar heræfingar. Strangur vörður er
um kampinn sem er rammlega girtur.
Grunur hefur vaknað um að
skemmdarverkin hafi verið unnin inn-
an frá af einhverjum kampveija.
Elton John hefur veriö slæmur í
hálsi að undanförnu og gengst undir
aðgerð í næstu viku til þess að kom-
ast að hvað veldur óþægindunum.
Elton John
í hálsaðgerð
Breska rokkstjaman Elton John
gengst undir skurðaðgerð á hálsi í
Sydney í næstu viku.
John, sem er orðinn fertugur, aflýsti
tónleikum í desember vegna slæmsku
í hálsi og á tónleikum í Sydney nokkm
seinna hné hann niður á sviðinu.
Læknar þar ráðlögðu honum að gang-
ast undir skurðaðgerð.
Ekki er vitað hvað amar að stjöm-
unni en vonast er til að það komi í
ljós við aðgerðina. Verður Elton John
fjóra til fimm daga á einkasjúkrahúsi.
Umboðsmaður hans heftir tilkynnt
að John ætli að taka sér ársfrí til þess
að hvíla röddina.
Fundu mosku
frálO.
öld í Kenýa
Fomleifafræðingar hafa fúndið rúst-
ir þúsund ára gamallar mosku á strönd
Kenýa. Em það elstu leifar íslamskrar
menningar í Austur-Afríku.
Var það leiðangur frá Oxford há-
skóla í Bretlandi sem fann moskuna
en hún er talin vera frá árinu 950.
Þar sem moskan fannst var lítið
samfélag innfæddra verslunarmanna
en líklega hafa fáeinir arabískir versl-
unarmenn frá suðurhluta Arabíu búið
þar líka.
í gömlum arabískum ritum er greint
frá ferðum verslunarmanna til austur-
strandar Afríku á fyrstu og annarri
öld eftir Krist.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Ab.Bb. Lb.llb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-10.5 Ab
6 mán. uppsögn 10-15 Ib
12 mán. uppsögn 11-16,25 Sp. Vélstj.
18 mán. uppsögn 16-16,25 Bb
Sparnaður-Lánsréttur
Sparað i 3-5 mán. 9-13 Ab
Sp. i 6 mán. og m. »-13 Ab
Ávísanareikningar 3-9 Ab
Hlaupareikningar 3-7 Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Úb.Vb
6mán.uppsögn 2,5-4 Úb
Innlán með sérkjörum 8,5-17
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-6,5 Sb
Sterlingspund 9-10,5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab
Danskar krónur 7.5-9.5 Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 15,75-16, 25 Ui
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge/19,5- 21 15-17
Almenn skuldabréf(2) Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-18 Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 5-6.75 Lb
Til lengri tima 6-6,75 Bb.Lb
Utlán til framleiðslu
isl. krónur 15-16,5 Sp
SDR 5-8,25 Allir nema Ib
Bandarikjadalir 7.5-7,75 Allir nema Bb.lb
Sterlingspund 12,75-13 Allir nema Ib
Vestur-þýsk mörk 6,25-6,5 Allir ncma Ib
Húsnæðislán 3,5
Lifeyrissjóðslán 5-6,5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1542 stig
Byggingavisitala 281 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. okt
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 111 kr.
Eimskip 228 kr.
Flugleiðir 200 kr.
Hampiðjan 133 kr.
Iðnaðarbankinn 130 kr.
Verslunarbankinn HOkr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila. er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti
af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs-
vexti og Landsbankinn miðar við 21%
ársvexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf tif
uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á
verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í
Alþýðubanka og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Við kennum þér alla almenna
dansa, bæði samkvæmisdansa
og gömlu dansana.
Bamadansar fyrir yngstu
kynslóðina.
Byrjenda- og framhaldsfiokkar
Innritun fer fram dagana
2.-5 janúar
kl. 13-19 í símum
40020 og 46776.
Kennsluönnin er 20 vikur, kennsla hefst 5. janúar og önninni lýkur
með lokaballi. Til að tryggja góða kennslu er fjöldi nemenda í hverj-
um hópi takmarkaður. FjD _ Betri kennsla _ betrj árangur,
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Auðbrekku 17, Kópavogi. Símar 40020 og 46776.