Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. íþróttir • Ingolf Wiegerl. íslenska liðið til alls líklegt Stófin Kristjánssan, DV, Rostodc Við vissum að leikurinn yrði gríðarlega erfiður," sagði línumað- ur austur-þýska liðsins, Ingolf Wiegert. „íslenska liðið hefur margsýnt að það er til alls líklegt, meðal annars á HM í Sviss. Ef aðrir leikir okkar í þessu móti verða svipaðir þessum í kvöld þá vinnum við varla til verðlauna. Við stefhum þó að því nú eins og í upphafi.“ -»JÖG Ótrúlega góðurárangur -segir Þorgils Qttar Steön Kristjánssan DV, Rostodc „Við lékum nú í fyrsta sinn sam- an síðan á HM í Sviss og náðum ótrúlega góðum árangri," sagði Þorgils Óttar, fyrirliði íslenska landsliðsins eftir leikinn í gær. „Þrátt fyrir góðan leik gerðum við afdrifarík mistök og raunar gerðu bæði liðin sig sek um slíkt. Engu að síður hljótum við að vera á- nægðir með jafntefli gegn liði sem verið hefur óstöðvandi á heirna- velli á síðustu árum. Þetta eru mun betri úrslit en menn þorðu að vona og þau eru í raun stórkostleg. Þetta er afar gott veganesti og jafnframt frábært upphaf á undir- búningi Iandsliðsins íyrir ólympíu- leikana í Seoul.“ -JÖG Röng tönn! Stófin KriBtjárasan, DV, Rostodc Eins og við skýrðum frá í DV í gær fór Brynjar Kvaran, mark- vörður íslenska liðsins, til tann- læknis í fyrradag sökum tannpínu sem hann var haldinn af og var gert við tönnina til brágðabirgða. Síðar um daginn fann Brynjar enn fyrir verkjum í tönninni og þegar betur var að gáð kom í ljós að gert hafði verið við ranga tönn. Að sögn Brynjars er hann efins um að hann fari aftur til tann- læknisins en láti viðgerðina bíða þangað til hann kemur heim og kemst í öruggari hendur en í þetta skipti. -JKS Meiriháttar Stetán Kristjánssan, DV, Rostodc „Þetta eru meiriháttar úrslit,“ sagði Karl Þráinsson sem sat á varamannabekknum allan leikinn í gær. „Það var samt grátlegt að tapa þessu niður í lokin. Ef fram- haldið verður þessu líkt eigum við möguleika á verðlaunasæti. Liðið var að mínum dómi gott í sókn og vöm en dómgæslan var hins vegar afleit. Margir dómar voru furðu- legir og hölluðu á okkur.“ -JÖG 011 liðin eiga möguleika á sigri - í keppninni, segir Jón Hjaltalín Strfán Kristjánssan, DV, Rostodc „Ég er mjög ánægður með leikinn. Við gerðum jafhtefli við sterkustu handknattleiksþjóð heims, á hennar eigin heimavelli." Þessi vom orð Jóns Hjaltalín Magnússonar, formanns HSÍ, eftir leikinn í gær. „Þetta er stór- kostlegur árangur," hélt hann áfram, „leikkerfin gengu stundum vel upp í sókninni en af og til gerðu leikmenn mistök í vöm. Þar skorti bersýnilega samæfingu. Liðið hefur lítið komið saman að undanfömu en nú hefur stefhan verið tekin á ólympíuleikana í Seoul. Sterk og alvarleg keppni sem þessi þjappar hópnum saman og því er hún mikilvægur liður í undirbún- ingi landsliðsins fyrir ólympíuleikana. Ef svipaður árangur næst í þeim leikjum, sem framundan em á þessu móti, -- ef liðið kemst nærri því sem við urðum vitni að hér í kvöld er full ástæða til bjartsýni. Við höfum heitið leikmönnum aukagreiðslum ef þeir ná 1., 2. eða 3. sætinu hér á mótinu. Ég er þess fullviss að leikmenn setja markið hátt. Það þarf mjög sterkar taugar til að standast það álag sem hér er og jafn- framt til að ná árangri. Markatalan getur jafhvel skipt sköpum þegar upp verður staðið á sunnudag. Öll liðin eiga möguleika á sigri hér,“ sagði Jón Hjaltalín að lokum. -JÖG Ribe stefnir á meistaratitilinn eftir gott gengi að undanfömu Haukur L. Hauksson, DV, Danmörku; Ribe er nú í 2. sæti í 1. deild í Dan- mörku eftir tvo góða sigra að undan- fömu. Um daginn vann liðið Skovbakken á útivelli, 22-15, og nú á sunnudaginn var annar aðalkeppi- nautur, Kolding IT, lagður að velli, 22-15. Vom tæplega 2 þúsund áhorfendur á viðureign Ribe og Kolding þar sem gamla kempan Mogens Jeppesen (Muggi) í marki Ribe lék aðalhlut- verkið. Varði hann 22 skot í leiknum, þar af öll skot frá köntunum. Hinn 33 ára gamli Jeppesen er i frábæm formi núna og hefur verið valinn í landsliðið í fyrsta sinn síðan 1984. Lið Kolding hefur verið erfitt viður- eignar í vetur og skorað 25 mörk að meðaltali í leik. Hefur liðið verið frægt fyrir hratt spil og hraðaupphlaup. Þjálfari Ribe, Anders-Dahl Nilsen, vissi því að hveiju hann gekk og eftir leikinn sagði hann að leikmenn Ribe hefðu aldrei hlaupið eins hratt og í þessúm leik. HIK er nú efet með 20 stig en Ribe er með 18 stig og er því ekki óraun- hæft að tala um að meistaratitillinn endi hjá Ribe ef svo heldur fram sem horfir. -SMJ Jafritefli voru léttlát úrslit sagði stórskyttan Frank Wahl Sefin Kristjánssan, DV, Rostodc „Jafntefli vom réttlát úrslit. Við höfðum yfirhöndina i 50 mínútur eftir mjög mikla erfiðleika í byrjun. Við gerðum oft tæknileg mistök og það kostaði okkur sigurinn. Islenska liðið er þekkt fyrir hraðaupphlaup sín og notaði þau óspart með góðum ár- angri. Ég vil nota tækifærið og þakka íslenska liðinu fyrir góðan leik og óska þeim til hamingju með góða byrjun á mótinu. Leikmenn íslenska liðsins börðust eins og ljón og uppskám sam- kvæmt því. Úrslitin em gífurleg vonbrigði fyrir okkur og við eigum varla eftir að fá jalh gott tækifæri til að sigra i næstu leikjum okkar gegn íslendingum," sagði Frank Whal, stór- skyttan í austur-þýska liðinu. - Telur þú að það hafi ráðið úrslitum leiksins að þú varst tekinn úr umferð í seinni hálfleik? „Já, næstum því. Leikur okkar í fyrri hálfleik einkenndist af undirbúningi í sókninni fyrir mig og mér gekk mjög vel. Sjálfstraustið var gott of ég skor- aði fljótlega fimm mörk en því miður dugði það ekki til sigurs." -JKS Stefán Kristjáns- son, blaðamaður DV, skrifar ffá Rostock i Frábær seinni háffleikur ~! Stefin Kristjánssan, DV, Rostodc „Mjög slæmur leikkaíli í fyrri hálfleik kom í veg fyrir sigur okkar í dag,“ sagði Júlíus Jónasson sem sat á varamannabekknum í gær. „Sterk- ur vamar- og sóknarleikur liðsins í síðari hálfleik réð hins vegar ágætum úrslitum þegar upp var staðið." •JÖG • Þorgils Óttar, fyrirliði landsliðsins, var með 100% nýtingu í gær. A-Þjóðverjar fráfyrstata Steön Kristjánssan, DV, Rœtodc „Þetta var mjög góður leikur miðað við það hve undirbúningur liðsins fyrir mótið var lítill,“ sagði Bogdan Kow- alczyk landsliðsþjálfari eftir leikinn í gær og er ekki hægt annað en að taka undir þessi orð þjálfarans. Það eru ekki margar þjóðir sem geta leyft sér að ganga óánægðar af velli eft- ir að hafa gert jafntefli við A-Þjóðverja í Rostock. Það mátti eigi að síður greina óánægju í svip íslensku landsliðsmann- anna eftir að hafa gert jafntefli, 17-17, við A-Þjóðvetja í gærkvöldi. Það er að nokkru skiljanlegt því eftir mjög svo sveiflukenndan leik voru íslendingar með sigurinn í höndunum 25 sekúndum fyrir leikslok. En við íslendingar höfum fengið að kynnast því í vetur að A- Þjóðverjar eru ekki sigraðir fyrr en búið er að flauta til leiksloka. Svo reyndist einnig vera núna. Fyrir þennan leik höfðu A-Þjóðveijar sigrað 20 sinnum í viðureignum þjóðanna en íslendingar aðeins einu sinni. Það var í raun ergilegt að sigra ekki í þessum leik en á það ber að líta að A-Þjóðveijar voru með fjögurra marka foiystu í hálfleik eftir að hafa skorað átta mörk í röð. Fáum liðum hefur tek- ist að vinna upp svona mun gegn þessu rútínuliði A-Þjóðverja. Án þess að gera lítið úr leik íslenska liðsins - sem var að mörgu leyti mjög góður í síðari hálf- - fvábær seinni hálfleil leik - þá var a-þýska liðið ekki eins sterkt og búist var við. í raun léku að- eins þrír menn í liðinu af þeirri getu sem búist var við. Það voru þeir Ingólf Wie- gert, Frank Wahl og síðast en ekki síst Wieland Schmidt. Frábær markvarsla hans bjargaði í raun og veru stiginu fyrir A-Þjóðveija en hann varði 18 skot í leiknum. Undirbúningurinn fyrir Sviss sagði til sín Það kom berlega í ljós í þessum leik hve vel liðið hafði æft fyrir heimsmeist- arakeppnina í Sviss því þessi hópur hefur lítið sem ekkert komið saman síð- ann. Mátti jafnvel heyra liðsmenn íslenska liðsins tala saman þegar inn á völlinn var komið um það hvemig þeir vildu að samheijamir höguðu leik sín- um. Leikur íslenska liðsins var mjög kafla- skiptur. Eftir góða byrjun þar sem liðið komst í 5-2 kom hrikalegur kafli þar sem hvorki gekk né rak. Á þessum kafla, sem stóð í 16 mínútur, skomðu Þjóðverjar 8 mörk gegn engu! Seinni hálfleikur var hins vegar mjög góður, sérstaklega vamarleikurinn. Einar Þorvarðarson varði ágætlega allan tímann og þá stóð Kristján Arason sig vel. Þorgils Óttar átti skínandi leik í seinni hálfleik og skoraði úr öllum skotum sínum auk þess að gera Frank Wahl óvirkan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.