Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. Frétdr Jónatan Sveinsson, saksóknari í kaffibaunamálinu: Þrauthugsuð áætlun bak við Við upphaf málflutnings í sakadómi í gær. Hægra megin á myndinni sitja verjendur ákærðra og snúa baki í myndavélina. Þeir eru, frá vinstri: öm Clausen, Eirikur Tómasson, Ragnar Aðalsteinsson, Jón Finnsson og fjærst situr Guðmundur Ingvi Sigurðsson. Fyrir enda dómsalarins situr sakadómari, Sverrir Einarsson fyrir miðju en sinn til hvorrar handar honum sitja meðdómendumir Sigurður Stefánsson (t.v.) og Jón Þ. Hilmarsson. Fyrir framan þá situr ritari dómsins en á móti verjendum situr Jónatan Sveinsson saksóknari. DV-mynd GVA Munnlegur málflutningur í „kaffi- baunamálinu" hófst í gærmorgun með ræðu sækjanda, Jónatans Sveinssonar saksóknara, en fyrst um morguninn voru þó síðustu sampróf- animar í málinu. Voru þar bomir saman framburðir þeirra Hjalta Pálssonar og Sigurðar Áma Sig- urðssonar en mest bar á milli í skýrslum þessara manna fyrir dóm- inum. Benti Sverrir Einarsson sakadómari þeim Hjalta og Sigurði Áma á misræmi í framburðum þeirra hvað varðaði ýmis atriði málsins og fram hafa komið hér í blaðinu. Að- spurðir sögðu þeir báðir, Hjalti og Sigurður Ami, að þeir héldu fast við fyrri framburði sína og vildi hvomg- ur neinu breyta. Var því samprófun- in fljótlega lýst árangurslaus. Fyrstur talaði Jónatan Sveinsson saksóknari en að máli hans loknu tók til máls Jón Finnsson hrl., verj- andi Erlendar Einarssonar. Eftir að Jón hafði lokið ræðu sinni talaði Guðmundur Ingvi Sigurðsson, verj- andi Hjalta Pálssonar, en ekki varð ræðu hans lokið í gær og verður henni framhaldið í dag, fimmtudag. Fjársvik og skjalafals Hófet nú munnlegur málflutningur og hélt sækjandi málsins fyrstu ræð- una. Gerði hann þær dómkröfúr að allir ákærðu, þeir Erlendur Einars- son, Hjalti Pálsson, Sigurður Ámi Sigurðsson, Gísli Theódórsson og Amór Valgeirsson, yrðu dæmdir til hæfilegrar refeingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Vitnaði saksóknari í ákæruna og rakti meint brot ákærðu. Ræddi hann fyrst mál þeirra Erlendar og Hjalta en málið er höfðað gegn þeim fyrir að hafa gerst sekir um fjársvik, skjalafals og brot á lögum um gjald- eyris- og viðskiptamál, með stjóm þeirra og framkvæmd á umboðs- störfum Sambands íslenskra sam- vinnufélaga fyrir Kaffibrennslu Akureyrar, vegna innflutnings á kaffibaunum frá Brasilíu á tímabil- .inu nóvember 1979 til ársloka 1981. Sagði saksóknari að hin meintu af- brot vörðuðu við 248. grein 1. málsgrein og 155. grein almennra hegningarlaga en til vara við 158. grein sömu laga og ennfremur við 17. grein laga um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála. Nefna má að brot gegn 248. grein hegningarlaganna varða fangelsi allt að 6 árum, brot gegn 155. grein varða fangelsi allt að 8 árum og brot gegn 158. grein varða sektum eða fangelsi allt að 3 árum. Gegn þeim Sigurði Áma, Gísla og Arnóri er málið höfðað vegna hlut- deildar í framangreindum brotum og taldi saksóknari háttsemi þeirra varða við sömu lagagreinar og meint afbrot þeirra Erlendar og Hjalta. Umboðsviöskipti grundvallar- atriði I máli sínu nefndi saksóknari með- al annars að það væri grundvallarat- riði í málinu að um umboðsviðskipti hefði verið að ræða en ekki við- skipti eins og á milli heildsala og smásala. Ekki sagði hann fara á milli mála að ákærðu hefðu talið sig vera að framkvæma umboðsvið- skipti og allar framkvæmdir þeirra og ályktanir miðuðust við það og nefhdi hann nokkur dæmi þar að lútandi. Þá nefndi saksóknari að það hefði verið samkvæmt beinum fyrirmæl- um Hjalta Pálssonar að Kaffi- brennslan fékk ekki að vita um þau kjör sem Brasilíumenn buðu í kaffi- viðskiptunum og því til staðfestingar benti hann á skeyti þar sem þess er krafist að Kaffibrennslan sé leynd hinu rétta kaffiverði en hærra verð gefið upp. „Réðu ekkertvið dollararegnið" Þá nefndi saksóknari það í ræðu sinni að það gerði ákærðu tortryggi- lega að þeir skyldu vera með kyndugar yfirlýsingar í yfirheyrslum um að þetta og hitt hefði gerst af sjálfu sér í kaffiviðskiptunum og að þeir hefðu ekki getað haft áhrif á hinar miklu tekjur af þessum við- skiptum eða eins og Jónatan komst að orði: „réðum ekkert við dollara- regnið." Varðandi tvöföldu vöru- reikningana sagði saksóknari að að baki þeim lægi þrauthugsuð áætlun. Hjalti ber mestu ábyrgðina Varðandi ákvarðanatöku ein- stakra starfemanna SÍS í þessu máli sagði saksóknari að það væri fjarri lagi að svo örlagaríkar ákvarðanir, eins og þær sem teknar hefðu verið varðandi kaffiviðskiptin, væru tekn- ar af öðrum en forstjóra SÍS, Erlendi Einarssyni, eða framkvæmdastjóra innflutningsdeildar, Hjalta Pálssyni. Kvað hann ólíklegt að deildarstjórar einstakra deilda hefðu einir tekið ákvarðanir af því tagi sem skiptu sköpum. Komst saksóknari að þeirri niðurstöðu að enda þótt forstjóri SlS kynni að hafa verið sniðgenginn að einhveiju marki hlytu mikilvægar ákvarðanir eigi að síður að hafa verið bomar undir hann. Enda hefði Sigurður Ámi Sigurðsson borið það að hafa átt fund með þeim Erlendi og Hjalta þar sem meðal annars hefði verið rætt um kaffitekjumar og ennfremur hefði Erlendur fengið upplýsingar um þau mál frá endur- skoðanda Sambandsins. Sagði saksóknari að eftir að Erlendur vissi um tekjur þessar hefði hann ákveðið að þeim skyldi SÍS halda og hefðu þeir Hjalti verið sama sinnis í því máh. Einnig sagðist saksóknari telja að Hjalti Pálsson hefði tekið grund- vallarákvarðanimar í máli þessu og bæri mestu ábyrgðina og ætti því að bera þyngstu refeinguna. Sigurður tók viðkvæmar ákvarðanir Varðandi deildarstjórana taldi saksóknari það vandasamt úrlausn- arefrii hvort leggja ætti á þá refeiá- byrgð þegar yfirmenn þeirra hefðu tekið gmndvallarákvarðanimar en látið þeim framkvæmdina eftir. Þyngstu ábyrgð þeirra taldi hann Sigurð Áma bera, enda hefði hann átt þátt í stefiiumótun og tekið við- kvæmar ákvarðanir. Engar sannanir Næstur talaði Jón Finnsson hrl., veijandi Erlendar Einarssonar, for- stjóra SÍS. I upphafi máls síns gerði hann kröfu um sýknu af öllum ákæruat- riðum, enda sagði hann sækjanda ekki hafa rennt neinum stoðum und- ir sekt Erlendar. Ekki hefði hann fært fram neinar sannanir en aðeins dregið ályktanir byggðar á getsök- um. Varðandi það atriði í máli sækjanda að ákvarðanir eins og þær sem teknar hefðu verið um kaffiinn- flutninginn væm aðeins teknar á æðstu stöðum taldi veijandi fjarri lagi. Sagði Jón að Erlendur hefði ekki færst undan því að svara spum- ingum í yfirheyrslum, eins og sækjandi héldi fram; hann hefði skýrt satt og rétt frá öllu. Frumkvæði Brasilíumanna Um kaffiviðskiptin sem slík sagði Jón þau ekki sambærileg við önnur viðskipti, þau væm gerólík þeim við- skiptum sem almennt tíðkuðust. Þá sagði hann að ákvörðum um endur- greiðslu á hluta afeláttar til Kaffi- brennslunnar hefði aðeins verið tekið út frá skattalegum forsendum. Sagði hann að hefði SÍS neitað KA um endurgreiðslu á þessu fé væm Sambandsmenn nú ekki fyrir rétti, sakaðir um fjársvik. Varðandi tvö- falda vörureikninga í viðskiptunum sagði Jón að þeir væm til komnir vegna frumkvæðis Brasilíumanna en ekki frá íslendingum. Þá nefndi Jón að SÍS og Kaffi- brennslan væm nátengd og nánast móður- og dótturfyrirtæki og það væri undarleg staða sem upp væri komin að starfemenn móðurfélagsins væm ákærðir fyrir fjársvik og skjalafals í garð dótturfélagsins. Loks nefiidi Jón að ákærða, Er- lendi, hefði ekki verið kunnugt um avisos-kerfið fyrr en að rannsókn skattrannsóknarstjóra hefði verið nokkuð á veg komin og ennfremur hefði honum verið ókunnugt um hina tvöföldu vörureikninga. Kvað Jón Finnsson það augljóst að stað- hæfingar ákæmvaldsins væm falln- ar um sjálfar sig. Trú ákæruvaldsins að bila Síðastur talaði Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl., veijandi ákærða, Hjalta Pálssonar, en eins og fyrr greindi lauk hann ekki máli sínu í gær og heldur ræðu sinni áfram í dag. I upphafi máls síns krafðist Guð- mundur Ingvi sýknu ákærða, Hjalta, og að málskostnaður yrði lagður á ríkissjóð. Síðan sagði hann að mál þetta væri risið af grundvallarmis- skilningi enda hefði SÍS farið að lögum í þessum kaffiviðskiptum. Kvaðst hann sjá merki þess að trú sækjanda á ágæti ákæmnnar væri farin að bila. „Asninn leiddur í herbúðirn- ar“ Benti Guðmundur Ingvi á náin tengsl SÍS og Kaffibrennslunnar og að eitt meginverkefni SÍS væri að annast sameiginleg innkaup fyrir aðildarfélög sín og dótturfyrirtæki. Hann kvað alveg ljóst að hið tvö- falda kerfi vörureikninga væri ekki runnið undan rifjum SIS enda hefði það komið fram við yfirheyrslur að það væri ættað frá Brasilíu. Gagn- rýndi hann að ákæmvaldið hefði ekki leitað upplýsinga um málið í Brasilíu og kvað hann það ámælis- vert. Þá gat Guðmundur Ingvi þess að kaffiviðskipti væm i eðli sínu mjög óvenjuleg viðskipti og ekki væri hægt að leggja á þau mælikvarða venjulegra viðskipta en loka augun- um fyrir öðrum möguleikum. Sagði hann að við rannsókn málsins hefðu þau mistök rannsóknaraðila orðið að farið hefði verið að nota hugtök- in „umboðslaun" og „umboðsvið- skipti“ hugsunarlaust. „Og þar með var asninn leiddur í herbúðirnar," sagði Guðmundur Ingvi. Vitnaði Guðmundur Ingvi í fram- burð Vals Amþórssonar við yfir- heyrslumar sem sagði að það hefðu verið bókhaldsleg mistök að færa kaffiviðskiptin eins og gert hefði verið en sú ákvörðun hefði verið tekin af lægra settum starfemönnum. Því sagði Guðmundur Ingvi ákær- una byggða á misskilningi og að hún væri ekki byggð á raunvemleikan- um heldur á ranghugmyndum ákæmvaldsins. -ój Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Minnihlutaflokkarnir fjórir í borgarstjóm Reykjavíkur leggja sameiginlega fram einar 70 breyting- artillögur við frumvarp að fjárhagsá- ætlun borgarinnar fyrir þetta ár. Seinni umræða um fjárhagsáætlun- ina hefst klukkan 17 í dag í Skúlat- úni 2 og má búast við að afgreiðslu hennar ljúki ekki fyrr en í nótt. Meirihluti borgarstjórnar, sjálf- stæðismenn, leggur fram níu breyt- ingartillögur, sem byggja á meiri útsvarstekjum en upphaflega var áætlað og auknu framlagi úr Jöfnun- arsjóði sveitarfélaga. Minnihluta- flokkamir leggja til enn hærri áætlun um útsvarstekjur og einnig hækkun áætlunar um aðstöðu- gjaldatekjur. Aðalefni í tillögum minnihluta- flokkanna er hins vegar tilfærsla á fjárveitingum. I þeim felst meðal annars stórfelldur niðurskurður á fé í aukavinnu og afleysingar og niður- felling á 60 milljóna framlagi í ráðhússjóð. Tillögurnar miða að 240 milljónum króna í aukin eða ný verkefni í félagsmálum fyrst og fremst, þar af 100 milljóna hækkun á fé í þágu aldraðra. Borgarfulltrúi framsóknarmanna flytur einnig breytingartillögur út af fyrir sig og eins hinir þrír minni- hlutaflokkarnir saman. Það mun vera fátítt ef ekki einstakt að and- stöðuflokkar sjálfstæðismanna í borgarstjórn sameinist svo um af- greiðslu mála þar sem nú, nema að sjálfsögðu í meirihlutatíð þeirra 1978-1982. -HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.