Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. 31 Sandkom Páll Pétursson. Páll í stuði Það er ekki að spyrja að Páli Péturssyni Framsóknar- þingmanni þegar honum tekst vel upp. Um daginn var haldinn mik- ill bændafundur í Miðgarði í Skagafirði. Þar leiddu saman hesta sína þingmenn kjör- dæmisins og fleiri stjómmála- menn. Meðal þeirra voru umræddurPáll Pétursson, Jón Jón Baldvin Hannibalsson. Baldvin Hannibalsson og efsti maður á lista Alþýðuflokksins í kjördæminu, Jón Sæmundur Sigurjónsson. Fundurinn var mjög vel sóttur og sátu hann eitthvað um fimm hundruð manns. Nokkuð fljótlega vakti það athygli Páls að þeir Jón Bald- vin og Jón Sæmundur voru í mynstruðum peysum, svona hálfgerðum lopapeysum. Því stóðst hann ekki mátið þcgar hann kom í pontu heldur sneri máli sínu til þeirra og sagði: „Mér sýnist nú vera hálf- gerður jarðarfararsvipur á ykkur, félögunum." Það þurfti ekki meira, salur- inn orgaði af hlátri. En sagan segir að Jón Baldvin hafi yfir- gefið fundinn áður en honum lauk. Frosthörkur til góðs Frosthörkumar, sem gengið hafa yfír í Evrópu að undan- förnu, hafa ekki bara verið til ills. Þannig hefur Vestfirska fréttablaðið það fyrir satt að opnuð hafi verið fyrsta skíða- lyftan í Danmörku á dögun- um. Ly ftan var sett upp í Roskilde, vinabæ Isafjarðar, nánar tiltekið í gamalli mal- amámu en þar fannst 60 metra háttfjall. Rekinn upp á við Þeir sem sjá ljósu hliðamar á málunum kalsa nú með það að Sturla Kristjánsson, fyrr- verandi fræðslustjóri, megi eiginlega bara þakka fyrir að hafa verið rekinn. Hann sé nefnilega eini Islendingurinn sem vitað er um hingað til sem hafi verið rekinn upp á við. Máli sínu til stuðnings benda bjartsýnismennimir á að Sturla hafi verið skóla- stjóri Þelamerkurskóla. Þaðan hafi hann verið rekinn. Þá hafi hann fært sig upp i stól fræðslustjóra. Þaðan sé búið að reka hann. Nú sé það engin spuming hver taki við af Sverri Hermannssyni ef hann láti af ráðherradómi í menntamálaráðuneytinu. Brennivín í mjólkur- búðinni Undanfarin ár hefur áfeng- ismálastefna þjóðarinnar einkennst af boðum og bönn- um. Hvers konar brennivín hefur helst átt að banna með öllu. Það hefur þótt Ijótt að smakka það og menn hafa laumast í ríkið svo lítið ber á, oft með merkta innkaupa- poka meðsértil aðsetjahinn forboðna vöka í. En nú kveður við nýjan tón. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, hefur viðrað þá hug- mynd að komið verði upp eins konar áfengishorni í almenn- um verslunum. Myndi þetta gilda um þá staði úti á lands- byggðinni sem hafa fengið leyfi fyrir áfengisútsölu en húsnæði ÁTVR er ekki til staðar á. Yrði þá samið við verslunareigendur á umrædd- um stöðum um vínsöluna. Vafalaust myndu margir öf- unda það landsbyggðarfólk sem yrði þessara hlunninda aðnjótandi. Það er nefnilega talsverður munur á því að geta krækt sér fyrirhafnarlítið í eina rauðvínsfiösku með steikinni í stað þess að velkj- ast eins og síld í stappfullri tunnu í útsölum ÁTVR. Erlendur Eínarsson. Þaðtóktím- ann sinn Það hefur oft verið sagt að dómskerfið íslenska sé sein- virktog silalegt. Eftirfarandi dæmi er kannski ekki til þess fallið að draga úr þessari trú manna. Kaffibaunamál SlS er nú til meðferðar hjá sakadómi eins og fram hefur komið í fréttum. Hefur sú meðhöndlun staðið yfir það sem af er vikunni. Blaðamenn hafa að sjálf- sögðu fylgst með Erlendi og félögum í baunasúpunni. Hef- ur hinum fyrrnefndu ekki alltaf liðið eins og best verður á kosið. Því er helst um að kenna grjóthörðum bekkjum í sakadómi sem sagðir eru verri en nokkrir kirkjubekkir. En það er kannski liður í því að halda forvitnum frá. Allt um það. Þegar blaða- mennirnir voru alveg að því komnir að bugast á bekkjun- um ákváðu þeir að ræða þetta háalvarlega mál við dómvörð. Þeir sögðu honum að bekkim- ir væm alveg að fara með þá og spurðu hvort ekki væri í lagi að þeir bæm inn í dóms- salinn bólstraða stóla sem stóðu fyrir utan. Dómvörðurinn var ekki viss um að það gengi. „Það tók nú hvorki meira né minna en fimmtán ár að fá almennileg- an stól fyrir dómarann,“ sagði hann. Umsjón: Jóhanna S. Slgþórsdóttir. yisÁ. • Fullur staögreidsluafsláttur. • Afsláttur við helmingsútborgun, en raögreiöslur í 2-12 mánuði. • Þægilegur og ódýr greiðslumáti. Opið kl. 8-18 virlca daga, kl. 10-16 laugardaga. ATH. Opið næsta laugard., 24. jan., kl. 10-14 vegna árshátíðar starfsmanna. 2 góðar byggingavöruverslanir austast og vestast í borginni, Stórhöfða, simi 671100, Hringbraut, simi 28600. Byggingavindu Útvegum með stuttum fyrirvara GEDA STAR 150 byggingavindur. Lyftigeta 150 kg. Ýmiss konar aukabún- aður er fáanlegur. Fallar hf, Vesturvör 7 200 Kópavogi. Símar 42322 TÖCGUR HF\ SAAB UMBODIÐ Bildshöfða 16 - Simar 681530 og 83104^1 Seljum ídag Saab 900 GLS árg. '82. 4ra Saab 900 GLI árg. '84. 2ja dyra, blágrár. beinskiptur, 5 dyra, Ijósblár, beinskiptur, 5 gíra, ekinn 73 þús. km. Topp- gíra, ekinn 49 þús. km. Verð bill á aðeins kr. 350.000,- kr. 460.000,- Saab 900 GLS árg. '82. 4ra Saab 900 GLI árg. '82. 4ra dyra, grænn, beinskiptur, 5 dyra, gráblár, beinskiptur, 5 gira, fallegur bill á góðu verði. gíra, ekinn aðeins 58 þús. km. Mjög fallegur bíll. Verð kr. 360.000,- Qpið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.